Morgunblaðið - 30.11.2000, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 30.11.2000, Blaðsíða 62
62 FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2000 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ 5 Enn skal selja börn- um brennivín Aðstoðarskólameist- ari Menntaskólans á Akureyri, Jón Már Héðinsson, kærði til lögreglunnar á Akur- eyri föstudaginn 3. nóvember að dreift hefði verið í skólanum auglýsingabæklingi ^ar sem auglýstar voru 5 áfengistegund- ir, skemmtun með suðrænum kokteilum, aðgöngumiði með inni- földum drykk og kynning á drykkjum til miðnættis. Um var að ræða auglýsingu á skemmtun sem kallast Club Ibiza en auglýsendur voru Sjallinn, Dreamworld Entertain- ment Agency og Flugfélag íslands. Kæran var lögð fram í því ljósi að áfengisauglýsingar eru bannaðar á Islandi, auglýsingunum var dreift í skóla, þar sem áfengisnotkun er óheimil og henni var beint að hópi unglinga sem hvorki hafa aldur né jeyfi til að umgangast áfengi. Enga ábendingu um aldursmörk var að finna í nefndri auglýsingu. í frétt á Vef MA segir enn frem- ur að lögreglan hafí komið á stað- inn og tekið skýrslu um málið. Þá er haft eftir aðstoðarskólameistara að töluverð brögð hafi verið að því að vínveitendur hafi fengið nem- endur til að dreifa auglýsingum og boðsmiðum meðal skólafélaga smna. Þessi frétt er tekin fyrir í Morgnblaðinu 15. nóvember og í framhaldi af því rætt við framkvæmdastjóra Sjallans, eins af auglýsendunum. Skilj- anlegt er að hann kannist ekki við sök sína, en skýringar hans eru forvitnilegar og óljósar. Má auglýsa allt, alls staðar Sverrir Páll Framkvæmdastjór- Erlendsson inn segir að bækling- urinn hafi verið send- ur sem einkapóstur til ákveðinna aðila sem hafi aldur til að skemmta sér í Sjallanum. Hann segir líka að bæklingurinn liggi frammi á börum Sjallans og sé því einungis tekinn af þeim sem hafi aldur til. Hann tejji að hann megi auglýsa áfengi inni á vínveitingahúsi. Lítum á málið. Ef maðurinn sendir bækling með áfengisauglýs- ingum í einkapósti út fyrir húsið, er hann þá ekki að brjóta lögin, ef hann skilur þau þannig að hann megi auglýsa innanhúss á veitinga- staðnum? Ef framkvæmdastjórinn lætur bæklinginn liggja frammi á veitingahúsi, þar sem hann má hleypa inn fólki sem er 18 ára en ekki selja því áfengi nema það sé tvítugt, er hann þá að dreifa áfeng- ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-18. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali. Einbýlishús á Seltjarnarnesi Nýkomið í sölu 170 fm einbýlishús á einni hæð auk 37 fm bílskúrs. Húsið skiptist m.a. í stórar saml. parketlagðar stofur, 3 svefnher- bergi, lítið vinnuherbergi, vandað flísalagt baðherbergi, gesta w.c., þvottaherb. o.fl. Húsið er skemmtilega staðsett með miklu sjávarút- sýni. Gróinn fallegur garður. Hitalagnir í stéttum. Allar nánari uppl. á skrifstofu. Safamýri - 3ja herbergja 77 fm snyrtileg íbúð á jarðhæð í góðu fjölbýli. Nýlegt parket á gólf- um. Verð 10,5 millj. Tappurinn! thm Afengisauglýsingar Iðulega hefur verið kvartað við veitinga- menn á Akureyri, segir Sverrír Páll Erlends- son, fyrir að lauma auglýsingum inn í skólana. isauglýsingu til fólks undir áfengis- aldri, eða bannar hann 18-20 ára fólki að taka bæklinginn? Hvernig í ósköpunum stendur á því að bæklingur þessi lá í bunkum á vídeóleigum á Akureyri umrædda helgi? Telur maðurinn að áhuga- samir gestir hússins hafi tekið með sér bæklinga í hundraðatali eða safnað saman póstsendingum og af tilviljun skilið óvart eftir nokkra tugi af bæklingum hér og nokkra tugi þar? Og hvernig stendur á því að Lögreglan á Akureyri lagði hald á bunka með 50 svona bæklingum í Menntaskólanum á Akureyri eftir að margir nemendur höfðu tekið sér eintak af honum þar sem hann lá frammi á Sal skólans og gerðu síðan viðvart að þarna væri á ferð ólögleg auglýsing. Hvemig