Morgunblaðið - 30.11.2000, Blaðsíða 64
64 FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Staðardagskrá 21 -
þátttaka borgarbúa
ÁRIÐ 1997 gerðist
Reykjavík aðili að Ála-
borgarsamþykktinni
um Staðardagskrá 21.
Álaborgarsamþykktin
gekk út á að færa
Ríósamþykktina um
Dagskrá 21 á
stjórnsýslustig sveitar-
félaga. Lykilhugtakið
• að baki Dagskrá 21 og
Staðardagskrá 21 er
„sjálfbær þróun“ og er
þar átt við þróun sem
eykur lífsgæði en geng-
ur ekki á höfuðstól
náttúruauðlindanna.
Senn líður að lokum
þeirrar miklu undir-
búningsvinnu sem íram hefur farið á
vegum Reykjavíkurborgar vegna
þátttöku hennar i Staðardagskrá 21.
Umhverfís- og heilbrigðisnefnd
Reykjavíkur hefur unnið þarft verk í
samvinnu við embættismenn, stofn-
anir o.fl. Á næstu vikum og mánuð-
um verður lokahönd lögð á texta
dagskrárinnar og hún mun síðan
*Amerísku heilsudýmirnar
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
Skipholtí 35 • Simi: 588-1955
öðlast sinn sess í
stjórnsýslu borgarinn-
ar.
Virkt lýðræði
Við vinnu Staðardag-
skrár 21 hefur verið
kappkostað að dag-
skráin endurspegli
vilja borgarbúa sjálfra.
Forkönnun fór fram á
meðal borgarbúa um
áherslur í umhverfis-
málum og mynduðu
niðurstöður þeirra
frumdrætti dagskrár-
innar. Þann 22. nóvem-
ber síðastliðinn var síð-
an haldinn borgar-
fundur í Ráðhúsinu þar sem
borgarbúar gátu kynnt sér vinnuna
og komið athugasemdum sínum á
framfæri. Frumdrög Staðardag-
skrár 21 liggja nú fyrir og má nálg-
ast þau á heimasíðu Reykjavíkur-
borgar, www.rvk.is eða í Ráðhúsinu.
Fram til 5. desember gefst borgar-
búum færi á að taka enn frekari þátt
í þessari vinnu með því að senda at-
hugasemdir sínar á netfangið
dagskra21@rvk.is og verður tekið
fullt tillit til allra athugasemda við
lokafrágang dagskrárinnar. Ferli
þetta er liður í stefnu Reykjavíkur-
listans um að auka hlutdeild borgar-
búa í stefnumótun borgarinnar, með
virku lýðræði. Frestur til athuga-
semda rennur út þann 5. desember
og því ekki ráð nema í tíma sé tekið.
Aukin umhverfisvitund
Á síðustu árum hafa Islendingar
orðið æ meðvitaðri um hversu mikil-
vægt er að ganga varlega um nátt-
úru landsins og sinna umhverfismál-
Umhverfi
s
Eg hvet alla borgarbúa
til að kynna sér vinnuna
á heimasíðu Reykjavík-
urborgar, segir Kol-
beinn Ottarsson
Proppé, og senda at-
hugasemdir á netfangið
dagskra21 @rvk.is.
um af kostgæfni. í starfi mínu í
Umhverfis- og heilbrigðisnefnd
Reykjavíkur hef ég orðið þeii-rar
ánægju aðnjótandi að verða vitni að
þessari hugarfarsbreytingu. Hvort
sem um er að ræða einstaklinga,
fyritæki eða stofnanir, sést þessi
aukna umhverfisvitund berlega.
Staðardagskrá 21 er einn liður í
þessari vitund. Sú vinna sem þar hef-
ur farið fram mun verða borgarbú-
um leiðarhnoða í umhverfismálum
um ókomna tíð. Þeirri vinnu líkur
aldrei. Hún helgast m.a. af aukinni
þátttöku borgarbúa í umhverfismál-
um, betri umgengni við borgina og
þeirri vissu að við eigum landið ekki,
heldur höfum það aðeins að láni. Ég
hvet alla borgarbúa til þess að segja
skoðun sína á þeirri stefnumótunar-
vinnu sem fram hefur farið í undan-
genginni vinnu. Staðardagskrá 21
heppnast aðeins ef borgarbúar taka
fullan þátt í henni.
Hiii'undur er fulltnii i Umh verfis- og
heilbrigðisnefnd Reykjnvíkur.
Dagur rukkar
óumbeðna áskrift
HÁTTVÍSI, skilvísi
eru einkunnarorð inn-
heimtudeildar Intrum
sem fyrir hönd útgef-
anda dagblaðsins Dags
sendir undirrituðum
innheimtubréf í vik-
unni. Meint vanskil eru
vegna áskriftar að
Degi, eða svo segir í
bréfinu.
Meinið er að aldrei
var um neina áskrift að
ræða.
Undirritaður var
starfsmaður Viku-
blaðsins, sem Alþýðu-
bandalagið gaf út, og
fékk blaðið sent heim á
sínum tíma. Eftir að hann hætti var
blaðið selt útgáfufélagi Dags og
endrum og sinnum eftir það kom
Utgáfa
Gamlir áskrifendur að
Vikublaðinu, segir Páll
Vilhjálmsson, eiga ekki
að fá hótunarbréf frá út-
gáfu sem starfar á allt
öðrum forsendum.
Dagur inn um póstlúguna óumbeð-
inn.
Engin ástæða væri að fjalla um
þetta lítilræði ef ekki væri rökstudd-
ur grunur um að fólk er þessa dagana
að fá innheimtubréf vegna þess að í
gamla daga var það áskrifandi að
Þjóðviljanum.
Þannig var að Vikublaðið, sem hóf
útgáfu í byrjun ára-
tugarins, fór í áskrifta-
lista Þjóðviljans til að
byggja upp eigin
áskrifendahóp. Viku-
blaðið var sent út sam-
kvæmt þessum lista í
þeirri von að gamlir ies-
endur Þjóðviljans létu
til leiðast að taka upp
áskrift að Vikublaðinu.
Sumir gerðu það og
greiddu gíróseðla sem
sendir voru í kjölfarið á
meðan aðrir afþökkuðu.
Enn aðrir gerðu hvor-
ugt en fengu samt
Vikublaðið sent heim.
Flokksblöð eins og
Vikublaðið voru ekki rekin eins og
fyrirtæki. Ekki var farið í innheimtu-
aðgerðir gagnvart þeim sem skuld-
uðu áskrift. í tilfelli Vikublaðsins
hefði það líka verið óverjandi í ljósi
þess hvernig staðið var að áskrif-
endasöfnun í upphafi.
Þegar forysta Alþýðubandalagsins
seldi Vikublaðið og áskrifendalista
þess til útgáfufélags Dags hefði átt
fylgja með lítil nóta um að fara ætti
varfærnum höndum um listann og
hæpið væri að líta á þá sem sjálf-
sagða kaupendur annars blaðs. Ut-
gáfufélag Dags hefði sömuleiðis átt
að sýna þá háttvísi að fá samþykki
fyrrum áskrifenda Vikublaðsins íyrir
nýrri áskrift að öðni blaði.
Gamlir áskrifendur að Vikublað-
inu eiga vitanlega ekki skilið að fá
hótunarbréf frá útgáfu sem starfar á
allt öðrum forsendum en Vikublaðið
gerði. Þar fyrir utan eru engin laga-
rök fyrir því að innheimta áskrift
sem ekki var beðið um.
Höfundur var ritstjóri Vikublaðsins.
Páll
Vilhjálmsson