Morgunblaðið - 30.11.2000, Side 10

Morgunblaðið - 30.11.2000, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAFjIÐ FRÉTTIR Þrenn ný lög frá Alþingi Tekist á um frumvarp um tekjustofna sveitarfélaga PRJÚ frumvörp voru samþykkt sem lög frá Alþingi í gær. Frum- varp um vatnsveitur sveitarfélaga, frumvarp um veiðieftirlitsgjald og frumvarp um tekjustofna sveitar- félaga. Síðarnefnda frumvarpið var nýlega lagt fram á Alþingi og var samið í samræmi við tillögur svokallaðrar tekjustofnanefndar sem félagsmálaráðherra skipaði á síðasta ári til að endurskoða ákvæði laga um tekjustofna sveit- arfélaga. Var í frumvarpinu, sem nú er orðið að lögum, m.a. lagt til að heimild sveitarfélaga til útsvars- álagningar verði hækkuð í tveimur áföngum um samtals 0,995 til þess að mæta aukinni fjárþörf sveitar- félaganna og bæta fjárhagsstöðu þeirra. Einnig var í frumvarpinu lagt til að álagningarstofn fast- eignaskatts yrði miðaður við fast- eignamat til að tryggja að fast- eignaskattur reiknaðist af því sem næst raunvirði fasteignar. Þannig mætti jafna stöðu fasteigna- eigenda á landsbyggðinni og á höf- u ðborgar svæ ðinu. í umræðum um frumvarpið kom m.a. fram í máli stjórnarandstæð- inga að þeir styddu aðgerðir ríkis- stjórnarinnar sem miðuðust að því að tryggja sveitarfélögunum aukn- ar tekjur. Peir kváðust hins vegar ekki sáttir við leiðirnar til að ná því markmiði. í atkvæðagreiðslu um frumvarp- ið fyrir þriðju umræðu sagði Rannveig Guðmundsdóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, m.a. að Samfylkingin styddi tillögur um auknar tekjur til sveitarfélaganna enda hefðu þau með höndum mik- ilvæg og vaxandi verkefni. „Sam- fylkingin styður það einnig að fast- eignaskattar verði lækkaðir á íbúðareigendur á landsbygðinni en Samfylkingin telur það óviðunandi að sækja stærstan hluta tekju- aukningar sveitarfélaganna í vasa launafólks með hreinni hækkun út- svars. Samfylkingin hefur flutt um Morgunblaðið/Ásdís Rannveig Guðmundsdðttir, formaður þingflokks Samfylkingarinnar, var einn þeirra þingmanna sem gagn- rýndi frumvarp ríkisstjórnarinnar um tekjustofna sveitarfélaga. það tillögur að tekjuskattar ríkis- ins verði lækkaðir til jafns við auknar heimildir fyrir útsvari en fyrirliggjandi er neikvæð afstaða stjórnarliða til þeirra. í ljósi þessa mun Samfylkingin hvorki styðja megintillögu frumvarpsins né bera ábyrgð á því að stórfelldum skattahækkunum verði velt yfir á almennt launafólk á sama tíma og ríkisstjórnin er að lækka skatta á söluhagnað stórra fjármagnseig- enda.“ Óhjákvæmilegt að bæta afstöðu sveitarfélaganna Steingrímur J. Sigfússon, þing- ALÞINGI maður Vinstrihreyfingarinnar — græns framboðs, sagði einnig við þessa sömu atkvæðagreiðslu að óhjákvæmilegt væri að gera rót- tækar ráðstafanir til að bæta af- komu sveitarfélaganna. Hann taldi þó að í tillögum meirihlutans væri ekki nóg að gert. „En við (þing- menn Vinstri grænna) gagnrýnum ekki síður þá útfærslu sem ríkis- stjórnin hefur valið og þá einkum og sér í lagi það að hún noti þessar aðgerðir til þess að knýja fram skattahækkun," sagði hann. Guðjón A. Kristjánsson, þing- maður Frjálslynda flokksins, kvaðst á hinn bóginn myndu styðja umrætt frumvarp en tók fram að þingmenn