Morgunblaðið - 26.10.2000, Page 52
52 FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Gagnrýnandinn sem
músrkin fór fram hjá
EKKI er langt síðan nokkrir
hljómlistarmenn tjáðu sig á prenti
um undarlega siði poppgagnrýnenda.
Þeir virðast sem sé pína sig til að
hlusta á músík sem þeim fellur ekki í
geð og einkennast svo skrif þeirra af
fyrirlitningu í garð þeirra sem leyfa
sér að semja, spila og gefa út slíka
músík. Annað sem einkennir þessa
gagnrýnendur er mikill hroki og yfir-
l»gengilegt tískusnobb og þykir í leið-
inni góð lenska að hnýta í þá sem ekki
eru á „réttri“ bylgjulengd. Þeir gefa
sér rangar forsendur og þegar rangt
er gefið verður niðurstaðan auðvitað
röng. Einn af þessum mönnum er
Amar Eggert Thoroddsen á Morg-
unblaðinu. Ég hef tekið eftir því að
hann hefur einkennilega ánægju af
því að skoða útgáfur af landsbyggð-
inni og útmála hversu sveitó þær eru
og illa tollandi í tískunni. Hann er
MRLÞING
um íslond ó nýrri öld
frsmlfðsr^a lnUogu «9 Ivnjaja Ifjsakasasfa ItitBdlngs
- h<*rníg wfdur pfwn Mensta )>jóíf#f«3U
HÁSKÓI.AÚTGÁFAN
[ tilefni of útkomu bókorinnor (slond
ó nýrrl öld verður efnt tll oplns
mólþings í Hótíðosol Hóskólons
föstudoginn 27. október kl. 16.00 -
18.00. Höfundar bókorinnor eru
tuttugu og tveir tolsins og munu
nokkrir úr þeirro hópi fjollo um
fromtíðorsýn síno.
Dcigskró
1. Setning. Gunnar G. Schram prófessor,
ritstjóri Islonds ó nýrri öld.
2. Hvert ó þjóðin oð stefno ó nýrri öld?
Stutt óvörp.
Páll Skúlason háskólarektor.
Sjarni Daníelsson óperustjórl.
Gunnar Steinn Pálsson forstjórl
Mekkonó.
Dagur S. Cggertsson læknir.
Páll Kr. Pálsson fromkvæmdostjórl.
3. Pollborðsumræður. Auk ræðumonno
munu Lára Magnúsardáttir
sagnfræðlngur og Cglll Helgason
sjónvarpsmoður taka þátt í
umræðunum. flEvar Kjartansson
verður fundorstjóri.
Málþingið er öllum opið,
enginn aðgangseyrir.
sjálfur auðvitað vel að sér í tónlistar-
tískunni, sjálfskipuð tónlistarlögga,
eða settur í það embætti af ritstjóm
Moggans. 011 áheyrileg músík er
vond enda ekki ættuð úr músíkveröld
Amars og félaga. Þar ræður helst
ríkjum unglingagraðrokk og tölvu-
gert holtaþokuvæl. Ungmenni að
finna upp hjólið einu sinni enn og
gagnrýnendur fylgjast með af áhuga.
I umfjöllun um diskinn Dans
Iðnbúð 1,210 Garðabæ
sími 565 8060
Ingvi Þór
Kormáksson
Daily Vits
(S
J*
k.
o
(A
. 3
"35
í c
(8
*>
«
O)
c
ð>
k.
O
Inniheldur 29 tegundir af
vítamínum, steinefnum og
Rautt Panax Ginseng.
APÓTEKIN
Upplýsingar í síma 567 3534.
stöðumælanna, sem
birtist í Mbl. 18. októ-
ber, nefnir Amar
skemmtilega hug-
myndafræði á bak við
„ljóða“diskinn en seg-
ir svo: „Því leyfa menn
ekki ljóðunum að vera
í sínum pappírskiljum
og dægurtónlistinni
með sinni textagerð
að vera á sínum
geislaplötum án af-
skipta ljóðlistarinn-
ar.“ Verst að menn
skuli hafa stundað
slíkt athæfi áratugum
og öldum saman án
þess að spyija Arnar
um leyfi. Hvað með allan sönglaga-
sjóð íslensku þjóðarinnar? Það er
alltaf verið að gera lög við Ijóð. Vísna-
söngvarar, dægurlagahöfundar,
djasstónskáld og „alvarlegu“ tón-
skáldin hafa stundað slíka iðju án at-
hugasemda hingað til. Amar heldur
áfram og segir „svona“ diska „falla
óþægilega milli flokka“. Hvað er „að
falla á milli flokka“? Er maðurinn
búinn að flokka tónlist eftir einhveiju
heimatilbúnu kei'fi og lendir í vand-
ræðum ef eitthvað passar ekki í
flokkana hans? „Ljóðaunnendur fal-
ast ekki eftir þessu formi og dægur-
tónlistarfólkið h'tur ógjaman við
svona „listabulli“,“ skrifar gagnrýn-
andinn. Hvað hann hefur fyrir sér í
því að Ijóðaunnendur falist ekki eftir
slíku formi þegar fjöldi hljóðritana á
íslandi og um heim allan ber vott um
hið gagnstæða? Vanmetur hann ekki
líka „dægurtónlistarfólkið“ er hann
gerir ráð fyrir að það vilji ekki bita-
stæða texta, ljóð eða „listabull" eins
og hann orðar það? Hefur honum
nokkum tíma dottið í hug að dægur-
laga- og popptextar verða í mörgum
tilfellum til á undan laginu. Er ekki
skyldleiki texta við Ijóð augljós áður
en nokkurt lag er fyrir hendi? Era
ekki margir textasmiðir jafnframt
ljóðskáld og er þá sumt sem þeir
semja við hæfi í dægurtónlist en ann-
að ekki?
