Morgunblaðið - 29.10.2000, Side 1

Morgunblaðið - 29.10.2000, Side 1
249. TBL. 88. ÁRG. SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS i ti r M |! 1 #1 r | i ir % —Bfe. Morgunblaðið/Urður Mikil örtröð var við alla kjörstaði í Kosovo í gærmorgun. Hér má sjá hluta af fólkinu, sem beið eftir að komast inn í kjördeildina í skólanum Saleh Riza í Kosovo Polje, skammt frá Pristina. Viðbrögð við breskri kúariðuskýrslu „Heiðarleg44 eða kattarþvottur Morgunblaðið. London. „ÉG IÐRAST orða minna.“ Aðeins Stephen Dorrell, fyrrverandi ráð- herra í stjórn íhaldsmanna, hefur talað út um sinn þátt af þeim sem bent er á í skýrslu Phillips lávarðar um það hvernig breska stjórnin og embættismenn brugðust við kúarið- unni og smiti yfir í menn. Dorrell sagði 1995 að „ekki væri minnsta hætta“ falin í því að borða breskt nautakjöt en í morgunþætti BBC í fyrradag viðurkenndi hann, að þessi fullyrðing sín hefði ekki staðist. Dorrell var þó ekki einn um gáleys; islegar yfirlýsingar á sínum tíma. í þættinum var reynt að ná tali af John Gummer, fyrrverandi land- búnaðarráðherra, sem lét taka myndir af sér með fimm ára dóttur sinni borðandi hamborgara, en hann vildi ekki ræða við fréttamenn. Fjölmiðlar eru klofnir í afstöðu sinni til skýrslunnar, sem nefnir marga með nöfnum en lætur vera að bregða snörunni um háls þeirra eins og það var orðað í umræðuþætti í gær. Financial Times segir hana „skýra, nákvæma og aðdáanlega heiðarlega". í The Guardian sagði, að í henni reyndi kerfið að þvo hend- ur sínar. I The Times var bent á að ráðherrarnir fyrrverandi væru sam- mála um að stimpla þetta bara sem „árans óheppni, ekkert væri að græða á því að benda á sökudólga“. í gær komu fréttir um að 74 ára maður hefði látist úr CJ-veikinni, en talið hefur verið, að veikin legðist aðeins á ungt og miðaldra fólk. * Utlit fyrir mikla þátttöku í fyrstu frjálsu kosningimum í Kosovo Lfta á kosningarnar sem skref í átt til siálfstæðis Pristina. Morgunblaðið. TUGÞUSUNDIR manna biðu klukkustundum saman fyrir utan kjörstaði í Kosovo í gær til að greiða atkvæði í sveitarstjórnar- kosningum sem eru fyrstu fijálsu kosningamar sem haldnar eru í héraðinu. Margir urðu að bíða í um tvo klukkutíma þar sem kosningin fór seint af stað. Þótt um sé að ræða sveitarstjómarkosningar era þau málefni ekki ofarlega á baugi, held- ur framtíð héraðsins og hugsanlegt sjálfstæði. í kosningunum takast á tvær meginfylkingar, annars vegar Lýðræðisflokkur Hashim Thacis, hins herskáa fyrrverandi leiðtoga Frelsishers Kosovo, og hins vegar Lýðræðisfylking hins hófsama Ibrahim Rugova. „Kosningin byrjaði ágætlega þrátt fyrir erfiðleika á nokkram stöðum. Astæðurnar vora einkum tvær; nokkuð var um að starfsfólk og eftirlitsmenn mættu ekki til vinnu, auk þess sem tafir urðu á því að koma kjörgögnum á kjörstaði," sagði Roland Bless, talsmaður Ör- yggis- og samvinnustofnunar Evr- ópu, sem skipuleggur kosningarnar. Engin alvarleg tilvik höfðu komið upp um hádegi og kosning gekk betur en í morgunsárið. Að sögn Bless hefur fjöldi