Morgunblaðið - 25.11.2000, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Sparisjóður Suður-Þingeyinga
Afgreiðslan á
Húsavík í nýtt
húsnæði
Húsavlk - Afgreiðsla Sparisjóðs Suð-
ur-Þingeyinga á Húsavík flutti í nýtt
húsnæði á dögunum, starfsemin hef-
ur verið til húsa í Söludeildinni sem er
eitt af gömlu kaupfélagshúsunum.
Gömlu kaupfélagshúsin Söludeildin,
Jaðar og pakkhúsið hafa verið seld,
unnið er að endurbyggingu þeirra og
ætlunin að opna þar veitingahús inn-
an skamms.
Þegar Sparisjóðurinn var opnaður
í nýju húsnæði að Garðarsbraut 62-64
reyndist fyrsti viðskiptamaðurinn
vera Kristbjöm Óskarsson. Var hon-
um sem öðrum viðskiptavinum, gest-
um og gangandi boðið upp á léttar
veitingar sem og margir þáðu.
Dagbjört Jónsdóttir afgreiðslu-
stjóri á Húsavík var mjög ánægð með
nýja húsnæðið. Hún sagði að breyt-
ingamar hefðu tekist vel. Trésmiðjan
Vík sem var verktaki við breyting-
arnar hefði ásamt undiverktökum
unnið gott verk, því verið skilað á
undan áætlun og flutningur afgreiðsl-
unnar því tekist mjög vel og hægt að
opna á réttum tíma.
Sparisjóður Suður-Þingeyinga er
með aðalstöðvar að Laugum í
Reykjadal, sparisjóðsstjóri er Mar-
grét Hólm Valsdóttir. Afgreiðslu-
staðir auk Húsavíkur em á Fosshóli
þar sem Dagný Pétursdóttir er af-
greiðslustjóri og í Reykjahlíð en þar
er Anna Dóra Snæbjömsdóttir af-
greiðslustjóri. í afgreiðslunni á Húsa-
vík eru fjórir starfsmenn í þremum
stöðugildum, þar vinna eingöngu
konur og þar ræður ríkjum eins og
áður segir Dagbjört Jónsdóttir.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Starfsfólk Sparisjóðsins, frá vinstri: Sigríður Benjamfnsdóttir, Linda
Björk Guðrúnardóttir, Anna Dóra Snæbjömsdóttir í Reykjahlíð, Mar-
grét Hólm Valsdóttir, sparisjóðsstjóri á Laugum, Gunnhildur Gunn-
steinsdóttir og Dagbjört Jónsdóttir, afgreiðslustjóri á Húsavík.
Morgunblaðið/BFH
Horft austur eftir Víðidal haustið 2000, hnjúkamir eru talið frá vinstri: Sauðahnjúkur, Vegahnjúkur,
Geldingafell og Sauðafell.
Víðidalur
í eyði
Mývatnssveit - Á liðnu hausti fór
jörðin Víðidalur í eyði, en þar
bjuggu systkinin, Guðmundur, f.
1922, og Aðalbjörg Ester, f. 1937,
Þorsteinsböm. Þau brugðu búi og
fluttust í Vopnafjarðarkaupstað, en
þar hefur verið þeirra verslunar-
staður.
f Víðidal sem liggur í um 400
metra hæð, hefur verið búið um
aldur og var þar einhver afskekkt-
asti bær á Islandi áður en vegurinn
um Fjöllin var gerður vetrarfær
íyrir fáum áram.
Foreldrar þeirra systkina, Þor-
steinn Sigurðsson frá Hólsseli og
Guðrún Sigurbjömsdóttir úr Þistil-
firði, fluttust í Víðidal 1923 og
hjuggu þar upp frá því, komu upp 5
böraum. Stærst mun bú hafa orðið í
Víðidal, um 250 ær og 3 kýr. Nú
þegar búskap var hætt í haust vora
þau systkinin með um 80 kindur en
kýr hættu þau með um 1980.
Enn hefur því fækkað um einn í
bæjatali fslenskra sveita og hafa má
Morgunblaðið/BFH
Stærri varðan á Biskupshálsi, hæð hennar er um 120 cm.
um Víðidalinn vísu sem Þura í
Garði gerði eitt sinn um eyðidal á
Mývatnsheiði:
Heiðardalurinn heimbyggð þín
hljóður á auðum slóðum.
Kvöldstjama á kumblið skín
kulnuð er glóð á hlóðum.
