Morgunblaðið - 30.11.2000, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2000 1 3
FRÉTTIR
Sjómenn stefna að boð-
un verkfalls 15. mars
Alyktun ASI um samningsforsendur
Ekki þeirra lægst
launuðu að tryggja
stöðugleika
SAMNINGANEFNDIR Sjómanna-
sambandsins og Vélstjórafélagsins
hafa samþykkt að hefja undirbúning
að boðun verkfalls sem hefjist 15.
mars á næsta ári. Samninganefnd
Farmanna- og fiskimannasambands-
ins kemur saman í dag og reiknar
formaður þess með að þar verði einn-
ig samþykkt að hefja undirbúning að
boðun verkfalls.
Sævar Gunnarsson, formaður Sjó-
mannasambandsins, sagði að full-
reynt væri að sjómönnum og útgerð-
armönnum tækist að gera nýja
kjarasamninga án þess að sjómenn
beittu þrýstingi til að knýja á um
kröfur sínar. Hann sagði að sjómenn
hefðu þurft að sætta þvi ítrekað að
vera samningslausir í heilt ár. Fram-
koma vinnuveitenda í garð þessarar
stéttar væri einsdæmi. Hann sagði
að á síðasta samningafundi hjá sátta-
semjara hefði framkvæmdastjóri
LIU hafnað öllum kröfum sjómanna.
Þeir hefðu ekki einu sinni verið til
viðræðu um gerð skammtímasamn-
ings.
Samningar runnu út
15. febrúar
Samningar sjómannasamtakanna
runnu út 15. febrúar sl. Útgerðar-
menn vísuðu kjaradeilunni til ríkis-
sáttasemjara í maí. Sævar sagði að
það yrði ekki annað sagt um sjómenn
að þeir hefðu sýnt þolinmæði og
samningsvilja. Nú væri þolinmæði
þeirra brostin. Útvegsmenn hefðu
ekkert fram að færa í viðræðunum.
Hugmyndir þeirra um fastlaunakerfi
með bónus hefðu ekkert verið út-
færðar af þeirra hálfu.
Sævar sagði að helstu kröfur sjó-
manna vörðuðu ýmis réttindamál.
Brýnt væri að bæta slysatryggingu
sjómanna. Sjómenn krefðust þess að
fá starfsaldurstengt orlof eins og aðr-
ar stéttir væra með. Þeir vildu bæta
lífeyrisréttindi sín. Sjómenn sættu
sig heldur ekki við að þeir væru með
80 þúsund kr. tryggingu og mættu
sæta því að vera á henni í 30 daga ef
illa aflaðist. Þá væru verðmyndunar-
málin mikilvæg eins og áður.
í samþykkt samninganefndar Vél-
stjórafélagsins segir að enginn ár-
angur hafi orðið af viðræðum við út-
vegsmenn þrátt fyrir handleiðslu
ríkissáttasemjara. Því sé ekki um
annað að ræða en að hefja undirbún-
ing að vinnustöðvun.
Grétar Mar Jónsson, formaður
Farmanna- og fiskimannasambands-
ins, sagðist reikna með að sambandið
boðaði verkfall á sama tíma og hin
sjómannasamböndin, en um það yrði
fjallað á fundi í dag. Hann sagði að
sjómenn væru seinþreyttir til vand-
ræða, en þolinmæði þeirra væri á
þrotum. Allt hefði verið reynt til að fá
útvegsmenn til að gera nýjan kjara-
samning, en viðræður hefðu engu
skilað. Verkfall virtist því óhjá-
kvæmilegt.
LÍÚ segist tilbúið til samninga
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, sagði það rangt
að LIÚ hefði ekkert boðið í samning-
num. Útvegsmenn hefðu boðist til að
gera samning á sama grunni og sam-
ið var um við Flóabandalagið. Þeir
hefðu einnig lýst sig tilbúna að ræða
um breytingar á verðmyndunarkerf-
inu. Útvegsmenn vildu hins vegar að
sjómenn tækju tillit til kröfu þeirra
um fækkun í áhöfn vegna tækni-
breytinga eða fjárfestinga leiddi ekki
til aukins launakostnaðar eins og
kjarasamningar sjómanna kvæðu á
um. Þarna væri um algjörlega úrelt
ákvæði að ræða.
Friðrik sagði að þegar rætt væri
um kjarasamning sjómanna yrðu
menn hins vegar að hafa í huga að all-
ar tölu staðfestu að sjómenn væru
launahæsta stétt landsins. Hann
sagði að engar forsendur væru fyrir
því að hækka laun sjómanna enn
frekar.
Fundur verður í kjaradeilunni hjá
ríkissáttasemjara á morgun.
MIÐSTJÓRN ASÍ samþykkti í
gær ályktun þar sem segir að það
geti ekki verið hlutverk lægst
launuðu hópanna innan ASÍ að
tryggja stöðugleika og skapa
þannig svigrúm fyrir annars konar
kjaraþróun fyrir aðra hópa.
