Morgunblaðið - 30.11.2000, Blaðsíða 38
38 FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Nýjar bækur
• UT er komin bókin I hlutverki
leiðtogans - Líf fimm for-
ystumanna í nýju ijósi, eftir Ásdísi
Höllu Bragadótt-
ur, bæjarstjóra í
Garðabæ.
í bókinni er
hlutverk leiðtog-
ans í kastljósinu
og meginefni
hennar eru fimm
viðtöl við for-
ystufólk í ís-
lensku samfélagi,
sem allt hefur
sett sterkan svip
á þjóðlífið. Við-
mælendur Asdísar Höllu eru: Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir borgar-
stjóri, Davíð Oddsson
forsætisráðherra, Kári Stefánsson
forstjóri íslenskrar erfðagreining-
ar, Vigdís Finnbogadóttir fyrrver-
andi forseti Islands og Hörður
Sigurgestsson, sem nýverið lét af
störfum sem forstjóri Eimskipafé-
lagsins.
I bókarlok fjallar höfundur um
listina að vera leiðtogi og Ieitar
svara við spurningum á borð við:
Hvað þarf til að verða leiðtogi?
Eru leiðtogahæfileikar meðfæddir
eða má læra að vera leiðtogi?
Utgefandi er Vaka-Helgafell.
Bókin er 208 bls. I bókinni eru
ljósmyndir af viðmælendunum í
leik og starfi og aftast er nafna-
skrá. Börkur Amarson hannaði
bókarkápu, Oddi hf. prentaði.
Leiðbeinandi verð er 4.480 krónur.
• ÚT er komin ljóðabókin Far eftir
hugsun eftir Þóru Jónsdóttur.
I fréttatilkynningu segir: „Þóra er
löngu þjóðkunn
fyrir ljóð sín.
Bækur hennar
hafa frá upphafi
hlotið lof gagn-
rýnenda og ein-
stakar viðtökur
ljóðaunnenda.
Þessi áttunda
Ijóðabók Þóru
hlaut viðurkenn-
ingu dómnefnd-
ar um bók-
menntaverðlaun
Tómasar Guðmundssonar á þessu
ári.“ Útgefandi er bókaútgáfan Mýr-
arsel. Bókin er 48 bis., prentuð í
Oddahf..
Leiðbeinandi verð er 1800 krónur.
• ÚT er komin ljósmyndabókin
Móðirin í islenskum Ijósmyndum
hjá Ljósmyndasafni Reykjavíkur.
Ritstjóri er Hanna Guðlaug Guð-
mundsdóttir listfræðingur.
í fyrri hluta bókarinnar er grein-
in „Lengi man móðir - um mæður í
íslenskum ljósmyndum“ eftir Önnu-
dís G. Rúdólfsdóttur félagssálfræð-
ing þar sem annars vegar er rýnt í
hugmyndir samfélagsins um móður-
hlutverkið og hins vegar reynslu al-
mennt. Einnig fjallar höfundur um
þá þróun sem orðið hefur á stöðu
móðurinnar í tímans rás með ljós-
myndaval til hliðsjónar sem í raun
endurspeglar hugmyndir og viðhorf
samtímans til móðurhlutverksins. f
grein sinni „Ágrip af sögu Ijós-
myndunar“ stiklar Guðbrandur
Benediktsson á stóru um helstu at-
burði ljósmyndasögunnar. Grein-
amar eru bæði birtar á íslensku og
ensku.
í síðari hluta bókarinnar eru birt-
ar um 300 ljósmyndir sem spanna
hundrað ár í íslenskri Ijósmynda-
sögu, allt frá lokum 19. aldar til
dagsins í dag. Áhersla er lögð á ljós-
myndalistina, sýnd sú þróun og þær
breytingar sem orðið hafa á fram-
setningu myndefnisins, móðir og
bam, og um leið undirstrika ljós-
myndimar bæði sem heimild og list-
rænan miðil sem þarf að rýna í og
lesa úr, líkt og þekkist í öðrum list-
formum.
Um útgáfuna sá Ljósmyndasafn
Reykjavíkur og er hún framlag þess
á dagskrá hjá M-2000. Styrktaraðili
verkefnisins er Pharmaco hf. Bókin
er 256 bls. Um prentþjónustu sá
prentsmiðjan Hjá Oss en um hönn-
un bókarkápu sá Soffí'a Árnadóttir.
