Morgunblaðið - 30.11.2000, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2000 41
LISTIR
Draumar
MYJVDLIST
Listhús Rcykjavík
málverk-
REYNIR KATRÍNAR
Opið virka daga kl. 13-18, laugar-
daga 11-17, sunnudaga 14-17. Til
3. desember. Aðgangur ókeypis.
LÍFSPEKI Reynis Katrínar, sem
sýnir 14 málverk í Listhús Reykja-
vik, tengist hinu fjarræna og yfir-
skilvitlega, tilvitnanir hans ljóðræn-
ar eða skara öfugmæli; „lausnin á
lífinu er að búa sér til góða fortíð". A
þann veg hefur gerandinn enda-
skipti á hlutunum, öllu oftar óska
menn sér og sínum góðrar framtíðar
og langra lífdaga og slíkt tengja þeir
ekki fortíðinni. Það er þó viss dýpt í
þessum fi'amslætti, hann skal ekki
misskilinn og varast að sporðrenna
honum umhugsunarlaust; ef heim-
urinn er óendanlegur þá er ekki gott
að segja hvorum megin við erum, í
fortíð eða framtíð, né óyggjandi til
um hvað lífið sé í raunsönnu eðli
sínu. Allt hlýtur að eiga sér upphaf
svona líkt og útvarpsbylgjm-nar,
sem sagt er að haldi áfram í það
endalausa eftir að þær eru einu sinni
komnar af stað. Kannski hættulegt
fyrir manninn í ófullkomleika sínum
að hugsa of mikið um þessa hluti,
hyggjuvit hans takmarkað, og þótt
honum finnist til að mynda sjón sín
fullkomin sér hann margfalt verr
sumum sköpum almættisins, svo
sem uglunni sem sagt er að sjái 60
sinnum betur. Framslátturinn, að
búa sér til góða fortíð, getur allt eins
átt við að skila arfinum með sóma til
niðja sinna, en hér má víst síður tala
upphátt í heimi taumlausrar græðgi
er svo er komið.
Tilvistin er þannig inntak fyrstu
einkasýningar Reynis Katrínar,
ekki líisþjáningin heldur draumur-
inn, fegurðin, ljóðið, kærleikurinn,
ástin, og í slíkum heimi er hið illa og
dauðinn helst ekki tíl. Nafngiftir
myndverkanna yfirmáta ljóðrænar
en torráðnar, oftar en ekki á skjön
við innhaldið, eins konar örsögur og
framhald ferlisins.
Reynir nam í málunardeild MHI
1976-1980, var í einkanámi í málun
og leirlist í Nesodden og Osló 1983-
85 og loks fóðrunarskóla NoName á
þessu ári. Litir hans, hráir, sterkir
og gæddir ríkri en grunnfærðri
skreytikennd, í þeim og viðfanginu
ekki svo lítil vísun til hins upphafna
og háa. Kannski eru stjömumar
fuglar sem em svo afskaplega fal-
legir að þeir breytast í Ijós. Mynd-
verkin afhjúpa mikla einlægni og
þrá til sköpunar, en einnig takmark-
aðan metnað til að takast á við hin
óvægu lögmál lita, forma, tíma og
rými á myndfleti. Yfirdrifin frásögn-
in verður aðalatriði, hin beina og
sýnilega frásögn, en um leið hættir
tilhneigingin til hins skreytikennda
að bera myndmálið ofurliði...
Kynningarskráin er skrautleg og
hefur svip af auglýsingabæklingi, en
hvorki er sagt frá í hvaða miðli
myndverkin em gerð í sérprentuð-
um einblöðungi, né því síður hvenær
máluð, þetta em þó tvö frumatriði
allra framkvæmda á sýningavett-
vangi í heimi hér.
„Horfur“
VATNSLITAMYNDIR -
KRISTÍN
ÞORKELSDÓTTIR
FYRRUM grafíski hönnuðurinn,
en nú málarinn Kristín Þorkelsdótt-
Ein af myndum Kristínar Þorkelsdóttur í Listhúsi Reykjavík.