Amar reynir við illan leik að fjalla
um tónlistina á umræddum diski og
kallar hana „léttdjassað popp, áreit-
islaust...“. Má taka undir það að hluti
tónlistarinnar er léttdjassað popp.
Hitt er af ýmsum toga. Ef endilega
þarf að flokka músíkina fellur hún að
mestu undir það sem á ensku kallast
AC (Adult Contemporary) - músík
handa fullorðnum - fólki sem hefur
þroskast tónlistarlega en það virðist
gagnrýnandi Moggans alveg hafa
BROTHER BS 2145
aðeins kr. 18.374,- stgr.
Fín vél fyrir heimilið!
Takmarkað magn
Völusteinn er 10 ára!
- FLEIRI GLÆSILEG AFMÆLISTILBOÐ -
KAUPTU
I 7 GLERUNGA
OG FÁÐU
3 FRÍTT MEÐ
ÚR KÖRFU
DUKKUHATTAR
Á AÐEINS
KR. 50,-
- á meðan birgðir endast!
erufcom.in
O VOLUSTEINN
fyrir fima fingur
7®
Völustemn / Mörkinni I / I 08 Reykjavík / Sími 588 9505 / www.volusteinn.is
sloppið við. En takið eft-
ir. Lykilorðið er nefni-
lega „áreitislaust“. Ekk-
ert sem hrekkir hlust-
andann. Það virðist sem
gagnrýnandinn sé búinn
að láta forrita svo í sér
heilabúið með tölvutón-
listarhrekkjum og rafgít-
arasargi að hann hefur
fengið andúð á því sem
er músíkalskt og þar af
leiðandi ekki jafn áreit-
andi og það sem hann
vanalega þarf að snobba
fyrir. Hann segir tónlist-
ina líða „fram hjá
manni“. Hann hefði ekki
þurft að taka það fram að
tónlistin leið (fór) fram hjá honum.
Það er augljóst. Það einvalalið flytj-
enda sem prýðir þennan disk er ekki
nógu gott handa manninum sem
missti af músíkinni. Það þarf varla að
taka það fram að athugasemdir hans
Popp
Arnar reynir við illan
leik, segir Ingvi Þór
Kormáksson, að fjalla
um tónlistina á
umræddum diski.
þar að lútandi era gersamlega úr
takti við veraleikann.
Þegar litið er á það sem Arnari
finnst jákvætt á diskinum kemur dá-
lítið í ljós sem rennir stoðum undir
skoðun mína um andstyggð gagn-
rýnandans á músík. Hann lofar eina
lagið sem er í raun ekki lag frá hendi
höfundar heldur eins konar ó-lag eða
lagleysa. „Grúf ‘ er spunnið á staðn-
um og hljóðritað og síðan fær gítar-
leikari að mestu fijálsar hendur við
að „búa til hávaða“ ofan á það. Meira
er nú ekki í þessu „lagi“ fyrir utan
spaugsamt Ijóð Michaels Pollock.
Þetta er eins hljóms lag, nógu einfalt
til að gagnrýnandinn botni í því og
nógu nálægt tónlistartísku dagsins í
dag til að hann geti leyft sér smáhrós.
En það er vissara að hætta sér ekki í
greiningu á hinum lagasmíðunum,
þessum „áreitislausu“, sem innihalda
kannski tíu eða tuttugu hljóma. Oj!
Arnar er ánægður með söng Guð-
mundar Hermannssonar og segir
hann fá „útrás fyrir aðdáun sína á
Tom Waits“ í einu laganna. Að söng-
stfllinn dragi dám af Tom Waits er
vafasöm fullyrðing og að Guðmundur
hafi dálæti á Waits hef ég ekki heyrt
um fyrr. Upptökustjórinn útskýrði
einfaldlega hvemig skyldi sungið og
flinkur söngvari eins og Guðmundur
átti ekki í vandræðum með að fara að
þeim fyrirmælum.
Vegna ritdeilnanna sem greint er
frá hér í upphafi hafði ég varann á og
bað um að umræddur diskur yrði
fenginn í hendur gagnrýnanda Mbl.
sem jafnframt er hljómlistarmaður
og vakti athygli í fyrra fyrir vönduð
vinnubrögð. Illu heilli var hann hætt-
ur störfum og auðvitað ekkert sjálf-
gefið að hægt sé að verða við slíkum
óskum. Sættist ég því á að Amar
þessi gagnrýndi diskinn þrátt fyrir
gransemdir um að úr yrði eitthvert
klúður. - Af eitt hundrað lögurn sem
út hafa komið eftir mig hafa nokkur
unnið til alþjóðlegra verðlauna og
viðurkenninga auk þess sem ég hef
bandarískan forleggjara að verkum
mínum. Þetta átti sér stað í kjölfarið
á samstarfi við enskumælandi skáld
og textahöfund og því aðeins nefnt
hér til að sýna fram á að mörgum
hugnast vel sambýli lags og Ijóðs og
„listabullið" getur borgað sig. Mér
gæti ekki staðið meira á sama hvað
einhverjum á Mogganum finnst um
mína músík og reyndar var umsögn
Arnars um Dans stöðumælanna ekk-
ert voðalega neikvæð. Það er bara
svo leiðinlegt þetta bull. Meira að
segja fyiirsögnin, „Stöðugt mæli“, er
merkingarlaust bull. - Það er eigin-
lega lágmarkskrafa að poppskríbent-
ar hafi smáskilning á því sem þeir era
að fjalla um og opinberi ekki svona
fáfræði sína og fordóma.
Höfundur er hljómlistarmaður og
tdnlistargagnrýnandi hjá DV.