komust bæklingarnir þangað? Ekki bara einn sem hefur slæðst með ein- hverjum Sjallagesti heldur bunkar af þeim? Er ekkert að marka lögin sem segja að áfengisauglýsingar séu bannaðar? Leitin að hinum seka Ef í ljós kemur að veitingamenn, sem hafa í sinni þjónustu skóla- nemendur, sem jafnvel hafa ekki aldur til að umgangast áfengi, hafi fengið einhverja þeirra til að fara með bunka af bæklingum í skóla og dreifa þeim þar, hvort sem er pers- ónulega til skólafélaganna eða til að liggja frammi í bunkum - ætli veit- ingamenn séu þá sekir um afbrotið eða nemendurnir? Er hugsanlega verið að kaupa unglinga til að brjóta lög með því að borga þeim fyrir verk eins og þetta? Hvað segir lögreglan um þetta mál, er hún að rannsaka það og hef- ur fundist sökudólgur? Er hann í Sjallanum eða jafnvel Flugfélagi íslands? Eða kannski krakkinn sem hefur tekið þetta að sér? Framkvæmdastjóri Sjallans seg- ir í Morgunblaðinu að hann skilji ekki kæru aðstoðarskóiameistara. Samt svarar hann henni efnislega eins langt og það nær og vísar mál- inu frá sér, en eftir stendur spurn- Blindflug ENN einu sinni á þessu ári hefur Flugfé- lag íslands boðað hækkun á fargjöldum í innanlandsflugi. Fyrst var hækkunin 5%, næsta hækkun hljóðaði upp á 10% og nú skellur sú þriðja, upp á 8%, á okkur. Þessar hækkan- ir hafa leitt til þess að í dag kostar fiugferðin Egilsstaðir-Rv£k-Eg- ilsstaðir allt að 20.330 kr. Ódýrasta ferðin sem nú er í boði kostar 12.130 kr en sá galli er á gjöf Njarðar að þar þarf að bóka og greiða flugið með 7 daga fyrirvara og að auki er um takmarkaðan sætafjölda að ræða. Hvort um 2 sæti eða fleiri er að ræða í hveiri flugvél eru Flugfélags- menn ófúsir að veita upplýsingar um, hver svo sem ástæðan fyrir því er. Stéttarfélagsfargjöld gufa upp En þar með er ekki allt upptalið. Fyrir mánuði var lægsta mögulega fargjald á íyrrgreindri flugleið 8.800 kr. Þetta var stéttarfélagsfargjald sem ASÍ samdi um við Flugfélag ís- lands fyrir árið 2000. Núna er hins- vegar búið að leggja stéttarfélagsfar- gjöldin niður. Rétt sí svona og að því virðist án nokkurrar vitundar ASI- manna. Þetta þýðir að lægstu flugfar- gjöldin á þessari leið hafa hækkað um 38% í einni svipan. Flugfélagi íslands virðist ekkert ómögulegt. Er þetta það sem menn vilja? Ódýrir brottflutningar Síðasta hækkunin var líka mark- aðslega mjög klók þar sem þeir Sigrún Theodórsdóttir KRINGIUNHI Sorgar og samúðarmerki Borið við minningaralhafiiir og jarðarfarir. Aliur ágóði rennur til líknarmála. Fæst á bensínstöðvum, í Kirkjuhúsinu og í blómaverslunum. H KRABBAMEINSSJÚK BÖRN <jlT HJÁLPARSTOFNUN VQC/ kirkjunnar Shell kynntu hækkanirnar sem breytingar á skil- málum fargjalda. Nú geti maður keypt aðra leiðina í einu og sparað með því stórfé að þeirra viti. Hins vegar er það nokkuð ljóst að lang- flestir þeirra sem fljúga að heiman, fljúga heim aftur. Því stríðir þetta gegn almennri skyn- semi og þeirri markaðs- legu staðreynd að meira magn þýðh- lægri kostnað á einingu. Flugfélag íslands er kannski með þessu að bjóða landsbyggðar- mönnum einstakt tækifæri til þess að flytja bara í eitt skipti fyrir öll og setj- ast að á höfuðborgarsvæðinu, þá spara þeir sér náttúrulega flugmið- ann til baka. Það er í raun alvara málsins því þetta er enn ein atlagan að byggð í landinu. Með þessum geigvænlegu hækkunum er verið að koma í veg fyrir að fólk geti búið annars staðar en á Stór-Suðurlandssvæðinu. Flug- félag Islands yrði sjálfsagt fegið ef marka má yfirlýsingar þeirra hversu óhagstætt sé að fljúga með þessar ör- fáu, (og sífellt færri) hræður sem enn búa utan höfuðborgarsvæðisins. Skortur á samkeppni Að sjálfsögðu er það vitað að mikl- ar eldsneytishækkanir hafa orðið undanfarið en á móti kemur að með tilkomu Islandsflugs á flugmarkað- inn á sínum tíma, jókst farþegafjöld- inn margfalt þegar boðið var