Morgunblaðið - 30.11.2000, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 30.11.2000, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLADIÐ _________________FRÉTTIR Atak gegn ölvunar- akstri á aðventunni Morgunblaðið/Ámi Sæberg Kristján Þorbjömsson, yfirlögregluþjónn á Blönduósi, hélt erindi um áhrif sýnilegrar löggæslu. FIMMTA hvert banaslys á íslandi tengist ölvun við akstur og rúm 7% ökumanna á aldrinum 18 til 67 ára segjast hafa ekið undir áhrifum áfengis það sem af er þessu ári. Þar sem útgefin ökuskírteini á landinu eru um 150.000 má áætla að 11 til 12 þúsund ökumenn hafi ekið bifreið eftir að hafa neytt áfengis á árinu. Þetta var á meðal þess sem kom fram á blaðamannafundi til kynn- ingar landsátakinu „Endum ekki jólagleðina með ölvunarakstri" sem vátryggingafélögin Sjóvá-AImenn- ar, Tryggingamiðstöðin og Vátrygg- ingafélag íslands standa að í sam- vinnu við Slysavamafélagið Lands- björg. Einar Sveinsson, formaður Sam- bands íslenskra tryggingafélaga, kynnti átakið og sagði markmið þess vera að upplýsa ökumenn um afleiðingar og alvarleika ölvunar- aksturs og reyna á þann veg að fækka sem kostur er slysum og um- ferðaróhöppum sem rekja má til ölvaðra ökumanna. Meginþungi verkefnisins verður í desember og fram í janúar þar sem reynslan hef- ur sýnt að ölvunarakstur sé algeng- astur á aðventunni, um áramót og í upphafi nýs árs. Dregið hefur úr ölvunarakstri yngstu ökumannanna Einar sagði einnig frá niður- stöðum nýrrar könnunar þar sem 1.200 íslendingar á aldiinum 18 til 67 ára voru spurðir hvort þeir hefðu keyrt undir áhrifum áfengis á árinu. Eins og áður sagði svöruðu rúm 7% játandi, þar af fleiri karlar en kon- ur. „Með hækkandi aldri fækkar þeim sem segjast hafa ekið undir áhrifum. í aldurshópnum 18 til 29 ára eru þeir um 11% sem hafa ekið undir áhrifúm áfengis á móti tæpum 9% á aldrinum 30 til 49 ára og tæpu 1% fólks á aldrinum 50 til 67 ára,“ sagði Einar sem benti á að þeim færi þó fækkandi sem segðust hafa ekið bifreið eftir að hafa neytt áfengis miðað við sambærilega könnun frá 1998. Mest hefur dregið úr ölvunarakstri ökumanna í yngsta aldursflokknum, 29 ára og yngri, en 18% ökumanna í þeim aldurshóp hafði ekið undir áhrifum áfengis ár- ið 1998 miðað við 11% nú. Sýnileg löggæsla ein besta og ddýrasta forvörn sem til er Kristbjörn Óli Guðmundsson, framkvæmdastjóri Landsbjargar, fjallaði um ölvun sem falið vandamál í frístundum landsmanna. Krist- björn sagði það hafa verið áberandi- fyrir nokkrum árum að ferðamenn á öræfaslóðum deyfðu athyglina með áfengi áður en þeir fóru á fjöll og því hafi hætta oft skapast þar sem ferðast var um hættuleg svæði. „Þetta hefur sem betur fer lagast mikið en þó ekki svo að algott sé enn þá,“ sagði Kristbjörn. Enn fremur benti hann á að ölvun væri tengd allmörgum atvikum þar sem björgunarsveitir eru kallaðir út. Kristján Þorbjörnsson, yfirlög- regluþjónn á Blönduósi, fjallaði því næst um áhrif sýnilegrar löggæslu. Hann sagði umferðarmál vera lang- stærsta einstaka málaflokk lögreglu og að sýnileg löggæsla í umferðinni sem og annars staðar væri „ein besta og ódýrasta forvöm sem til er“. Lögreglan þarf að vera sýnileg til að koma þeim skilaboðum áleiðis að brot á reglum séu ekki látin átölulaus". Viðbótarlífeyris- iðgjöld undan- þegin skatti Fjármálaráðherra um skattbreytingar Túlkun Alþýðusam- bandsins ekki sanngjörn HÆGT verður að draga 4% viðbótar- lífeyrisiðgjöld frá skatti vegna alls telquársins 2000, að því er fram kem- ur í svari ríkisskattstjóra við íyrir- spum frá Samtökum atvinnulífsins, en frá þessu er skýrt á vef