Leiðbeinandi verð er 3.900 krónur.
Þóra
Jónsdóttir
Ásdis Halla
Bragadóttir
Kveðið í
hljóðkútinn
TONLIST
Háskoiabfó
SINFÓNÍUTÓNLEIKAR
Jónas Tómasson: Concertino con
sordino. Vivaldi: Fiðlukonsert f a
Op. 3,6. Tsjækovskij: Sinfóma nr. 5.
Eirikur Pálsson, trompet; 74 fíðlu-
nemendur; Sinfóníuhljómsveit
áhugamanna. Stjómandi: Ingvar
Jónasson. Sunnudaginn
26. nóvember kl. 16.
TILDRÖGIN hafa sjálfsagt verið
allt önnur. En eftir á að hyggja var
eiginlega bráðsniðugt að nánast full-
ferma Háskólabíó áheyrendum með
því að tjalda ekki einum einleikara
heldur 74! Þ.e.a.s. ungum Suzuki-
fiðlunemendum úr ýmsum tónlistar-
skólum höfuðborgarsvæðis, Akur-
eyrar og Reykjanesbæjar. Með
mætingu 148 stoltra foreldra gull-
tryggða, auk systkina, vina og
vandamanna, bætist fljótt í sarpinn...
Annars var Sinfóníuhljómsveit
áhugamanna alls góðs makleg á af-
mælistónleikum sínum s.l. sunnudag
og átti aðsóknina fullskilda, þó væri
ekki nema fyrir flutningsgæði. Það
má alveg eins segja það strax, að
aldrei hefur undirritaður heyrt hana
leika betur á tíu ára starfsferli. Úr
upphaflegri lítílli strengjasveit hefur
SÁ stækkað jafnt og þétt og löngu
fest sig í sessi með hljómleikahaldi
sem enn er að færast í aukana. Á
þessum vetri eru þannig áformaðir
hvorki fleiri né færri en sex tónleik-
ar! Með sama framhaldi fer þetta
270.000 manna dvergríki senn að
geta talið fram þrjár „alvöru" sinfón-
íuhljómsveitir, og geri hvert meðal-
greifadæmi vestan hafs betur.
Fyrst var „Concertino con sord-
ino“ (útlagt: lítill konsert með demp-
ara) fyrir trompet og hljómsveit,
sem Jónas Tómasson samdi fyrir
Eirík Pálsson og SÁ í tilefni tíu ára
afmælisins. Ekki veit ég gjörla hvað
fyrirfinnst í trompetbókmenntum
20. aldar af svipuðu tagi, þar sem
einleikshljóðfærið blæs eingöngu um
dempara án þess nokkum tíma að
hljóma „au naturel“, svo frumleiki
þeirrar hugmyndar verður að liggja
milli hluta. En hitt er víst, að frá
sjónarhóli litbrigðavinnslu var hún
grátupplögð. Demparabúr tromp-
etsins nær nefnilega yfir á annan tug
ólíkra „hljóðkúta", og þótt aðeins
einn þeirra tíðkist í hefðbundinni
sinfóníuhljómsveit, eru hinir vel
kunnir úr djassi og stórsveitum.
Hér var alls notuð um hálf tylft
slíkra bjöllumúla. Við hver umskipti
var sem lúður Eiríks umbreyttist úr
einu í annað enn óuppfundið tré-
blásturshljóðfæri, er blandaðist oft-
ar en ekki á dýrðlegan, jafnvel
kostulegan, hátt við ýmsar samsetn-
ingar úr tré-, málm- og strengja-
verki hljómsveitarinnar í hægt
streymandi litamósaík. Að ekki sé
minnzt á harmónikku Reynis Jónas-
sonar, sem með veikt líðandi akkorð-
um bætti enn einni, og harla óvenju-
legri, couleur í fjölbreytta farfakviðu
tónskáldsins.