flokksins myndu á móti styðja boðaða tillögu frá Samfylk- ingunni um að ríkið dragi úr skatt- heimtu á móti útsvarshækkunum. Alþingi fær 13 milljóna króna aukafj árveitingu Aukinn kostnaður vegna stærri kjördæma MEIRIHLUTI fjárlaganefndar Alþingis gerir tillögu um 13 millj- óna króna aukafjárveitingu til Al- þingis til að mæta auknum ferða- kostnaði þingmanna innan lands í kjölfar stækkunar á kjördæmum landsins. Aðspurður um þennan útgjalda- auka segir Jón Kristjánsson, for- maður fjárlaganefndar, að sam- kvæmt reglum Alþingis fái þing- menn greiddan þann ferðakostnað sem til fellur í ferðum þeirra um önnur kjördæmi en þeirra eigin. Til að mynda aksturs- og gisti- kostnað. Hann bendir á að þótt breytt kjördæmaskipan - með færri og stærri kjördæmum á landsbyggðinni - hafi enn ekki komið til framkvæmda séu þing- menn þegar farnir að vinna í sam- ræmi við hana. Þingmenn séu til að mynda oft kallaðir á fundi í sínu væntanlega kjördæmi sem nái oft út fyrir núverandi kjördæmi þing- mannsins. Þannig séu þeir þegar farnir að kynna sér málefnin í nýj- um hluta kjördæmisins. Það þýði á hinn bóginn aukin ferðalög þing- mannsins um önnur kjördæmi landsins og um leið meiri kostnað þingsins vegna breytinga á kjör- dæmaskipaninni. Aðspurður telur Jón að fyrr- greindar reglur verði endurskoð- aðar þegar breytt kjördæmaskipan kemur til framkvæmda en kveðst þó ekki eiga von á öðru en að kostnaður þingsins vegna ferðalaga þingmanna um kjör- dæmin eigi eftir að verða meiri en nú er vegna stækkunar kjördæm- anna. Alþingi Dagskrá Þingfundur í dag hefst klukkan 10.30. Eina dagskrármálið er fjár- lög ársins 2001, önnur umræða. Breytingartillögur meirihluta fjárlaganefndar Alþingis Nær 3,8 milljarðar til hækkunar á fjár- lagafrumvarpi BREYTINGARTILLÖGUR meiri- hluta fjárlaganefndar Alþingis á frumvarpi til fjárlaga fyrii’ árið 2001 nema samtals um tæplega 3,8 millj- örðum króna til hækkunar. Önnur umræða um frumvarpið hefst á Al- þingi í dag en þá mun minnihluti fjár- laganefndar gera grein íyrir sínum tillögum. Ennft-emur má búast við að einstakir þingmenn leggi fram breyt- ingartillögur á frumvarpinu. Eins og venja er bíður afgreiðsla á tekjuhlið frumvarpsins þriðju urnræðu. Meðal breytingartillagna meiri- hluta íjárlaganefndar má nefna hækkun á framlagi til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um samtals 1,8 millj- arða króna. Af þeim fjármunum er lagt til að 1,1 milljarði króna verði varið til að jafna tekjutap einstakra sveitarfélaga vegna lækkunar fast- eignaskattstekna í kjölfar breytinga á álagningarstofni mannvirkja. Kemur fram í nefndaráliti meirihlutans að framlagið sé ákvarðað í samræmi við frumvarp til laga um breytingu á lög- um um tekjustofna sveitarfélaga, sem samþykkt var sem lög frá Alþingi í gær, og er framlagið reiknað sem hlutfall af skatttekjum ríkissjóðs af beinum og óbeinum sköttum sem inn- heimtir eru í ríkissjóði. Þá er lagt til að hinar 700 milljónimar sem eftir eru verði tímabundið íramlag ríMs- sjóðs til Jöfnunarsjóðsins í samræmi við tillögur tekjustofnanefndar sem skilaði skýrslu til félagsmálaráðherra í október sl. Gert er ráð fyrir að fram- laginu verði ráðstafað til sveitarfélaga eftir reglum sem