Morgunblaðið - 26.10.2000, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2000 55
UMRÆÐAN
Lítil saga
frá Afríkii
í KENYA, skammt
frá landamærum Suð-
ur-Súdan starfrækir
Alþjóða Rauði krossinn
stórt sjúkrahús fyrir
stríðsþjáða Súdani.
Rauði kross íslands
hefur um árabil sent
sendifulltrúa sína
þangað til starfa og ég
var einn þeirra um sex
mánaða skeið árið
1997.
Mikið var um að ung-
ir menn kæmu svo illa
særðir á sjúkrahúsið
eftir átök, að það þurfti
að aflima þá. Konur og
börn komu einnig særð eftir árásir á
þorp og svo mætti lengi telja. Ég
ætla ekki að segja ykkur frá þessu
fólki heldur frá lítilli fjölskyldu sem
bar að garði dag einn með flugvél frá
Súdan. Því miður voru raunir hennar
ekki einsdæmi og minna okkur á
helstu vandamál íbúa Afríku, alnæmi
og ófrið.
Unga konan sem var borin inn á
sjúkrahúsið hét María og við hlið
hennar gekk dóttir hennar, Rósa, á
að giska níu ára gömul. A bakinu bar
Rósa Davíð, litla bróður sinn, sem að
sögn móðurinnar var tveggja ára.
María var með stórt sýkt sár á ann-
arri mjöðminni og var mjög þjáð.
Rósa virtist vera heilbrigð en litli
bróðir hennar var vannærður og
veikindalegur. Höfuð hans var stórt,
augun útstæð og andlitið eins og á
gömlum manni. Maginn var útþan-
inn og húðin hékk í fellingum utan á
honum. Hann gat hvorki skriðið né
gengið.
Sár Maríu voru hreinsuð og við
bjuggumst við að með nokkrum
skurðaðgerðum myndu þau gróa. En
það gekk ekki eftir. Hún byrjaði að
léttast og tærast og þegar við gerð-
um alnæmispróf reyndist það já-
kvætt. Davíð litli var með malaríu og
niðurgangspest en þrátt fyrir með-
höndlun virtist hann ekki ætla að
braggast. Það kom okkur því ekki á
óvart er hann greindist einnig með
alnæmi. Rósa var ekki með alnæmis-
veiruna í sér. Hún var vön að hugsa
alfarið ein um bróður sinn. Hún bað-
aði hann, mataði,
svæfði og bar hann um
allt á bakinu. Hún að-
lagaðist lífinu á sjúkra-
húsinu vel og þekkti
brátt hvem krók og
kima. Hún var einstakt
bam sem vann hugi og
hjörtu starfsfólks og
sjúklinga spítalans.
Starfsfólkið hjálpaði
henni með Davíð þann-
ig að hún hefði tíma til
að leika sér og naut
hún þessa nýja frjáls-
ræðis.
Það eina sem við gát-
um gert fyrir móður
þeirra var að lina þjáningar hennar
en eftir tveggja mánaða legu dó hún.
Það var um nótt og þegar verið var
að búa um líkið vaknaði Rósa. Við
höfðum reynt að búa hana undir það
sem verða vildi en hvernig segir
Söfnun
Ég er þess fullviss, segír
Eygló Ingadóttir, að
Davíð hefur dáið fljót-
lega frá systur sinni.
maður barni að móðir þess sé að
deyja? Ómögulegt var að útskýra
dauðann á einfaldan hátt. Mamma
var einfaldlega dáin og það þýddi að
hún kæmi aldrei aftur. Rósa gekk
um í leiðslu í marga klukkutíma og
skyndilega bmstu flóðgáttir og lítið
barn grét móður sína, grét og grét.
Alnæmi hafði gert tvö börn til við-
bótar móðurlaus í Afríku. Síðar
sama dag var komin önnur kona í
rúmið þar sem móðir barnanna hafði
legið. Um kvöldið fæddi hún lítið
barn.
Rósa hélt áfram að hugsa um
Davíð. Við höfðum áhyggjur af
framtíð þeirra. Að lokum komust
þau aftur til þorpsins síns í Súdan en
þar áttu þau afa og fleiri skyld-
menni. Okkur, sem höfðum annast
þau þessa mánuði, þótti erfitt að sjá
á eftir þeim en við máttum auðvitað
Eygld Ingadöttir
Rósa með Davíð brðður sinn á bakinu. Davíð er að öllum likindum
dáinn úr alnæmi en Rðsa var ósýkt og hefur vonandi farnast vel.
ekki gleyma því að fyrir þeim voru
þau að fara heim.
Nú eru þrjú ár liðin síðan ég skildi
við þessi börn og mér verður oft
hugsað til þeirra. Eg er þess fullviss
að Davíð hefur dáið fljótlega frá
systur sinni. Hver framtíð Rósu er
veit ég ekki en trúi því að þetta dug-
lega og glaðlega barn standi sig í erf-
iðum heimi.
Laugardaginn næstkomandi ætl-
ar Rauði krossinn að safna til verk-
efna í Afríku til að draga úr alnæmis-
smiti og koma þeim til hjálpar sem
þegar eru smitaðir. Það er von mín
að sem flestir sjái sér fært að ganga
til góðs - og hjálpa þannig börnum
eins og Rósu.
Höfundur er fv. sendifulltrúi
Rauiin krossins.
www.arctictrucks.is
Sjáðu
Land Cruiser 70
á 38" dekkjum
✓VRCTIC
TRUCKS
Opið laugardag kl. 12-16 og sunnudag kl. 13-16
[IfiL5y!lBMÍ]ajTMI
Hjólkoppar
gott úrval 13W15
Gúmmímottur
skottmottur
sn/ómottur
Viö ábyrgjumst
Reyndu
Apollo
2000
Þetta er alveg ný tegund
af viðaukahári sem er jafn
eðlilegt, auðvelt í
meðförum og bað væri
þitt eigið nár.
Reyndu
TOPPIK
Hári bætt við hár
og hárib öðlast meiri
fyllingu á nokkrum
sekúndum.
Nánari nppJýsingar
ogtímapantanir ísíma 5522099.
SPINNING— OG ÞREKHJÓL í mörgum gerðum ásamt mesta úrvali
landsins af allskyns þrek- og æfingatækjum. Aðeins topp-merki.
ÞREKHJÓL
sem koma þér í gott form.
Stöðugt ástig. Gott kasthjól.
Fullkomnirtölvumælar.
Mjúk og þægileg sæti.
verð frá kr 29.849 stgr
(Kr. 31.420)
RAÐGREIÐSLUR
ÖRNINNP*
STOFNAÐ1925
- ÞREKTÆKJADEILD -
Skeifan 11, sími 588-9890