Morgunblaðið - 30.11.2000, Blaðsíða 76
76 FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLKí FRÉTTUM
MYNDBÖND
A slóð
djöfulsins
Níunda hliðið
(The Ninth Gate)
S p e n n ii m y n d
★★
Leikstjóri: Roman Polanski. Hand-
rit: Brownjohn, Urbizu og Polanski.
Aðalhlutverk: Johnny Depp, Lena
Olin, Frank Langella. (133 nn'n)
•Frakkland/Spánn,1999. Sam mynd-
bönd. Bönnuð innan 16 ára.
J o II N N V I) í: p p
V«tli ( jate
NÍUNDA hliðið mætti helst skil-
greina sem sataníska spæjaramynd,
en hún er byggð á hinni óvenjulegu
spennusögu Arturo Pérez-Reverte,
The Club Dumas. Það er einkar vel
heppnuð og hug-
myndarík saga sem
skilar sér ekki
nema að hluta í
kvikmynd Polansk-
is. Myndin fjallar
um bókaspæjara,
sem tekur að sér að
leita uppi sjaldgæf-
ar og verðmætar
fornbækur. Sá
flækist inn í leynimakk djöfladýrk-
enda í leit sinni að særingarkveri
sem talið er geta vakið upp satan
sjálfan. Myndin er vel gerð og góð
tilbreyting er í henni en hún er held-
ur óræð sökum þess hvemig unnið er
úr sögunni. Leikur Johnny Depps er
stórgóður, hann á vel heima í þessu
heimsborgaralega refshlutverki,
enda er hann ekki í vandræðum með
að bregða fyrir sig frönskunhi þegar
leikurinn berst til Frakkiands. Þótt
»Jtoman Polanski hafi verið í nokkurri
lægð í sinni kvikmyndagerð undan-
farin ár, er alltaf eitthvað áhugavert
við myndir hans og það er tilfellið
með Níunda hliðið.
Heiða Jóhannsdóttir
Poppari á
rangri hillu
Heiðarleiki
(Honest)
fíaman/spenna
★%
Leikstjóri David A. Stewart. Hand-
. rit Diek Clement, Ian La Frenais.
* Aðalhlutverk Melanie Blatt, Nicole
og Natalie Appleton. (110 mín.)
England 2000. Góðar stundir.
Bönnuð innan 12 ára.
ÞIÐ sem vel eruð að ykkur í popp-
fræðimum gátuð ykkur rétt til um þá
sem að myndinni standa. Jú leikstjór-
inn Stewart er einmitt sá hinn sami og
er annar helmingur
dúettsins Eurythm-
ics og jú stúlkumar
sem leika aðalhlut-
verkin eru þrír
íjórðu stúlkusveit-
arinnar vinsælu All
Saints. Stewarthef-
ur komið víða við á
löngum ferli og
sumt gengið upp annað ekki og fellur
þessi nýjasta iðja hans 1 síðamefnda
flokkinn, svo mikið er víst. Maður veit
eiginlega ekki hvað vakti fyrir kauða;
hvort hann hafi ætlað að gera „All
Saints-mynd“, poppmynd sem væri
svar við mynd erkifjendanna Spice
Girls, hvort hér er á ferð einhver
„nostalklígja", endurminningar hans
frá æskuárum sjöunda áratugarins
eða þá hvort hann hafi verið að reyna
að gera „alvöru“ Lundúnakrimma
,eins og nú eru í tísku. Myndin fjallar í
grófum dráttum, að ég held, um þijá
þjófa, nokkurs konar kvenskyttur,
sem fara um undirheima Lundúna og
ræna óprúttna milla. Það verður vafa-
laust erfitt fyrir Stewart að finna
borgunarmenn fyrir næstu mynd
sinni en dýrðlingamir þrír gætu hins-
vegar alveg plummað sig.
Skarphéðinn Guðmundsson
Við verðum fullveldisklíkan
Ásmundur Ásmunds-
son, Gabríela Frið-
riksdóttir, Anna Júlía
Friðbjörnsdóttir og
Særún Stefánsdóttir
eiga öll verk á sýning-
unni Fullveldi.
Unnar Jónasson spjall-
aði við þau um sýning-
una og fullveldið.
Eruþiðsvona listaklíka?
Ásmundur: „Nei! En vonandi
breytist það með þessari sýningu.
Við verðum fullveldisklíkan."
Gabríela: „Það er eitt orð sem ég á
alltaf mjög erfitt með að skilja í
þessu öllu. Ég segi það stundum, það
er næmi.“
Það segja nú allir að þetta sé fal-
legt safn. Finnstykkur það?
G: „Mér finnst allt of lágt til lofts
þarna niðri.“
Á: „Og of hátt til lofts þama uppi.