Verkið hélt lengi furðugóðri at-
hygli, einkum í krafti hugvitssamrar
orkestrunar, þrátt fyrir hæggengi
sitt og samtvinnað hlutverk einleiks-
hljóðfærisins, sem var ljómandi vel
útfært af Eiríki, þótt varla byði upp á
mikinn sólóbravúr í hefðbundnum
skilningi. Þegar að lunkingróteskum
valskafla kom, átti maður hálfpart-
inn von á að upphæfust meiri svipt-
ingar. En hann stóð því miður aðeins
örstutt og reyndist vera kódi, því
skyndilega var verkinu lokið - nán-
ast upp úr þurru. Miðað við vænleg-
an fyrri hluta og góðar hugmyndir í
niðurlagi mætti hins vegar vel gera
meira úr fremur endasleppum kons-
ertlingi Jónasar, og hver veit nema
síðar verði.
Hinn kunni a-moll fiðlukonsert
Vivaldis fékk sannarlega beggja
skauta byr, þegar 74 ungir fiðluleik-
arar á hvítum bol stilltu sér upp fyrir
aftan undirleikshljómsveitina og
struku einleikspartinn einum rómi
svo undir tók. Það var gaman að sjá
og heyra samstillta krafta ungviðis-
ins, og ólíkt því sem sumir kannski
bjuggust við varð útkoman ekki sem
úr fuglabjargi, heldur áheyrileg
músísering sem lofaði góðu um fram-
tíðarmannöflun á þetta undirstöðu-
hljóðfæri sinfóníuhljómsveita.
Að rugga gömlu barni í svefn
BÆKUR
F r æ ð i
WAGNEROG
VÖLSUNGAR
Niflungahringurinn og í'slenskar
bókmenntir, eftir Árna Bjömsson,
Mál og menning, Reykjavík, 2000,
222 bls.
WAGNER og Völsungar Qallar um
tengsl texta Niflungahringsins eftir
Richard Wagner við íslenskar fom-
bókmenntir. Lengi hefur verið vitað
um þessi tengsl en höfundur bókar-
innar heldur því fram að þau séu mun
meiri en áður hefur verið talið. Af að-
fengnum minnum hringsins telur
hann um fjóra fimmtu vera úr íslensk-
um bókmenntum en aðeins örlítið
brot úr þýskum. Þó er áréttað marg-
oft að Wagner hafi unnið sjálfstætt
skáldverk úr heimildum sínum. Vita-
skuld er ekki verið að tala um tónlist
hans heldur textagerð.
Þessar heimildir eru Eddukvæði,
Snorra Edda og Völsunga saga auk
Þiðreks sögu og þýskra miðaldatexta,
Niebelungenlied og Humen Seyfried.
í inngangi Ieggur Ámi áherslu á
óvefengjanleika þess að þessar helstu
uppsprettur Niflungahringsins teljist
til íslenskra bókmennta. Þótt sumt
söguefnið eigi rætur að rekja til at-
burða sem gerðust langt utan í slands,
meðal annars á þýsku menningar-
svæði, sé jafn fráleitt að telja verkin
þýsk og að telja Hamlet Danaprins
danskt verk af því það gerist í Dan-
mörku. Röksemdin að ritunarstaður
og tunga ráði þjóðemi bókmennta-
verks getur þó hæglega snúist í hönd-
unum á mönnum. Halldór Laxness
skrifaði verk sín hér og þar; Gunnar
Gunnarsson hefur hingað til þótt
rúmast í íslensku bókmenntakerfi
þótt hann hafi skrifað í Danmörku og
á dönsku. En Ámi er sveigjanlegur
og reiðubúinn að hafa Þiðreks sögu ís-
lenska þótt hún hafi líklega verið
skrifuð í Noregi. Mestri furðu sætir
þó hversu gríðarlega íslenskt verk
Völsunga saga verður í meðförum Ár-
na, en hún hefur alla tíð verið flokkuð
til svokallaðra „Fomaldarsagna
Norðurlanda“ eftir sögusviði sínu.
Það var ekki að ófyrirsynju að hún
var ekki sett á oddinn í sjálfstæðis-
baráttu íslendinga. Hún þótti hrein-
lega of alþjóðleg til að
teljast hluti þein-a þjóð-
argersema sem Islend-
ingar byggðu sjálfstæð-
iskröfu sína á, enda væri
hún hálfgerð afþrey-
ingabók.
