Morgunblaðið - 30.11.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.11.2000, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Reglur um að grunnskólar haldi úti 170 kennsludögum Hefðbundnar j ólaskemmtanir felldar niður í sumum skólum HEFÐBUNDNAR jólaskemmtanir nemenda, eða svokölluð „litlu jól“, verða felldar niður eða haldnar með nýju sniði í sumum grunnskólum Reykjavíkur til þess að skólamir nái að uppfylla þá 170 kennsludaga sem þeim ber, lögum samkvæmt, að halda úti. Meðal þeirra skóla þar sem ákveðið hefur verið að fella niður hefðbundna jólaskemmtun er Mela- skóli. „Það verður ekki hefðbundin jóla- skemmtun eins og verið hefur hér um árabil. Börnin munu fá fullan skóladag en að sjálfsögðu gerum við okkur dagamun," segir Ragna Ólafs- dóttir, skólastjóri Melaskóla. Sendu tölvupóst í nafni forsætis- ráðherra TÖLVUPÓSTUR, sem við fyrstu sýn virðist vera frá net- fangi Davíðs Oddssonar forsæt- isráðherra, gekk manna á milli í gær. í bréfínu er látið sem for- sætisráðherra beini þeim til- mælum til starfsmanna fyrir- tækja í „tölvugeiranum" að stilla tölvupóstsendingum í hóf. Þá segir í bréfinu að mikil brögð hafi verið að því að fólk hafi sent á milli sín ýmiss konar mynd- efni. Slíkt eigi vitaskuld ekkert skylt við það starf sem fólk er ráðið til að inna af hendi. í bréfinu eru boðaðar hertar aðgerðir „gegn slíkum póst- sendingum meðal íbúa þessa lands“ eins og segir í bréfinu og að brottvikning úr starfi verði „skýlaus refsing“ fylgi fólk ekki nýjum reglum um tölvupóst- sendingar. Orðalag og stafsetning bréfs- ins er með þeim hætti að aug- ljóst er að bréfið er ekki ættað úr stjómarráðinu. Þá er net- fangið sem gefið er upp í bréfinu rangt auk þess sem bréfritarar rituðu aðeins eitt s í Oddsson. Haukur Arnþórsson, for- stöðumaður upplýsinga- og tæknisviðs Alþingis, kannaði uppruna póstendingarinnai- og gat rakið hana til vefforritara. „Þeir sendu einum vini sínum bréfið einungis til gamans en þetta var einhver innanhúss- húmor hjá þeim,“ sagði Haukur í viðtali við fréttavef Morgun- blaðsins í gær. „Engin eftirmál munu verða vegna þessa máls. Af okkar hálfu er ekki mikið um málið að segja. Þetta var gamansemi af hálfu forritar- anna.“ Ástæðu þessara breytinga segir Ragna vera fyrirmæli yfirvalda, það er að segja menntamálaráðuneytis og fræðsluyfirvalda í Reykjavík, um að börnin skuli fá fulla 170 kennslu- daga. „Ég lít svo á að við séum að fara eftir þeim fyrirmælum sem við fáum frá yfirvöldum um að nemendur eigi rétt á 170 skóladögum og að þeir eigi að vera af þeirri lengd sem kveðið er á um í grunnskólalögum. Eins og okkar hefðbundnu jólaskemmtanir voru um árabil, var nemendum skipt niður á nokkrar skemmtanir sem tóku tvo daga og hver hópur var tvær til tvær og hálfa klukkustund í skólanum og fékk þá mjög hátíðlega TOLLVERÐIR fundu um 400 lítra af sterku áfengi, aðallega vodka og viskíi, við leit í Skógafossi, skipi Eimskips síðdegis á þriðjudag, en skipið var þá að koma frá Banda- ríkjunum. Auk þess fundust um 130 karton af vindlingum. Leit í skipinu hélt áfram í gær en alls tóku um 15 manns frá tollstjóra og rannsóknardeild lögreglunnar í Reykjavík þátt í leitinni að sögn Sveinbjörns Guðmundssonar, aðal- og skemmtilega jóladagskrá, en um það er ekki að ræða lengur," segir Ragna. Hún segir að mál þetta hafi verið rætt innan skólans og segist telja að allir muni sjá eftir þessari hefðbundnu skemmtun. Jólaskemmtanir haldnar með breyttu sniði í Vesturbæjarskóla verða jóla- skemmtanir nemenda haldnar á ein- um degi í stað tveggja og segir Kristín G. Andrésdóttir skólastjóri að þannig nái skólinn að uppfylla þá 170 kennsludaga sem honum ber. Hún segir að líklega verði ekki eins mikið lagt í jólaskemmtunina og áð- ur þar sem hún verði haldin á einum deildarstjóra hjá embætti tollstjór- ans í Reykjavík. Sveinbjörn vildi ekki tjá sig um hvort einhver úr áhöfn Skógafoss hefði gefið sig fram og gengist við smyglinu eða hvort grunur beindist gegn einum skipverja