inn- lendra og erlendra efirlitsmanna sjaldan verið meiri í kosningum á vegum ÖSE en um 5.800 innlendir og 1.500 erlendir eftirlitsmenn að- stoðuðu um 900.000 kjósendur við að greiða atkvæði. Miklar biðraðir Til að stytta raðirnar og flýta fyr- ir vora herlið og túlkar KFOR feng- in til aðstoðar á kjörstöðum en á sumum þeirra biðu um og yfir 2.000 manns þess að kjósa. Þetta átti einkum við í Pristina, þar sem stærstu kjörstaðimir era. Morgun- blaðið kom á einn þar sem um 11.000 manns vora á kjörskrá og raðirnar teygðu sig langt út fyrir skólalóðina. Flestir biðu þolinmóðir eftir því að kjósa en Bardh Harad- inaj var hins vegar búinn að fá nóg, hann hafði beðið í tvær klukku- stundir en þegar inn var komið fannst nafn hans ekki á kjörskrá svo honum var sagt að fara og bíða í nýrri röð. „Þegar ég hafði beðið í hálftíma þar og hún hreyfðist varla hætti ég við að kjósa.“ ÖSE heíúr mikla reynslu af því að skipuleggja kosningar og Craig Jennes, næstæðsti yfirmaður ÖSE í Kosovo, segir að samanborið við Bosníu gangi framkvæmdin í Kos- ovo mun betur. En miklar tafir vora staðreynd. „Þrátt fyrir reynslu sam- takanna era flestir starfsmennimir algerlega óreyndir svo og kjósend- ur, svo þetta gengur hægt,“ sagði einn alþjóðlegu eftirlitsmannanna. Hefði beðið fram á morgundaginn Albanski fáninn blakti við hún í Kosovo Polje, þar sem Slobodan Milosevic hélt fræga ræðu fyrir ára- tug og hét Kosovo-Serbum því að héraðið yrði aldrei látið af hendi. Hópur Serba er enn búsettur þar en þeir tóku ekki þátt í kosningunum og serbneski fáninn var hvergi sýni- legur. Revzi Maliqi tók sér góðan tíma til að kjósa í Kosovo Polje. „Ég var búinn að ákveða mig en ég vildi bara njóta þess frelsis að hugsa mig um án þess að nokkur skipti sér af,“ sagði hann. Maliqi hafði beðið ásamt eiginkonunni Fahirie í hálfa þriðju klukkustund eftir því að kjósa. Ástæðan var sú að kjörstaðurinn var opnaður IV2 klukkustund of seint, þar sem kjörgögn bárast ekki og lykillinn að skólahúsinu gleymd- ist. Mikið öngþveiti var innandyra og ekki allir sáttir sem ekki fúndust á kjörskrá. Flestir biðu þó rólegir, þeirra á meðal Maliqi. „Ég hefði staðið í röð fram á morgundaginn ef nauðsyn hefði krafið, ég hef beðið svo lengi eftir þessu tækifæri." MILUARÐUR MEÐ MÖGULEIKA STEFNIR Á „FJÓRÐU KYNSLÓГ VEF- 30 HÖNNUNAR Trimble hafði sigur Belfast. AFP. DAVID Trimble, forsætisráðherra n-írsku heimastjórnarinnar og leið- togi stærsta flokks sambandssinna, hafði sigur í gær í eins konar upp- gjöri við harðlínumenn í flokknum. Harðlínumenn undir forystu Jeffreys Donaldsons höfðu krafist þess, að Sinn Fein, stjómmálaarmi IRA, Irska lýðveldishersins, yrði vísað burt úr heimastjórninni hefði IRA ekki hafið afvopnun fyrir 30. nóvember. Snerist Trimble mjög hart gegn tillögunni enda hefði sam- þykkt hennar í raun gert út um frið- arsamninga á Norður-írlandi. Lagði hann allt undir í átökunum við harð- línumennina og var tillaga þeirra felld með 445 atkvæðum gegn 374.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.