Morgunblaðið - 30.11.2000, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2000 39
LISTIR
ALLT TIL RAFHITUNAR
Frá opnun sýningar Kristínar í Nordic Heritage Museum í Seattle 3.
október sl. F.v.: Kristín, Jón Marvin Jónsson, ræðismaður Islands í
Seattle, og kona hans Joanne.
Kristín
Jónsdóttir
sýnir í
Seattle
UM þessar mundir er að ljúka
sýningu á verkum Kristínar Jóns-
dóttur frá Munkaþverá í Nordic
Heritage Museum (Norræna safn-
inu) í Seattle, Washington.
Sýningin sem er í boði safnsins
var opnuð 3. október sl. Á sýning-
unni eru 9 verk, gerð með mis-
munandi aðferðum, úr ull, papjn'r,
bleki, olíukrít, plexigleri o.fl. I
flestum verkanna notar Kristín
skrifaðan texta.
Tvö verk eru sérstaklega gerð
fyrir þessa sýningu, en í þeim er
skírskotun til vesturferða Islend-
inga á 19. öld. í sýningarskrá
skrifar Aðalsteinn Ingólfsson list-
fræðingur og forstöðumaður
Hönnunarsafns Islands um verk
Kristínar.
Kristín hefur haldið 10 einka-
sýningar á Islandi og tekið þátt í
fjölmörgum samsýningum hér
heima og erlendis.
Hún tekur þátt í sýningunni A
scandinavian sensibilty sem
stendur yfir í North Dakota Mus-
eum of Árts í Grand Forks. Á
þeirri sýningu eru verk eftir 15
listamenn frá Norðurlöndum og
er Kristúi eini þátttakandinn frá
Islandi. Sýningarstjórar eru
Rhonda Brown og Tom Grotta frá
Connecticut og völdu þau þátttak-
endur, en sýningin var fyrst í
Wilton í Connecticut í ágúst-
september sl.
Sýningunni í Norð Dakota Mus-
eum of Arts lýkur í janúar.
N^jar bækur
• ÚT er komin ljóðabókin Fingur-
koss eftir Kristrúnu Guðmundsdótt-
ur. í fréttatilkyninngu segir: „Fing-
urkoss hlaut
viðurkenningu
dómnefndar í
samkeppni um
Bókmenntaverð-
laun Tómasar
Guðmundssonar
árið 2000.
Kristrún Guð-
mundsdóttir er
fædd í Keflavík
árið 1953 og er
Fingurkoss önn-
ur ljóðabók hennar. Ljóðabókin
Hugfró kom út árið 1996 undir gælu-
nafni höfundar (Rúna Guðmunds-
dóttir). Kristrún hlaut þriðju verð-
laun í alþjóðlegri ljóðasamkeppni í
Bandaríkjunum árið 1999. Síðastlið-
ið sumar var Kristrún gestur á ljóða-
hátíð í Washington DC og hlaut góð-
ar viðtökur fyrir ljóð sín.
Á næsta ári munu birtast nokkur
ljóð eftir Kristrúnu í safnritinu
„Nature’s Echoes" gefið út af Libr-
aryof Congress."
Höfundurgefur bókina út sjálfur.
Bókin er 56 bls. Mynd á kápu er eftir
Valgarð Gunnarsson. Hagprent sá
um prentun. Bókin fæstíbókabúð
Máls og menningar v/Laugaveg og
Bókabúðinni v/Hlemm. Verð: 1.790
krónur.
• ÚT er komin bókin Úr sól og
eldi - leiðin frá Kamp Knox, en
það er saga Rögnu Bachmann sem
víða hefur
komið við á
lífsleið sinni.
Oddný Sen er
höfundur bók-
arinnar.
I kynningu
forlagsins seg-
ir: „Úr sól og
eldi er í senn
saga heims-
konu og
hvunndags-
hetju. Ung kvaddi Ragna Bach-
mann æskuslóðir sínar í Vestur-
bænum með erfiða reynslu að baki
og hélt út í heim. I Svasílandi og á
Sri Lanka, á Jótlandi og í Jóhann-
esarborg, í Belgíu og Botsvana, í
Reykjavík og víðar hefur hún
kjmnst spennu hins ljúfa lífs, ratað
í ótrúlegar raunir en jafnframt
fundið dýpstu gleði. I bókinni er
einnig fjallað um félagslegar og
sálfræðilegar meinsemdir sem legið
hafa í þagnargildi."
