Morgunblaðið - 26.10.2000, Qupperneq 69
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2000 6?
FÓLK í FRÉTTUM
Pétur Pétursson þulur les útvarpssögu á Rás 1
Pétur Pétursson þulur les um þessar mundir upp úr bókinni /kompanfí við Þórberg í Ríkisútvarpinu.
I kompaníi við Pétur
Pétur Pétursson þulur hefur verið lands-
mönnum að góðu kunnur fyrir störf sín í út-
varpi í gegnum árin. Arnar Eggert Thor-
oddsen ræddi við Pétur vegna lesturs
' ---------- ?
hans á bókinni I kompaníi við____
Þórbergí Ríkisútvarpinu.
ÁRIÐ 1959 gaf Matthías Johannes-
sen út bók með samtölum sínum við
rithöfundinn Þórberg Þórðarson
sem ber heitið í kompaníi við Þór-
berg. Ríkisútvarpið hefur nú ýtt úr
vör nýrri útvarpssögu þar sem lesið
er upp úr þeirri bók, alls 35 lestrar,
og hófst lesturinn hinn 5. október
síðastliðinn. Pétur Pétursson þulur
les en rödd hans ætti að láta kunnug-
lega í eyrum flestallra íslendinga.
Pétur býr yfir gnægð sagna og er
fjölfróður maður svo ekki sé nú
meira sagt. Umræðurnar fóru því
um víðan völl eins og sést hér á eftir.
Fraukan í kirkjugarðinum
„Það hefur nú tekið sinn tíma,“
ansar Pétur er hann er spurður út í
þættina. „Það má kannski segja eins
og fraukan sagði í kirkjugarðinum
við Þórberg. „Þetta fer nú að verða
nokkuð langt“.“ Hláturinn sýður í
Pétri. „Og eins vil ég segja,“ heldur
hann áfram. „Að það er búið að vera
nokkuð langur aðdragandi að því að
það tækist að koma þessari sögu
Matthíasar á framfæri. Ég fékk leyfi
hjá höfundinum til að lesa þessa bók
og bjóða hana fram á frjálsum mark-
aði starfandi útvarpsstöðva. Af gam-
alli tryggð við Ríkisútvarpið sneri ég
mér til þess. Og svo liðu árin. Og
gránuðu hárin. Og ekkert heyrðist."
Pétur hlær dátt yfir þessu. „Þannig
veltist þetta um í kerfinu allnokkra
hríð. En svo bárust mér loksins boð.“
Fálkinn
„En nú ætla ég að segja þér frá
því,“ segir Pétur og setur sig í sagna-
stellingu. „Að ég átti þátt í því að
Þórbergur talaði inn á plötur í Fálk-
anum. Ég tel mér til tekna að hafa
gengist fyrir þvi, Haraldur í Fálkan-
um gerði þetta fyrir mín tilmæli. Ég
umgekkst Þórberg mikið á þessum
árum, hann og Margréti, og Margrét
sagði mér bráðskemmtilega sögu af
því er hún fylgdist af áhuga með
hvernig plötusalan gengi. Hún sagð-
ist hafa gengið inn í Fálkann og af-
greiðslustúlkan hefði ekki vitað nein
deili á henni. „Og ég spyr,“ sagði hún
mér, „Hvemig gengur platan hans
Þórbergs?" „Hún rennur út eins og
heitar lummur," var svarið. Á sama
tíma var á boðstólum plata með lestri
Halldórs Laxness. Og á hinni hlið-
inni var Davíð Stefánsson. En Þór-
bergur var beggja megin á sinni
plötu. Hún sagði mér svo að hún
hefði spurt um leið og hún fór. „En
hvernig gengur platan með Dóra
greyinu?“ Hún kallaði Laxness alltaf
Dóra greyið," segir Pétur og hlær.
„Hún hreyfist ekki,“ svaraði stúlkan.
„Og það litla sem selst er bara vegna
Davíðs." Það var alltaf talsverð
togstreita á milli þeirra skáldanna."
Þórbergur lifír
Pétur snýr sér nú að upplestrar-
málum. „En ég hef haft ákaflega
gaman af því að lesa. Mér finnst texti
Matthíasar í langflestum tilvikum al-
veg frábær." Aðspurður hvort Þór-
bergur eigi enn erindi við samtímann
svaraði hann. „Já, ég held að svo sé.
