Morgunblaðið - 25.11.2000, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000 31
ERLENT
skæruliðahreyfingu, sem berst
gegn kommúnisma og álítur stjórn-
ina lepp Víetnama. Hreyfingin er
sögð hafa verið stofnuð um miðjan
sjötta áratuginn með stuðningi
bandarísku leyniþjónustunnar
CIA.
Ætluðu að steypa stjórninni
Leiðtogi uppreisnarmannanna,
An Mao, sagði þegar lögreglan yf-
irheyrði hann að þeir hefðu ætlað
að ná höfuðborginni á sitt vald og
steypa stjórninni. Hann kvaðst
einnig vera fyrrverandi lífvörður
Ranariddh prins, sem er nú forseti
þingsins.
Yfirmaður herlögreglunnar
sagði að allt væri nú með kyrrum
kjörum í Phnom Penh.
Sjö lögreglumenn og um tólf aðr-
ir borgarbúar særðust í átökunum.
Atta falla í uppreisn
í Phnom Penh
Fujimori
má setjast
að í Japan
Phnom Pcnh. Reutcrs, AFP.
KAMBÓDÍSKIR lögreglumenn
skutu átta menn til bana í gær þeg-
ar tveir hópar uppreisnarmanna
réðust inn í opinberar byggingar
og börðust við öryggissveitir í
Phnom Penh. Fimmtíu uppreisn-
armenn voru handteknir og jafn
margra var enn leitað í gær.
Þetta eru mestu átök sem bloss-
að hafa upp í kambódísku höfuð-
borginni frá 1997 þegar Hun Sen
forsætisráðherra steypti Norodom
Ranariddh prinsi, þáverandi for-
sætisráðherra.
Annar hópanna, allt að niutiu
manns, réðst inn í lögreglustöð og
beitti handsprengjum og byssum í
átökum við her- og lögreglumenn
fyrir utan skrifstofur varnarmála-
ráðuneytisins og fleiri opinberar
byggingar. Hópurinn tvístraðist
eftir um klukkustundar bardaga.
Annar hópur, um tíu manns,
réðst á sama tíma á herstöð u.þ.b.
15 km vestan við höfuðborgina.
Muong Khim, aðstoðarlög-
reglusljóri Phnom Penh, sagði að
flestir uppreisnarmannanna væru í
ALBERTO Fujimori, fyrrver-
andi forseti Perús, fær að setj-
ast að í Japan, í landi forfeðra
sinna. Skýrðu
I talsmenn jap-
I anska utanrík-
Ev V'-fT'M isráðuneytisins
p ' '-f |1 fráþvíígæren
BL «»• J samkvæmt
® 1 japönskum lög-
um hefur sá,
sem á japanska
foreldra, ríkis-
borgararétt í
Læknar hlynna að uppreisnar-
mönnum sem særðust í átökum
við her- og lögreglumenn í
Phnom Penh í gær.
Alberto
Fujimori ..
Japan. Oðru
máli gildir um fólk, sem er ekki
af japönskum uppruna, til
dæmis Kóreumenn. Þeir njóta
ekki fullra borgaralegra rétt-
inda í Japan þótt þeir hafi búið
þar kynslóð fram af kynslóð.
Talsmaður japanska utanríkis-
ráðuneytisins sagði einnig, að
ekki væri hægt að framselja
Fujimori en í Perú hefur verið
krafist opinberrar rannsóknar
á hugsanlegri spilhngu forset-
ans fyrrverandi.
Laxadauði
í norskri á
MIKIÐ af dauðum laxi fannst í
0rsta-ánni á Sunnmæri í Nor-
egi síðastliðinn miðvikudag. Er
ekki enn vitað hvað veldur en
kannað verður hvort einhver
eiturefni hafi borist út í ána.
Raunar bendir ekkert til þess
og menn láta sér helst detta í
hug, að laxinn hafi drepist af
súrefnisskorti.
Þótt mikið hafi rignt í Suður-
og Austur-Noregi hafa verið
miklar þurrkar í vesturhluta
landsins og flestar ár ákaflega
vatnslitlar. Hefur lítið rignt í
næstum þrjá mánuði og næst-
um ekkert allan nóvembermán-
Jólastjama
a 30% afsláttur
___ fímmtudag
jjagSBf til sunnudags
Mannskæð
umferðarslys
SEXTÍU manns fórust er
fólksflutningabifreið steyptist
út í á í Nígeríu í gær eftir
árekstur við vöruflutningabif-
reið. Voru tildrög slyssins þau,
að ökumaður fólksflutninga-
bifreiðarinnar var að reyna að
fara fram úr öðrum bíl. Fimm
manns lifðu af. Umferðarslys
eru tíð og oft mjög alvarleg í
Nígeríu.
J0
Attatíu
fangar
köfnuðu
UPPLÝST hefur verið, að
banamein meira en 80 fanga,
sem létust í fangelsi í Norður-
Mósambík fyrr í vikunni, hafi
verið köfnun. Haft er eftir vitn-
um, að sumir fanganna hafi far-
ið að berjast innbyrðis seint sl.
þriðjudag og skömmu síðar
barst mikill reykur út úr klef-
unum. Sagt er, að þeir, sem
komu átökunum af stað, til-
heyri sérstökum flokki mós-
ambískra stríðsmanna, sem
börðust á sínum tíma gegn
skæruliðum Renamo-hreyfing-
arinnar en þó ekki við hlið
stjórnarhersins. Trúa þeir því,
að þeir séu gæddir töframætti
og byssukúlur geti ekki grand-
að þeim. Þeir, sem létust, voru
flestir stuðningsmenn Ren-
amo-hreyfingarinnar.
I. flokkur
II. fiokkur
III. flokkur