Særán: já, þetta er algjört klikk.
En þið eru ánægð meðþetta?
Allir: „Jájájá."
Þjóðlegt og svo framvegis
Er eitthvað þjóðlegt á þessari sýn-
ingu?
Anna Júlía: „Mitt framlag er nú
kannski eitthvað soldið þjóðlegt.“
G: „Það er ömgglega þjóðlegt stef
í þessu öllu, ef maður er gæddur
mikilli næmi þá sér maður það, ann-
Morgunblaðið/Þorkell
Gabríela, Ásmundur, Særún og Anna Júlía eru í fullveldisklíku ungu kynslóðarinnar í myndlistinni í dag.
ars er ég aðallega að fjalla um „fig-
uratífuna“, natúralismann og róm-
antíkina.“
Á: „Ég er ekkert að fjalla um
neitt! Þetta em meira svona
ákveðnar alþýðustemmningar og
svolítið félagsraunsæi hjá mér.“
G: „Er þetta ekki líka svolítil róm-
antík og táknsæisstefna hjá þér?
Með Medúsu."
Á: „Ég veit samt ekki hvort ég
verð með Medúsu.“
G: „Mér finnst eiginlega að þú
verðir að vera með hana annars
verður þetta allt eitthvað svo spítala-
legt.“ ,
Á: „Eg verð líka með Landa. Ann-
ars er rosalega mikið af ljósmyndum
á þessari sýningu.“
S: „Þetta verður svolítið mikið
svoleiðis.“
G: „Ljósmyndin kemur sterkt inn
og veður yfir rýmisverkin.“
Á: „Tekur alla athyglina.“
Er einhver með innísetningu?
G: „Ég verð með „installation“.“
Á: „Ég líka.“
S: „Gjörningaklúbburinn verður
líka með innísetningu."
Verða þær ekki með gjörning?
A: „Þær verða með lifandi dýr!“
S: „Ég verð með myndir og hluti
og svo verður eitthvað óvænt líka,
svona tæknipönk."
Ljóðrænt pönk
Er eitthvað pönk í þessu hjá ykk-
ur?
G: „Þetta verður falleg ljóðræn
sýning!“
Á: „Það verða nú einhverjar kyn-
færamyndir held ég.“
A: „Svo verður fólk í sleik.“
G: „En þetta telst nú ekki lengur
til neins nema bara ljóðrænu."
Á: „Ég verð með svona pönk og
svolitla klassík líka og reggae."
G: ,Annars heyrði ég nú í ein-
hverjum hljómaveitargaumm í
morgun, Mínus held ég. Þeir vora að
segja að það væm allir einhvem veg-
inn svo sáttir, segðu bara: „Já, er það
ekki bara fínt?“. Að það væri allt í
lagi að gera allt núna. Þetta er alveg
rétt. Það er allt bara hundleiðinlegt
og allir bara æðislega glaðir. Þetta
ár er búið að vera algjört vesen.“
Sýningin Fullveldi verður opnuð í Gerðarsafni 1. desember
Ollu gamni fylgir
nokkur alvara
Á MORGUN 1. desember kl. 17:00
verður opnuð í Gerðarsafni í Kópa-
vogi sýningin Fullveldi, sem er
samsýning ungra myndlistar-
manna og er styrkt af Búnaðar-
bankanum í tilefni af 70 ára af-
mæli bankans á þessu ári.
Guðbjörg Kristjánsdóttir er sýn-
ingarstjóri og ritar einnig inngang
í sýningarskrá en þar segir hún
um sýninguna: „Nafngift sýningar-
innar, „Fullveldi", vísar ekki ein-
göngu til Fullveldisdagsins heldur
lfka þess að í hugum Islendinga
hefur fullveldi löngum verið lagt
að jöfnu við menningarlegt sjálf-
stæði."
Þátttakendur í sýningunni em
annað hvort ellefu eða fjórtán eftir
því hvemig á það er litið vegna
þess að fjórar listakonur í hópnum
hafa með sér nána samvinnu og
koma fram sem cinn sýnandi undir
nafninu Gjörningaklúbburinn - á
ensku The Icelandic Love Corpor-
ation. Þetta em þær Dóra Isleifs-
dóttir, Eirún Sigurðardóttir, Jóní
Jónsdóttir og Sigrún Hrólfsdóttir.
Aðrir listamenn sem valist hafa á
sýninguna eru: Anna Júlfa Frið-
bjömsdóttir, Ásmundur Ásmunds-
son, Egill Sæbjörasson, Gabriela
Friðriksdóttir, Hekla Dögg Jóns-
dóttir, Hrafnhildur Arnardóttir,
Sara Bjömsdóttir, Stephan Steph-
ensen, Særún Stefánsdóttir og Ulf-
ur Gronvold.