eða fleirum. „Rannsókn er í fullum gangi og formlegar yfirheyrslur yfir skip- verjum eru byrjaðar. Við vonumst til að geta leitað af okkur allan grun og leitt málavexti í ljós í dag,“ degi í stað tveggja. Segir hún að sá dagur sem jólaskemmtunin verði haldin sé skilgreindur sem kennslu- dagur og að þetta fyrirkomulag hafi verið samþykkt á fúndi með öllum kennurum skólans. Gerður Óskarsdóttir fræðslustjóri í Reykjavík segir að Fræðsluráð hafi gefið út þau fyrirmæli til grunnskóla að þeir haldi úti 170 kennsludögum og að líklega yrðu einhverjir skólar að halda jólaskemmtanir sínar með breyttu sniði, sérstaklega í skólum þar sem nemendum hefði verið skipt í marga hópa og jólaskemmtanir haldnar á fleiri en einum degi og nemendum þá gefið frí á meðan aðr- ir voru á jólaskemmtun. sagði Sveinbjörn í samtali við Morgunblaðið. Auk áfengisins, sem reyndist falið á einum stað í skip- inu, voru um 130 karton af sígar- ettum í góssinu, eða um 25-26 þús- und vindlingar. Sveinbjörn sagði að jafnvel léki grunur á að meira af smygli væri að finna í skipinu, ekk- ert væri útilokað í þeim efnum og því væri áfram leitað um borð. Um 15 manns hafa tekið þátt í aðgerð tollstjóraembættisins í Skógafossi. Gengi deCODE aldrei verið lægra GENGI hlutabréfa í deCODE, móð- urfélagi íslenskrar erfðagreiningar, lækkaði um rúm 17% í gær og hefur ekki verið skráð lægra síðan við- skipti með þau hófust í sumar. Loka- gengi var 12,9375 dollarar. Nokkuð mikil viðskipti voru með bréfin í gær en verslað var með 323.900 hluti en að meðaltali er verslað með um 152.000 hluti á dag. Áður hafði gengi deCODE verið lægst eftir viðskiptadaginn 21. nóv- ember eða 13,125 dollarar. Gengi bréfanna hefur hæst farið í 31,5 doll- ara hluturinn á Bandaríkjamarkaði í sumar og miðað við það hafa bréfin lækkað um tæp 60%. Nasdaq-vísitalan hélt áfram að lækka í gær í kjölfar upplýsinga um að töluvert hefði hægt á hagvexti í Bandaríkjunum. Vísitalan er nú 2.707 stig og hefur lækkað um tæp 50% frá því að hún var hæst á þessu ári í mars sl. Hagvöxtur í Bandaríkj- unum mældist 2,6% á ársgrundvelli á þriðja ársfjórðungi þessa árs og hefur ekki verið jafnlítill á einum ársfjórðungi í fjögur ár. -------------- Rafmagnslaust á Grundartanga Straum- spennir gaf si g STRAUMSPENNIR í tengivirki Landsvirkjunar á Brennimel gaf sig skömmu eftir hádegi í gær með þeim afleiðingum að straumlaust var um tíma hjá Járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga og hjá Norðuráli, en bilunin hafði ekki áhrif á dreifingu raforku til almennings. Bilunin átti sér stað um klukkan hálftvö og var rafmagn komið aftur til Norðuráls um hálftíma síðar. Lengri tíma tók að koma á rafmagni til Járnblendiverksmiðjunnar, en það var komið á um klukkan hálffimm þegar tengt hafði verið fram hjá spenninum. Varanleg viðgerð verður gerð í beinu framhaldi í samráði við Járnblendiverksmiðjuna, samkvæmt upplýsingum Landsvirkjunar. ------------------- Innbrots- þjófur mund- aði hníf LÖGREGLAN í Reykjavík handtók í gærmorgun mann sem hafði brotist inn í fjármálaráðuneytið í Arnarhváli við Lindargötu. Vaktmaður í húsinu kom að manninum skömmu fyrir kl. 6 og náði að handsama hann. Þá mundaði innbrotsþjófurinn hníf og ógnaði vaktmanninum sem neyddist til að sleppa honum. Maðurinn komst undan en var handtekinn af lögi-eglu skömmu síðar. Morgunblaðið/Ásdís Beðið eftir strætó með bros á vör ÞAÐ er ekki alltaf skemmtilegt að sitja í strætóskýli og legt. En hægt er að létta sér biðina með þ ví að láta sig bíða eftir strætó, sérstaklega ef úti er kalt og hráslaga- dreyma og hugsa um eitthvað sem fær mann til að brosa. Um 400 lítrar af áfengi fundust í Skógafossi Sérblöð í dag 16 SIDUR l «•••; k )LABLAÐ NvV.v \\- fyJ'j/r'iJjj.tiJ'id- inii I iJ-jg j'yJgj/ ulíiú íííl J'./íjj|íJujjjjJ( „JÚJíJ'jJ-Jij J'./i/JP,JilJiJJ;J/“. 4SIDUR ÍHémR Blikastúlkur í Evrópu- keppni meistaraliða / B1 Valur tapaði óvænt bikarleik á Selfossi / B2 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.