Ég nefni þér dæmi. Ég er enn þá
samtíðarmaður og á kvöldin þegar
við hjónin erum háttuð þá tek ég mér
bók í hönd. í Suðursveit. Og les fyrir
konuna mína, sem nú er orðin blind,
fjórðu bók í því mikla riti. Ég held að
Þórbergur íyrnist seint og ósk mín
er sú að unglingafjöld taki sér bækur
hans í hönd og njóti þeirra. Það má
kannski segja um kynslóð mína að
hún gangi undir merkjum Gríms
Thomsen sem sagði: „I nútíðinni
nátttröll ég slóri.“
Dómharði
Damon
DAMON Albarn, söngvari Blur, er
þessa dagana að veita viðtal og tvö í
tilefni af útkomu nýrrar safnplötu
með sveitinni sem ber hið frumlega
heiti Blur: The Best of. íslandsvinin-
um sanna virðist mikið niðri fyrir og
þegar kemur að vinnubrögðum
starfsbræðra hans ræðst hann sér-
staklega harkalega að tónlist sveita á
borð viðLimp Bizkit annars vegar og
Travis hinsvegar. I samtali við NME
segist hann miklu spenntari fyrir því
sem afrískir tónlistaiTnenn eru að
gera um þessar mundir en hann hef-
ur verið að vinna að tónlist með tón-
listarmönnum frá Malí. „Ég þoli ein-
faldlega ekki viðhorf gítarsveita í
dag, sérstak-
lega þeirra
ensku,“ segir
Damon. Hann.
segir tónlisU"
þeirra vera á
við brauð með
osti - fínt endr-
um og sinnum
en einstaklega hvimleitt og klígju-
gjamt til lengdar.
Því til viðbótar lýsir hann banda-
rísku rapprokkurunum í Limp Bizkit
með heldur neikvæðu orði sem ekki
skal haft eftir hér: „Ég þoli þá ekki
og tónlist á borð við þeirra. Ég hlýt
bara að vera orðinn of gamall fyrir
hana.“ Það skyldi þó ekki vera?
I tengslum við útgáfu safnplqt*-
unnar verður gefið út myndband og
DVD-diskur með öllum 22 tónlistar-
myndböndum þeirra.
os
Vr'V t.aii
1 1 Treubie Rðtdpiay
? ii MíbbpIH fiPBBii fiey
Í1 13 Ceedíiieneioi' Tvtniiiði
4 2 QnUMitiC U&dietieað
fi li iUBkl m f uu flgfiliiPk
11 li Hniliit Llllif) lll/liil
/ 3 llaUimirrlimjc 1 uel
li f itrðii I lluð tJtilnlHðja
á 4 'ilnvii iii IriB Wagti PlBCBflO
IU n ÍÍfllífli UPIIV
ii 14 Mmi (ivnciniai'il lllinli III?
i: 7 1 Iliras fl l,iii'IBi:l filnilil
Ki My (iiiimraliiin li|ii|i lll/lill
11 1: llrlijiiiii! I’uiikslei' llll5|ll'ill||
ji fmi l i;|l IBc llcsl 111 Mn fyiiriiss l||||
1 p lilmk Jesux IVtPlflJl
1* 11! liatll\ flrawn fö\
15 21 PfSil|il|3! Ps\ ll?
15 1/ 2ifi|sr Innilitis
?fl 25 Siinsfl thrii ft p-'syl lj|(lli\ Sii|l!
r < 11 8ífly flf.f Wpr-f Ttsafi Iravis
22 20 Try Try Tpy Srass.fiiaB PutúPk
r “3 1þ M.B fl:;\ 8 flrimiis
24 22 AM Rsfliíi Iverclear
25 28 Bariemter fneíl'P.t
n 2g Yelhm Cfllöiiav
27 23 RMk Ilif farty; í P fl.B
2Í gnf'ipp, HítRif Pap? Rjf.hs
u ; ifl U$?P i 3 Opwp
ftft iU! 18 RiClH \tw 88 71
%: okt, --mi-.
Biósjálfsalinn er opinn allan sólarhringinn hjá OLÍS Gullinbrú í
Grafarvogi, SELECT Smáranum í Kópavogi og NESTI Lækjargötu
í Hafnarfiröi. Bíósjálfsalinn er einnig opinn á venjulegum afgreiöslu-
tíma hjá OLÍS Mjódd og Álfheimum og hjá NESTI Ártúnshöföa.
Barnaleikur aö velja mynd - bara aö muna eftir kreditkortinu.
Aöeins 300 kr. á spólu* fyrir sólarhringsleigu! *Kynningarw
Bíósjálfsalinn
BlDEOfeg
PaTIi
i ' | ' 8- ' ■' 1
*• ’ llÍTjR J (Mi '4í’'Ll
mjdl- ■k ll.fi j m '*%&i mA
jf - a"? • j