upp á flug á viðráðaniegu verði. Þegar Flugfélaginu hafði tekist að hrekja Islandsflug burt af markaðnum (því ekki vantaði bónusverðið á meðan samkeppnin stóð yfir) fengu þeir all- an farþegafjöldann yfir til sín. Þetta hefur því bætt sætanýtingu þeirra og þ.a.1. gert flugleiðimar hagkvæmari. Hins vegar má spyija sig að því hvort þeir séu ekki að bíta í skottið á sjálf- um sér með þessum hækkunum því það segir sig sjálft að stór hluti fólks sem nýtt hefur flugið hingað til mun ekki hafa efni á því eftir þessar gríð- arlegu hækkanir. Því mun farþegum líklega fækka, sætanýting versna og flugleiðimar verða óhagkvæmari. Fargjöld hækka þá enn meir og loks mun flugið leggjast niður. Er þetta það sem menn vilja? ingin um það hvemig bæklingur með bönnuðu auglýsingaefni kemst í bunkum frá honum og samstarfs- fyrirtækjum hans inn í skóla og á vídeóleigur. Skefjalausar árásir á unglinga Eftir stendur líka að þetta er ekki í fyrsta skipti sem mál af þessu tagi koma upp, það hefur iðu- lega verið kvartað við veitingamenn á Akureyri fyrir að lauma auglýs- ingum inn í skólana, m.a. vegg- spjöldum, bæklingum, boðsmiðum o.fl. og sumir veitingastaðir stunda gylliboð á áfengi, ókeypis drykki og jafnvel drykkjukeppni í hrópandi samkeppni við tilraunir skólanna til að halda gangandi heilbrigðu fé- lagslífi unglinga án vímuefna. Um það var mikil umræða á Akureyri í fyrravetur og því varnarstarfi er ekki lokið. Afengi, vínveitingar og veitinga- hús era sjálfsagðir þættir í menn- ingu nútímasamfélags. En skefja- lausar árásir vínveitenda á börn og unglinga og áróðursstríð sem þeir beina að æskufólki sem ekki hefur aldur til að umgangast eða neyta söluvöra þeirra er með öllu ótækt. Svona ólöglegt athæfi verður að stöðva. Og því brýnna er það sem fyrirtæki, sem vilja láta telja sig virðingarverð, eiga í hlut. Höfundur er menntaskólakennari, ritstjóri VefjarMA ogfulltrúi í forvamanefnd skólans. Innanlandsflug Þetta er enn ein atlag- an, segir Sigrún Theodórsdóttir, að byggð í landinu. Góðærisskattur = landsbyggðarskattur Hins vegar er ástæða 10%-hækk- unarinnar sem varð í ágúst síðastliðn- um með öllu óskiljanleg. Flugfélags- menn segja þetta til komið vegna aukinna álagna ríkisins á innanlands- flugið sem nemur 40 milljónum króna. Hver er tilgangur stjómvalda með slíku á tímum „góðæris" þegar menn áætla tekjuafgang ríkissjóðs 30 milljarða? Svo maður minnist ekki á hækkun þungaskatts sem leggst harðast á þá sem fjærst Reykjavík búa. Samræmist þetta „metnaðarfullri“ stefnu stjórnvalda í byggðamálum? Er þetta það sem menn vilja? Annars flokks íslendingar Á sama tíma og þessi gjömingur á sér stað era ferliverk Sjúkrahússins í Neskaupstað skorin við trog svo að Austfirðingar mega þola það að ekki er hægt að leita til læknasérfræðinga í fjórðungnum. Sem þýðir að fólk þarf að gera upp við sig hvort það hafi efni á því að leita sér lækninga til Reykja- víkur eða Akureyrar því það kostar rándýr flugfargjöld, vinnutap auk uppihalds. Eða þá bara að bíða með að leita sér lækninga þar til ný ferli- verkaáætlun liggur fyrir. Það hlýtur að vera sjálfgefið að harka þetta af sér og velja síðari kostinn því að sjálf- sögðu er „úti á landi-liðið“ miklu heil- brigðara en annað fólk. Það virðist allavega vera skoðun þeirra sem við stjómvölinn sitja. Er líf utan Stór- Suðurlandssvæðisins? Spumingarnar sem koma upp í hugann og verða sífellt áleitnari era þessar: Er verið að koma í veg íyrir að maður geti búið utan Stór-Suður- landssvæðisins? Er verið að skerða frelsi einstaklingsins til þess að velja sér búsetu? Er þetta það sem menn vilja? Ég skora á sveitarstjómarmenn og þingmenn að láta hendur standa fram úr ermum og koma í veg fyrir enn eina atlöguna að búsetu á lands- byggðinni. olís Höfundur er garðyrkjufræðingur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.