íslensk menning
og mannleg samskipti
Guðbjörg segir að unga kynslóð-
in á Fullveldissýningunni vinni f
mörgum miðlum samtfmis, geri
ljósmyndir, skjálist, tölvuverk og
innsetningar en grípi einnig til
hefðbundari aðferða svo sem að
búa til þrívíða hluti, teikna og
mála. Enginn þeirra kannist við að
fylgja einhverri ákveðinni stefnu í
myndlist og hver og einn vinni
fremur eftir innsæi og tilfinningu.
Yerk þátttakendanna fjalla öðru
fremur um Island og íslenskar að-
stæður; æskustöðvaraar, árs-
tíðimar, birtustemningar og smá-
atriði í landslagi. íslensk menning,
mannleg samskipti og tilflnningar
koma líka mikið við sögu f verkun-
um.
Guðbjörg skýrir nánar: „Á þeim
vettvangi lftur unga kynslóðin sér
nær og hugleiðir hlutverk og/eða
hlutskipti Iistamannsins, stöðu
myndlistarinnar í þjóðfélaginu,
listaverkasölu og listaverkamark-
aðinn. Þær ímyndir sem auglýs-
ingaheimurinn býr til og sýndar-
veruleikinn sem fjöl- og
margmiðlunin skapa, þar sem hið
óraunverulega verður oft raun-
verulegra en raunveruleikinn sjálf-
ur, er einnig tekið til umfjöllunar.
Þá reynast klisjur og merkingar-
leysi ungu kynslóðinni fijór eíhi-
viður. Það er ögrun að taka fyrir
eitthvað hallærislegt eða óþolandi
og láta reyna á það hvort hægt sé
að finna á því einhverja nýja vídd
og gera það áhugavert."
Guðbjörg segir hugarfar ungu
kynslóðarinnar hafa breyst all
verulega í garð íslenskrar mynd-
listar. Nú sé komin „þreyta og leið-
indi f hátfðleikann" sem ríkt hafi
hingað til og ekki sé lengur f tfsku
að vera háalvarlegur heimspeking-
ur: „Ungir myndlistarmenn hafa
margir hveijir lúmskt gaman af
því að stríða áhorfandanum og
draga hann á asnaeyrunum með
óljósuin skilaboðum. Unga kynslóð-
in tjáir sig með leik og skemmtun
og myndlistarsýningar eru teknar
að minna á skemmtisamkomur þar
sem almenningi gefst kostur á að
hlæja að fyndnum verkum. En öllu
gamni fylgir nokkur alvara, segir
máltækið. Það er ekkert sem segir
að í fyndnum verkum fyrirfinnist
ekki alvarlegur undirtónn og það
er vel hægt að fjalla um erfiða
hluti með húmor.“
Arekstur í
Hinu húsinu
UM SÍÐUSTU helgi var opnuð í
Galleríi Geysi í Hinu húsinu sýningin
Arekstur. Það em tveir listamenn
sem rekast á í galleríinu en það em
þær Chlöe McKay og Kyja Christi-
anson. Kyja leggur stund á kvik-
myndagerð við háskólann í Minnes-
ota og sýnir í galleríinu fmmraun
sína, The FUP is forming, en FUP
er skammstöfun fyrir „fat upper
pussy“. Kvikmyndin er um kvenleika
og kynhlutverk en einnig um getnað
og meðgöngu sem tískufyrirbrigði.
Chlöe leggur stund á nám í list og
bókmenntum við háskólann í Iowa.
Verk hennar og samstarfsfólks
hennar vom sett upp í samkvæmi í
Iowa-borg í apríl síðastliðnum. Þar
vom ljósmyndir, myndbandalist,
innsetningar og gjömingar og vora
viðbrögð við sýningunni afar sterk.
Chlöe er alltaf á réttum stað á rétt-
um tíma, með myndavélina sína til-
búna.
„Lífið í kringum mig er listamað-
urinn, ég mynda það bara,“ segir
hún um ljósmyndirnar sínar. Shaun
Frenté sambýlismaður Chlöe skrifar
titlana við polaroid-myndirnar á sýn-
ingunni en Shaun hefur starfað bæði
sem þjónn, barþjónn, við líkgröft og í
erótískri símaþjónustu. Núna kennir
hann kvikmyndagagnrýni og er að
skrifa sína fyrstu skáldsögu.
Sýningin er opin til og með 12.
desember og er opin virka daga frá
kl. 9:00-17:00 en á laugardögum frá
kl. 14:00-16:00.
Morgunblaðið/Ásdís
Chlöe við polaroid myndirnar sfnar en Kyja var fjarri góðu gamni.