Morgunblaðið - 26.10.2000, Side 55

Morgunblaðið - 26.10.2000, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2000 55 UMRÆÐAN Lítil saga frá Afríkii í KENYA, skammt frá landamærum Suð- ur-Súdan starfrækir Alþjóða Rauði krossinn stórt sjúkrahús fyrir stríðsþjáða Súdani. Rauði kross íslands hefur um árabil sent sendifulltrúa sína þangað til starfa og ég var einn þeirra um sex mánaða skeið árið 1997. Mikið var um að ung- ir menn kæmu svo illa særðir á sjúkrahúsið eftir átök, að það þurfti að aflima þá. Konur og börn komu einnig særð eftir árásir á þorp og svo mætti lengi telja. Ég ætla ekki að segja ykkur frá þessu fólki heldur frá lítilli fjölskyldu sem bar að garði dag einn með flugvél frá Súdan. Því miður voru raunir hennar ekki einsdæmi og minna okkur á helstu vandamál íbúa Afríku, alnæmi og ófrið. Unga konan sem var borin inn á sjúkrahúsið hét María og við hlið hennar gekk dóttir hennar, Rósa, á að giska níu ára gömul. A bakinu bar Rósa Davíð, litla bróður sinn, sem að sögn móðurinnar var tveggja ára. María var með stórt sýkt sár á ann- arri mjöðminni og var mjög þjáð. Rósa virtist vera heilbrigð en litli bróðir hennar var vannærður og veikindalegur. Höfuð hans var stórt, augun útstæð og andlitið eins og á gömlum manni. Maginn var útþan- inn og húðin hékk í fellingum utan á honum. Hann gat hvorki skriðið né gengið. Sár Maríu voru hreinsuð og við bjuggumst við að með nokkrum skurðaðgerðum myndu þau gróa. En það gekk ekki eftir. Hún byrjaði að léttast og tærast og þegar við gerð- um alnæmispróf reyndist það já- kvætt. Davíð litli var með malaríu og niðurgangspest en þrátt fyrir með- höndlun virtist hann ekki ætla að braggast. Það kom okkur því ekki á óvart er hann greindist einnig með alnæmi. Rósa var ekki með alnæmis- veiruna í sér. Hún var vön að hugsa alfarið ein um bróður sinn. Hún bað- aði hann, mataði, svæfði og bar hann um allt á bakinu. Hún að- lagaðist lífinu á sjúkra- húsinu vel og þekkti brátt hvem krók og kima. Hún var einstakt bam sem vann hugi og hjörtu starfsfólks og sjúklinga spítalans. Starfsfólkið hjálpaði henni með Davíð þann- ig að hún hefði tíma til að leika sér og naut hún þessa nýja frjáls- ræðis. Það eina sem við gát- um gert fyrir móður þeirra var að lina þjáningar hennar en eftir tveggja mánaða legu dó hún. Það var um nótt og þegar verið var að búa um líkið vaknaði Rósa. Við höfðum reynt að búa hana undir það sem verða vildi en hvernig segir Söfnun Ég er þess fullviss, segír Eygló Ingadóttir, að Davíð hefur dáið fljót- lega frá systur sinni. maður barni að móðir þess sé að deyja? Ómögulegt var að útskýra dauðann á einfaldan hátt. Mamma var einfaldlega dáin og það þýddi að hún kæmi aldrei aftur. Rósa gekk um í leiðslu í marga klukkutíma og skyndilega bmstu flóðgáttir og lítið barn grét móður sína, grét og grét. Alnæmi hafði gert tvö börn til við- bótar móðurlaus í Afríku. Síðar sama dag var komin önnur kona í rúmið þar sem móðir barnanna hafði legið. Um kvöldið fæddi hún lítið barn. Rósa hélt áfram að hugsa um Davíð. Við höfðum áhyggjur af framtíð þeirra. Að lokum komust þau aftur til þorpsins síns í Súdan en þar áttu þau afa og fleiri skyld- menni. Okkur, sem höfðum annast þau þessa mánuði, þótti erfitt að sjá á eftir þeim en við máttum auðvitað Eygld Ingadöttir Rósa með Davíð brðður sinn á bakinu. Davíð er að öllum likindum dáinn úr alnæmi en Rðsa var ósýkt og hefur vonandi farnast vel. ekki gleyma því að fyrir þeim voru þau að fara heim. Nú eru þrjú ár liðin síðan ég skildi við þessi börn og mér verður oft hugsað til þeirra. Eg er þess fullviss að Davíð hefur dáið fljótlega frá systur sinni. Hver framtíð Rósu er veit ég ekki en trúi því að þetta dug- lega og glaðlega barn standi sig í erf- iðum heimi. Laugardaginn næstkomandi ætl- ar Rauði krossinn að safna til verk- efna í Afríku til að draga úr alnæmis- smiti og koma þeim til hjálpar sem þegar eru smitaðir. Það er von mín að sem flestir sjái sér fært að ganga til góðs - og hjálpa þannig börnum eins og Rósu. Höfundur er fv. sendifulltrúi Rauiin krossins. www.arctictrucks.is Sjáðu Land Cruiser 70 á 38" dekkjum ✓VRCTIC TRUCKS Opið laugardag kl. 12-16 og sunnudag kl. 13-16 [IfiL5y!lBMÍ]ajTMI Hjólkoppar gott úrval 13W15 Gúmmímottur skottmottur sn/ómottur Viö ábyrgjumst Reyndu Apollo 2000 Þetta er alveg ný tegund af viðaukahári sem er jafn eðlilegt, auðvelt í meðförum og bað væri þitt eigið nár. Reyndu TOPPIK Hári bætt við hár og hárib öðlast meiri fyllingu á nokkrum sekúndum. Nánari nppJýsingar ogtímapantanir ísíma 5522099. SPINNING— OG ÞREKHJÓL í mörgum gerðum ásamt mesta úrvali landsins af allskyns þrek- og æfingatækjum. Aðeins topp-merki. ÞREKHJÓL sem koma þér í gott form. Stöðugt ástig. Gott kasthjól. Fullkomnirtölvumælar. Mjúk og þægileg sæti. verð frá kr 29.849 stgr (Kr. 31.420) RAÐGREIÐSLUR ÖRNINNP* STOFNAÐ1925 - ÞREKTÆKJADEILD - Skeifan 11, sími 588-9890

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.