settar verða í sam- ráði við Samband islenskra sveitarfé- laga. 200 miHjónir í barnabætur Meirihlutinn fer einnig fram á hækkun á framlagi til ly'fjamála um 175 milljónir króna en í nefndaráliti segir að endurmat á útgjöldum til lyfjamála eftir tíu mánuði bendi til þess að útgjöld vegna málaflokksins verði um 4,7 milljarðar króna á árinu 2001. Einnig er lagt til að framlag til Landspítala - háskólasjúkrahúss verði hækkað um 103 milljónir króna frá því sem gert var ráð fyrir í frum- varpinu, framlag til sjúkraflutninga verði hækkað um 41 milljón króna og að framlag til Fjórðungssjúkrahúss- ins á Akureyri verði hækkað um 20 milljónir króna, svo dæmi séu nefnd. Þá er gerð tillaga um að framlag til háskóla hækki um 90 milljónir króna vegna fjölgunar nemenda umfrarn það sem gert hafði verið ráð íyrir við gerð fjárlagafrumvarpsins. Aukin- heldur er lagt til að framlag til áfeng- is- og fíkniefnamála hækki um 25 milljónir króna og að framlag til ým- issa löggæslumála hækki um 25 millj- ónir. Að lokum má nefna tillögu um 200 milljóna króna hækkun á fjár- heimild til greiðslu barnabóta og enn- fremur tillögu um að fjárheimild til vaxtabóta verði lækkuð um 400 millj- ónir króna í samræmi við endurskoð- aða áætlun íyrir árið 2001. Segir í nefndarálitinu að lækkunin stafi af auknum tekjum launþega milli ára. Bæjarstjórn Garðabæjar Minnihlutinn gagnrýnir hækkun útsvars MINNIHLUTINN í bæjarstjóm Garðabæjar gagnrýnir harðlega fjár- hagsáætlun bæjarins fyrir árið 2001, sem samþykkt var á bæjarstjómar- fundi í síðustu viku. Sérstaklega er gagnrýnd hækkun á útsvari úr 11,24% í 12,46% og segja fulltrúar minnihlutans, þ.e. Framsóknarflokks og Garðabæjarlistans, að hækkunin sé meiri en þau 0,66% sem fmmvarp ríkisstjórnarinnar feli í sér. Á fundinum lögðu fulltrúamir fram eftirfarandi bókun: „Lágmarks- álagning útsvars hefur verið yfirlýst keppikefli Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ svo lengi sem elstu menn muna. Undanfarin ár hafa útgjöld vaxið hraðar en tekjur og skuldir hlaðist upp. Itrekað hefur verið bent á þá þversögn sem felst í því að sköttum sé haldið í lágmarki á sama tíma og tekjur hafa ekki dugað fyrir útgjöld- um. Nú er svo komið að hreinar skuldir á íbúa eru fimm sinnum hærri en þær vom í upphafi áratugarins. Því hlaut að koma að því fyrr en síðar að skattaálögur yrðu hækkaðar í Garðabæ. Fyrri fjármálastefna gat ekki gengið öllu lengur og því hefur meirihluti sjálfstæðismanna valið þá leið að hækka útsvarið úr 11,24% í 12,46%. Goðsögnin um Garðabæ sem einhveija sérstaka skattaparadís heyrir því sögunni til.“ Gæslu- varðhald framlengt GÆSLUVARÐHALD yfir þremur ítölum, sem handtekn- ir vora á Keflavíkurflugvelli aðfaranótt 18. október sl., hefur verið framlengt til 10. janúar 2001. ítalirnir, tvær konur á þrítugsaldri og karlmaður á fertugsaldri, reyndust allir hafa fíkniefni innvortis. Alls var fólkið með um 300-400 g af kókaíni og um 50 g af e-töflum- ulningi sem komið hafði verið fyrir í smokkum. Að sögn Ásgeirs Karlssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns í Reykjavík, stendur rannsókn málsins enn yfir. Einn ítalanna mun sitja áfram í einangran.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.