Lausnin í lífinu er að búa sér til góða fortíð.
ir, fer geyst í myndsköpun sinni og
vatnslitamyndir hennar einkennast
af sífellt hraðaii meðhöndlun pent-
skúfsins, um leið sjálfsprottnari
tjáningu augnablikshrifa. A stutt-
sýningu smámynda í Listhús
Reykjavík, kynnir Kristín 33 verk,
sem em dæmigerð fyrir þessi vinnu-
brögð. Myndefnin hefur hún sótt til
Snæfellsness, Þingvalla, Reykja-
ness og Lakagíga og nefnir framn-
inginn Horfur, einnig; Dægur í lífi
okkar Herðubreiðar. Það em svo
einmitt Herðubreiðarmyndimar
sem hafa vinninginn á þessari sam-
antekt, einkum „Hennar hátign“
(29) og „Herðubreið“ (32 og 33). í
þeim öllum hefur listakonunni tekist
að höndla augnabliksstemmu sem
liggur öðmm
form- og litrænt
þéttar á mynd-
fletinum, en ann-
árs em þetta
lausar, léttar,
vatnsmiklar og
gagnsæjar pens-
ilstrokur sem
eins og bregða á
leik um mynd-
flötinn, þannig
að rétt greinir í
þekkjanleg við-
föng. Leikurinn
með áhrifabrögð
fingrafiminnar á
fullu, eða það
sem við málar-
amir nefnum effektaleik, en síður
farið að myndefnunun með ró og yf-
irvegan, liturinn þá látinn renna nið-
ur flötinn og samlagast honum sem
era helstu töfrar vatnslitamálunai'.
Tm-ner, Nolde og okkar eigin Ás-
grímur vora hér meistaramir. Auð-
vitað margur hátturinn að nálgast
vatnslitinn, en laufléttir og glæsileg-
ir áhrifataktar em ekki það sem að
mínu mati dregur fram bestu eigin-
leika þeirra. Það er líka svo að Krist-
ín nálgast á stundum mun metnað-
arfyllri heillegri og safaríkari hliðar
vatnslitanna en hér getur að líta, og
verður að líta svo á að þetta sé hlið-
arspor, nokkurs konar tilfæringar í
skyndi...
Bragi Asgeirsson
Nýjar plötur
• UT er komin
geislaplatan
Slátta sem inni-
heldur fjögur tón-
verk eftir Jór-
unni Viðar.
Verkin á plöt-
unni em: Slátta,
konsert fyrir pí-
anó og hljóm-
sveit. Flytjendur
eru Steinunn Birna Ragnarsdóttir,
píanó og Sinfóníuhljómsveit Islands,
stjómandi: Petter Sundquist.
Tilbrigði um íslenskt þjóðlag fyrir
selló og píanó. Flytjendur em Lov-
ísa Fjeldsted, selló, og Steinunn
Birna Ragnarsdóttir, píanó.
Hugleiðingar um fimm gamlar
stemmur fyrir píanó. Flytjandi er
Valgerður Andrésdóttir, píanó.
íslensk svíta fyrir fiðlu og píanó.
Flytjendur em Laufey Sigurðar-
dóttir, fiðla, og Selma Guðmunds-
dóttir píanó.
Útgefandi er Smekkleysa.
-----------------
Frumsýningu
frestað
TIL stóð að fmmsýna leikritið ,Á
sama tíma síðar“ nú í nóvember en
sem kunnugt er, þá er það sjálfstætt
framhald af leikritinu „Á sama tíma
að ári“ sem sýnt hefur verið í Loft-
kastalanum á vegum Leikfélags ís-
lands.
I fréttatilkynningu frá Leikfélagi
íslands segir að ákveðið hafi verið að
fresta frumsýningu á nýja leikritinu
til 28. desember vegna mikillar að-
sóknar að fyrra leikritinu.
www.mbl.is
Benvemito,
gardeur
stredson
LACOSTE
BELLINI
50 -70%
AFSLÁTTUR AF
MERKJAVÖRU
outlet
SÍMI 568 951 2 SUÐ URLANDSBRAUT 54 BLÁU HÚSIN VIÐ HLIÐINA Á TOPPSKÖR