Að loknum formála
og inngangi Wagners og
Völsunga koma kaflar
um ævi Wagners, þýska
hugmynda- og þjóðem-
issögu og íslensk fræði í
Þýskalandi. Birt era
fi-umdrög Wagners að
hringnum og sagt frá
samningu hans. Þetta
era skemmtilegustu og
fróðlegustu kaflamir. Þeir, sem og
aðrir hlutar, era ríkulega mynd-
skreyttir, þar á meðal era myndir af
uppfærslu Þjóðleikhússins á hlutum
Niflungahringsins fyrir fáeinum ár-
um. Bókin er fallegur gripur fyrir vik-
ið. En meginþungi ritsins og helsti
hluti er rækilegur samanburður á
Niflungahringnum og heimildum
hans. Farið er lið fyrir lið í einstaka
efnisþætti hringsins og samsvarandi
þætti íslenskra fombókmennta. Þetta
er sett upp í tvískiptum blaðsíðum og
svo í einskonar dálkaritum í lok kafla.
Upptalning þessi tekur tæpar 100 síð-
ur og er í alþurrasta og sértækasta
lagi miðað við að þetta er eina ritið
sem til er um Wagner á íslensku og er
ætlað almenningi. Upptalningin held-
ur áfiram löngu eftir að meðalskussi í
þessum fræðum hefur sannfærst um
að talsvert sé til í kenningum Áma.
Samt fer ekki hjá því að manni
blöskri eignarhaldsáráttan á verki
Wagners. Forsendur þessa koma
skýrast fram í inngangi. Ami tekur til
þess að íslenskar bókmenntir séu á al-
þjóðlegum vettvangi kallaðar skand-
inavískar, norrænar, old norse eða
eitthvað annað, allt annað en íslensk-
ar. Hann vitnar í þýskan kennara sinn
sem hafi búist við að þar sem hann
væri íslendingur vissi hann eitthvað
meira en aðrir um sænskar siðvenjur.
Nú á dpgum ætti öllum að vera Ijóst,
segir Ami, hversu ólík Norðurlönd
era innbyrðis. Ætlun hans er að bæta
úr þeirri ónákvæmni að segja íslensk-
ar bókmenntir vera skandinavískar.
En hveija á að uppfræða um þetta í
íslensku fræðiriti - nema ætlunin sé
að snúa því á þýsku?
Menningarlegur samanburður er
vandmeðfarinn. Hér
jaðrar stundum við að
heldur lítið sé gert úr
þýskum menningararfi,
Þjóðveijum hafi verið
nauðsyn að sækja í
þann íslenska. Þar á
meðal er Wagner, sem
þó er lýst sem skapandi
listamanni. Þá er bein-
línis leitað að þjóðfé-
lagslegum orsökum
þess að íslenskur bók-
menntaarfur sé merki-
legri en evrópsk mið-
aldarit á latínu.
Samanburðurinn verð-
ur spuming um eignar-
hald og höfundur virðist ekki nema
hársbreidd frá því að lýsa norræna
goðafræði almennt séð eign íslend-
inga.
Þó tekur umfjöllunin fyrst að
hverfast um ísland þegar Árai telur
vafurloga þá sem leika um fjall og
Sigurður/Siegfried þarf að bijótast í
gegnum til að ná til valkyrjunnar
Brunnhilde/Brynhildar vera af ætt-
um íslenskra eldgosa. Munu þá ýmsir
aðrir íslenskir vafurlogar leika um
bókmenntir heimsins. Til góðs eða ills
era þó önnur eldgos mun þekktari í
evrópskum menntaheimi en íslensk,
t.d. frásögn af flótta rómverjans Plin-
iusar eldri undan einu slíku. Auk þess
fæ ég ekki betur séð en að fjall Wagn-
ers geti verið tilbrigði við minnið um
prinsessuna og glerfjöllin sjö, það geti
átt sér hliðstæður í artúrískum goð-
sögnum o.s.frv. Bókmenntasýn rits-
ins verður sambærileg hugmyndinni
um uppsprettur allrar menningar í
Mið-Evrópu, að hún breiðist út til
jaðranna og dofni - nema hvað hér er
þetta með öfugum formerkjum, allt á
sér rætur á íslandi.