Útgefandi er Iðunn. Bókin er 238
bls. og prentuð í Prisma Prentbæ.
Leiðbeinandi verð: 3.980 krónur.
• ÚT er komin bókin Sólveiga
saga eftir Elínu Ólafsdóttur.
Hvað beið fátækrar fjölskyldu á
kotbýli sem missti fyrirvinnu sína
fyrir 200 árum?
I Sólveiga sögu er rakin ævi
þriggja kvenna á 18. og 19. öld
sem allar báru nafnið Sólveig og
voru auk þess mæðgur. AUar
fæddust þær í Laxárdal í Dala-
sýslu en vegir lágu víða í leit að
lífsbrauðinu.
Fortíðin er hlaðin andlitum,
nafnlausum alþýðukonum og -körl-
um, formæðrum og forfeðrum sem
saman skópu ásjónu þjóðarinnar.
Þeirra er sjaldan getið í heimild-
um enda lítt vitað um líf þeirra.
En þeim tókst að þrauka, þess
vegna erum við hér.
Sólveiga sögu er ætlað að varpa
ljósi á líf íslenskra alþýðukvenna
og það, hvernig smám saman
greiddist úr högum þeirra þegar
kom fram yfir miðja 19. öldina.
Einlægur áhugi á lífshlaupi og
lífskjörum alþýðukvenna endur-
speglast í verkinu. Höfundurinn
gerir sér far um að setja sig inn í
aðstæður, líf og langanir þessara
kvenna og skila til kynslóðar okk-
ar. Hér skrifar móðir um mæður,
kona um konur.
Útgefandi er Skjaldborg ehf.
Bókin er 252 bls. Verð: 3.480
krónur.
Kristrún
Guðraundsdóttir
L-í.ælLu.L'í25-Lt liQeLixÆoíVrL'e.
á.Ll SárLctlL'e. 3.0 £ t£rL'e. 3
framkvæmd af fagaðilum!
“POWER-PEEL" húðmeðferðin lagfærir
ýmis húðlýti, td. háræðaslít, ör eftír
bólur, áverka og aðgerðlr, húðsitt,
öldrunarbletti, fínar hrukkur o.m.fl.
Fyrlr Eftlr
HÖFUM OPNAÐ
“Mekka húðarinnar”
f Kringlunni, 3. hæð
20%
kynningarafsláttur
af húðmeðferd og
ýmsum húðkremum
framlengdur til
10, des, 2000
Krfnglunni 8-12,3. hæð 8.588 0909
Opnum helmasiðu 1. de«: wwwJiudnyung.ls
Pyrir biuðli - siUðilis - %ririrsib“
ELFA-OSO hitakútar og túbur
Ryðfríir kútar með áratuga frábæra reynslu.
Stærðir á lager: 30—50—80—120—200 og
300 lítra.
Getum útvegað stærðirfrá 400—1.000 lítra.
Blöndunar-, öryggis- og aftöppunarlokar
fylgja.
Ennfremur bjóðum við hitatúbur frá 6—1200
kW og elektróníska vatnshitara fyrir vaska og
handþvott.
ELFA-VOSAB olíufylltir ofnar
Fallegir, einstaklega jafn og þægilegur hiti,
engin rykmengun, lágur yfirborðshiti.
Thermostatstýrðir. Kapall og kló fylgja.
,| Stærðir á lager: 400—750—800 og 1.000 W.
| Hæð: 30 eða 60 sm.
Getum einnig útvegað tvöfalda ofna.
HAGSTÆTT
VERÐ!
Einar
Farestvett & Co. hf.
Borgartúni 28, ® 562 2901
Nisscin
Terrono II
Nýskr. 6/1999, 2400cc vél,
5 dyra, 5 gíra, hvítur,
ekinn 42. þ
^^^Verð 1.980 þ,
Grjótholsi l ^
Sími 575 1230/OO^^HMnHBHflM
mora
B^HRTSTPRTI.! IM
Ný hönnun frá Mora, MORATEMP kemur skemmtilega á óvart
T€Í1GI
Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur
Sími: 5641088 • Fax: 5641089 • tengi.is