Samtaka atvinnulífsins. Fram kemur að semja þarf sér- staklega um þetta við vinnuveitanda og inna iðgjöldin af hendi fyrir allt ár- ið fyrir árslok og að þeir launamenn sem ekki hafa samið um viðbótar- spamað eiga rétt á að gera slíkan samning á þessu ári og gildir hann fyrir allt árið. Sama gildir um hækkun mótframlags atvinnurekenda úr 0,2% í 0,4% og samsvarandi lækkun trygg- ingagjalds að hún gildir einnig aftur- virkt fyrir allt árið. Samkvæmt lögum sem samþykkt voru á Alþingi í maí í vor er leyfilegt hlutfall til aukningar lífeyrisréttinda sem draga má frá tekjuskattstofni hækkað úr 2% í 4% af launum og að sama skapi hækkaði móframlag vinnuveitenda úr 0,2% í 0,4%. Samtök atvinnulífsins töldu vafa leika á frá hvaða tíma breytingamar ættu að gilda og var fyrispuminni beint til rík- isskattstjóra af því tilefni. í svari hans kemur fram að sú meginregla að líf- eyrisiðgjöld séu greidd reglulega og um spamaðinn sé samið fyrirfram, gildi ekki vegna yfirstandandi árs. Verða að sernja sérstaklega „Framangreind niðurstaða hefur óhjákvæmilega í för með sér að ein- staklingar verða að semja sérstaklega um greiðslu iðgjalda vegna iðgjalds- stofns fyrri hluta ársins 2000 og inna þau af hendi á árinu til þess að gera fúllnýtt þann frádrátt sem lög leyfa samkvæmt framansögðu vegna ið- gjalda sem varið er til aukningar líf- eyrisréttinda eða lífeyrisspamaðar á árinu 2000. Þessi undantekning frá meginreglunni um regluleg og fyrir- fram umsamin framlög gildir einung- is um framlög á árinu 2000 miðað við iðgjaldastofn þess árs. Það skal sér- staklega tekið fram að ríkisskattstjóri telur með hliðsjón af sérstæðum málsatvikum sem að framan era rak- in að launamenn sem ekki hafa þegar samið um slíkan viðbótarspamað skuli með sama hætti eiga kost á að gera slíkan samning á þessu ári með afturvirkum réttarverkunum fyrir allt tekjuárið 2000.“ Bókftíkunn<ft wJ' 1.-8. desember MYRIN Mýrin er magnþrungin og ágeng spennusaga eftir Arnald Indriðason. Frábær bók sem alls staðar fær góða dóma. 2.793 kr. Verð áður 3.990 kr. Réttarkrufning 2.436 Verð áður 3.480 kr. www.penmrm.is Stúlkan sem elskaði Tom Gordon BEBSk, Verð áður 2.980 kr. Eymundsson GEIR H. Haarde fjármálaráðherra segir að túlkun Alþýðusambandsins á þeim skattbreytingum sem fyrirhug- aðar séu sé ekki sanngjöm. Rílris- valdið hafi ekki vald á skattbreyting- um sveitarfélaganna nema að litlu leyti og geti ekki ábyrgst annað en það sem það ráði yfir. „Það sem við höfum gert hér er að rýmka álagningarheimildir sveitarfé- laganna að því er varðar útsvarið og ég bendi á að það era margir þeirrar skoðunar að það eigi að rýmka þessar heimildir mjög veralega, fara kannski upp í 15% eða eitthvað slíkt, en þá er það auðvitað alfarið á valdi sveitarstjómarmanna hvemig slíkar heimildir yrðu notaðar,“ sagði Geir. Hann sagði að það væri ekkert óeðlilegt við það, en ekki væri hægt að kenna rOrisvaldinu um hvemig farið væri með slíkar heimildir, enda væra það líka kjörnir fulltrúar sem færa með þær. Geir sagði að í þessum útreikning- um ASÍ væri við það miðað að öll sveitarfélög hagnýti sér heimildina sem margt bendi til að verði raunin framan af. Engin viti hvað gerist árið 2002, en talað væri um þetta mál al- veg fram á árið 2003, vegna þess að kjarasamningurinn og yfirlýsing rík- isstjómarinnar næðu fram á það ár. Sáralitlar skattgreiðslur Geir benti jafnframt á að persónu- afslátturinn hefði verið hækkaður aukalega um 2,5% í apríl síðastliðn- um og ef horft væri til alls tímabilsins og miðað við hámarkshækkun útsvarsins þá hækkuðu skattleysis- mörkin um 