Yfír háls er að fara áður komið
er í Víðidal norðanað, þar heitir
Biskupsháls. Þar á hálsinum
skammt norðan vegarins eru tvö
grjóthrúgöld ekki mikil og aðeins
fáir metrar á milli þeirra. Þar heita
Biskupavörður og er þó erfitt að sjá
að um vörður sé að ræða.
f þjóðsögum EÓS er sú sögn að
þaðan hafí þeir lagt upp biskup-
arnir í Skálholti og Hólum þegar
þeir skiptu með sér landinu í bisk-
upsdæmi, forðum tíð. Þeir hittust
siðan i Hrútafjarðarbotni og hafa
það verið ójöfn skipti. Þarna eru
sýslumót N-Þingeyjasýslu og N-
Múlasýslu og um leið kjördæma-
mörk, sem nú munu senn hverfa og
gleymast eins og þessi staður sem
flestum er nú gleymdur.
Sjálfkjörið í sveitarstjórn sameinaðs sveitarfélags í Eyjafírði
Þrír oddvitar á
framboðslistanum
ÞRÍR sitjandi oddvitar eru á
framboðslista til sveitarstjórnar í
sameinuðu sveitarfélagi Glæsibæj-
arhrepps, Skriðuhrepps og Öxna-
dalshrepps og eru þeir jafnframt
allir bændur. Þetta eru þeir Helgi
Steinsson á Syðri-Bægisá, Armann
Búason á Myrkárbakka og Oddur
Gunnarsson á Dagverðareyri.
Eins og fram hefur komið í
Morgunblaðinu barst aðeins einn
framboðslisti til sveitarstjórnar í
hinu sameinaða sveitarfélagi og er
hann sjálfkjörinn. Hins vegar mun
á næstu dögum fara fram skoðana-
könnun um nafn á nýja sveitarfé-
lagið. Sameiningin tekur formlega
gildi um næstu áramót, þá tekur
ný sveitarstjórn jafnframt til
starfa og ráðinn verður sveitar-
stjóri. í sveitarstjórn verða sjö að-
alfulltrúar en í dag eru samtals 13
fulltrúar í sveitarstjórnum hrepp-
anna þriggja. Aðrir aðalmenn á
framboðslistanum eru: Aðalheiður
Eiríksdóttir fjármálastjóri, Sturla
Eiðsson bóndi, Klængur Stefáns-
son, bóndi og skólabílstjóri, og
Jóna Antonsdóttir, húsmóðir og
bóndi.
Dramb er falli næst
Morgunblaðið/Helgi Kristjánsson
Ólafsvík - Þessi myndarlega snjó-
kerling varð á vegi fréttaritara
þar sem hann ók um götur Hellis-
sands fyrir skömmu. Snaraðist
hann út úr bíl sínum og tók mynd
af kerlingunni sem var hnakka-
kert og mikilúðleg og skein
drambsemin úr svip hennar. Viss-
ara þótti að mynda oftar en einu
sinni en þá tók sú svipmikla að
hallast mjög skyndilega og i sömu
andrá var hún fallin. Mikill sjónar-
sviptir var að þessu en vissulega
er dramb falli næst.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Breiður fóðurgangur auðveldar mjög alla fóðrun kúnna og gefur mögu-
Ieika á vélfóðrun.
Nýuppgert fjös á
Búvöllum í Aðaldal
Laxamýri - Gagngerar endurbætur
hafa farið fram á fjósinu á Búvöllum í
Aðaldal og var það nýlega tekið í
notkun eftir endurbyggingu sem
staðið hefur síðan í sumar. Fjósið
hefur verið stækkað mikið og eru þar
nú 40 básar með einum breiðum fóð-
urgangi sem auðveldar mjög fóðrun
kúnna.
Þá voru mjaítatæki endurnýjuð og
sett upp brautarkerfi þannig að
aldrei þarf að halda á tækjunum
heldur er þeim rennt eftir brautum
um fjósið. Að þessu er mitóð hag-
ræði, auk þess sem á tækjunum eru
sjálfvirkir aftakarar sem taka tækin
af kúnum þegar kýrnar hafa mjólk-
ast. Þetta er til þess að hnébeygjum
við mjaltir fækki og hefur mjalta-
tækjum af þessari gerð fjölgað mitóð
hér á landi að undanfömu.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Sveinbjörn Sigurðsson og Hulda
Kristjánsdóttir, ábúendur á Bú-
völlum, eru ánægð með breyt-
ingarnar á fjósinu.