Án nokkurs vafa er kenningin um
rætur Niflungahringsins í íslenskum
bókmenntum í stóram dráttum rétt
og full ástæða er fyrir Islendinga að
kynna sér þennan tónlistaijöfur. En
ég kann ekki að meta hugmyndina
um ísland sem einskonar vöggu
evrópskrar menningar, vöggu með
ævafomu bami sem fræðin rugga í
svefn. Fjölþjóðlegri fræði myndu
gægjast ofaní vögguna og koma auga
á að bamið er ýmist bastarður eða
umskiptingur - og alls ekki síður
væntumþykjunnar virði fyrir vikið.
Hermann Stefánsson
Ámi Bjömsson
Skýrasti mælikvarðinn um núver-
andi getu Sinfóníuhljómsveitar
áhugamanna birtist hlustendum eft-
ir hlé með 5. sinfóníu Tsjækovskíjs í
e-moll Op. 64. Þetta stórbrotna verk
eftir kannski melódískasta sinfónista
síðrómantíkur er vel þekkt að verð-
leikum, og því lítið sem gat farið
fram hjá almennum hlustanda,
hvorki til góðs né ills. Það sló mann
strax hvað strengjahljómurinn, og
það í ekki betra húsi en Háskólabíói,
var orðinn þéttur og tær, og samstill-
ingin í fyrsta þætti var slík, að maður
raglaðist andartak í ríminu og hélt
að fastasveit kvikmyndahússins væri
komin á staðinn. Þó að samtakamátt-
ur strengja og blásara næðu e.t.v.
ekki alveg sömu hæðum í seinni
þrem þáttum og í þeim fyrsta, var
samt auðheyrt að hljómsveitin hefur
tekið sjömílnastökk fram á við.
Nærri allar hinna fjölmörgu
tempóbreytinga gengu eins og í vel-
smurðri vél. Hendingamótunin var
plastísk og atvinnumannsleg, og
heildarútkoman ekki síður sigur fyr-
ir Ingvar Jónasson stjórnanda, sem
maður man ekki í annan tíma hafa
náð jafnglæsilegum árangri úr far-
sælu starfi sínu fyrir SÁ. Jafnvel
þótt Valsþátturinn (Allegro moder-
ato) verkaði svolítið hægur, náði
hann að sitja sannfærandi. Jafnvægi
milli strengja og blásara hafði og
sjaldan heyrzt betra en í þetta sinn,
og m.a.s. í lokaþættinum, þegar lúðr-
ar þöndu vígreifir sinn glansandi sig-
ursöng, komu strengirnir sínu fram,
þótt hefðu þurft að vera ívið fleiri.
Svona frammistaða getur aðeins
kallað á upphrópun: Bravó!
Ríkarður Ö. Pálsson
Jón Öskar
sýnir á
Seyðisfírði
JÓN Óskar myndlistarmaður
sýnir verk sín í Skaftfelli -
Menningarmiðstöð á Seyðis-
firði.
Jón Óskar hefur haldið fjöld-
ann allan af einkasýningum frá
1983 og verk hans er víða að
finna í opinberri eigu, bæði á
Islandi og víða í erlendum söfn-
um. I verkum sínum tekst hann
gjama á við möguleika miðils-
ins sem hann vinnur í og reynir
á þanþol hans, hvort sem um er
að ræða málverk eða úrvinnslu
ljósmynda.
Verkin sem Jón Óskar sýnir í
Skaftfelli hafa ekki verið sýnd
áður á Islandi.
Sýningin stendur til 15. jan-
úar.
Kammer-
tónleikar
KAMMERTÓNLEIKAR
Tónlistarskólans í Reykjavík
verða haldnir í Bústaðakirkju
annað kvöld, föstudagskvöld,
kl. 20.
Á efnisskrá eru: Kvartett op.
18 nr. 4, 1. þáttur, eftir L.v.
Beethoven, Oktett í F-dúr D
803 op. post. 166,1. og 2. þáttur,
eftir F. Schubert, Kvartett nr.
12 í G-dúr 1. þáttur, eftir W. A.
Mozart óg tveir þættir úr Par-
títu fyrir blásarakvintett eftir I.
Fine.
Aðgangur er ókeypis.
Yatnslita-
myndir á
Netinu
SYNING á vatnslitamyndum
eftir Jón Axel Egilsson sem nú
stendur yfir á Bókasafni Sel-
tjarnamess er einnig á Galleri
Grindverk á Netinu. Slóðin er
http://www.greendoor.is/gall-
eri.html.