12,6% frá 1999 til 2003, á meðan umsamin laun hækkuðu um 13,3%. Þetta væra 166 kr. í persónu- afslætti. „Jafnvel þótt hámarkshækkunin yrði nýtt eram við ekki að tala um nema sáralitlar upphæðir í skatt- greiðslu hjá fólki, þannig að mér finnst allt of mikið úr þessu gert. Þar við bætist náttúrlega að ríkissjóður hefur verið að grípa til annarra að- gerða umfram það sem talað var um í yfirlýsingunni frá í mars, til dæmis að því er varðar bamabætumar. Þar höfum við verið að veija umtalsvert meiri fjárhæðum en þá var talað um, sem kemur auðvitað fyrst og fremst tekjulægri hópunum til góða, bama- fólki sem hefiir þyngri framfærslu- byrði, svoleiðis að mér finnst þetta ekki sanngjöm gagnrýni að öllu leyti,“ sagði Geir ennfremur. Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins Hörmulegt ef forsendur kjarasamninga bresta ARI Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að af- leiðingar þess að forsendur kjara- samninga bresti verði hörmulegar fyrir allt þjóðfélagið og allir sem hlut eigi að máli verði að leggjast á eitt um að koma í veg fyrir það, en á blaðamannafundi Alþýðusambands íslands á þriðjudag, þar sem meðal annars vora gerðar athugasemdir við fyrirætlanir stjómvalda í út- svars- og skattamálum, kvaðst Hall- dór Bjömsson, varaforseti ASÍ, telja meiri líkur en minni á því að félög segðu upp samningum þegar til endurskoðunar kæmi í febrúar. Ari sagði að Samtökum atvinnu- lífsins fyndist að breytingar á verk- efnum milli ríkis og sveitarfélaga og tilfærsla á tekjustofnum af þeim sökum gæfu ekki tilefni til skatta- hækkana út af fyrir sig. „Við erum sammála Alþýðusam- bandinu um að skattahækkanir eða hækkanfr á opinberam gjaldskrám núna era ekki jákvætt innlegg inn í efnahagsumhverfið,“ sagði Ari. Hann bætti því við að hins vegar væri ekki í þeim forsendum kjara- samninga sem gengið hefði verið frá síðastliðið vor tekið á hugsanlegum skattahækkunum og því snerti þetta ekki samskipti Samtaka atvinnulífs- ins við verkalýðshreyfinguna með neinum beinum hætti. Samtök at- vinnulífsins hefðu ekki átt aðild að þeim samskiptum sem verið hefðu milli verkalýðshreyfingarinnar og ríkisvaldsins í aðdraganda kjara- samninga um þær forsendur sem þar hefðu verið lagðar, en þær hefðu vissulega átt sinn þátt í því að greiða fyrir gerð samninganna. „Við auðvitað vonumst til þess að það komi ekki til þess að forsendur samninganna bresti og viljum ekki gera því skóna nú að svo þurfi að fara, þvi eins og Halldór Bjömsson bendir á og kom fram í fréttaflutn- ingi af þessum fundi þá gætu afleið- ingamar af því verið hörmulegar fyrir alla,“ sagði Ari. Hann sagði að við hefðum tæki- færi til þess að koma í veg fyrir hrun í kaupmætti almennings eins og orðið hefði frá árslokum 1988 til 1990, þegar aðstæður hefðu að sumu leyti verið svipaðar og nú. Þá hefði kaupmáttur fallið um 20% á einu ári. „Við eigum tækifæri til að afstýra slíku ferli. Það er markmiðið og ég vona að okkur takist það,“ sagði Ari. Fyrirtækin í sömu stöðu Hann bætti því við að að fyrir- tækin væra í nákvæmlega sömu stöðu og allur almenningur að því leyti að sú almenna óhagfellda þró- un sem ASÍ vísaði til, til dæmis hvað varðaði lækkun gengis og verðbólgu, kæmi með fullum þunga niður á, starfsskilyrðum fyrirtækj- anna, eins og sæist glöggt á árs- hlutauppgjöram þefrra og muni koma enn betur í ljós þegar afkoma ársins liggi fyrir í heild. Versnandi rekstrarafkoma fyrirtækja gefi síst tilefni til þess að ætla að meira svigrúm sé til launahækkana en áð- ur hafi verið talið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.