Þetta var fyrsti fundur nýrrar
miðstjórnar sem var kosin á þingi
ASI fyrr í þessum mánuði.
„Aðildarfélög og -sambönd ASÍ
gengu til samninga í vor með það
að markmiði að stuðla að stöðug-
leika og leggja þannig grunn að
áframhaldandi aukningu kaup-
máttar. Ahersla var lögð á að nýta
svigrúmið fyrst og fremst til
hækkunar lægstu launa. Gerður
var samningur til langs tíma í
þessu skyni. Jafnframt var ljóst að
stéttarfélögin geta ekki setið með
bundnar hendur allan samn-
ingstímann ef samningsforsend-
urnar bresta. Samningarnir hvíla á
tveimur meginstoðum: Að verð-
bólga fari minnkandi á samnings-
tímanum og að sú launastefna sem
þar var mörkuð verði almennt
ríkjandi. Rík áhersla var því lögð á
skýr tryggingarákvæði svo hægt
væri að opna samningana eða
segja þeim upp ef forsendur
brygðust. Samkvæmt tryggingar-
ákvæðinu er hægt að gera annað
tveggja; Úrskurða um meiri launa-
hækkanir en samningurinn felur í
sér eða segja samningnum upp í
febrúar ár hvert,“ segir í ályktun
miðstjórnar.
Miðstjórnin segist hafa fullan
skilning á baráttu hinna ýmsu
hópa fyrir bættum kjörum, meðal
annars hefði þing ASI lýst yfir
stuðningi við baráttu kennara fyrir
bættum kjörum án þess að afstaða
væri tekin til launakrafna þeirra.
„ASÍ bendir á að það getur ekki
verið hlutverk lægst launuðu hóp-
anna innan ASI að tryggja stöðug-
leika og skapa þannig svigrúm fyr-
ir annars konar kjaraþróun fyrir
aðra hópa. Komi í ljós að svigrúm
sé til meiri launahækkana en sam-
ið var um síðastliðinn vetur áskilja
félögin innan ASÍ sé allan rétt til
þess að krefjast sömu hækkana."
Morgunblaðið/Ásdís
Yerkfallsstiórn Félags framhaldsskólakennara
Vilja engin próf í verkfalli
Viðrað í
Vestur-
bænum
MILT veður hefur verið í höfuð-
borginni síðustu daga þótt nokkur
hálka hafi verið á götum og gang-
stéttum. Við Blómvallagötuna í
Vesturbænum stóð kona og viðraði
en eflaust vegna hálkunnar og
kannski líka vegna skjólsins gerði
hún það í einu af fjölmörgum húsa-
sundum þessa bæjarhluta. Jólin
nálgast og á mörgum heimilum
verður því mikið viðrað á næstunni.
VERKFALLSSTJÓRN Félags
framhaldsskólakennai-a hefur sent
skólameisturum allra framhalds-
skóla í landinu bréf þar sem vakin er
athygli þeirra á því að í nokkrum
skólum er ætlunin að halda próf í
greinum þar sem stundakennarar
hafa verið við kennslu í yfirstandandi
verkfalli. Verkfallsstjórnin telur
þetta ekki í samræmi við lög um
framhaldsskóla og reglugerð um
starfslið skóla.
„Verkfallsstjórnin telur rétt að
vekja athygli skólameistara á 24. gr.
laga nr. 80/1996 um framhaldsskóla
og reglugerð með sömu lögum um
starfslið framhaldsskóla nr. 371 þar
sem fjallað er um deildarstjóra, áf-
angastjóra, ábyrgð þeirra og umsjón
með námsmati.
í lögunum og reglugerðinni er
skýrt tekið fram að deildarstjóri
skuli vera í hverri námsgrein og um-
sjón með námsmati sé í höndum
deildarstjóra.
Verkfallsstjórn telur að próf sem
haldin eru án umsjónar deildarstjóra
séu marklaus þar sem ekki er farið
að lögum við prófahaldið og ekki eru
uppfylltar þær faglegu kröfur sem
gerðar eru í námsskrá fyrir fram-
haldsskóla.
Verkfallsstjórnin varar eindregið
við að skólameistarar gefi nemend-
um falsvonir um að þeir séu að taka
próf sem hafi einhvert gildi og skor-
ar á skólameistara að fresta öllum
prófum þar til þau geta farið fram
með eðlilegum hætti undir faglegri
stjórn deildarstjóra,“ segir í bréfi
verkfallsstjórnar til skólameistar-
anna.
Landsvirkjun
Ráðinn fram-
kvæmdastjóri
orkusviðs
BJARNI Bjarna-
son, fráfarandi
framkvæmda-
stjóri Islenska
járnblendifélags-
ins hf., hefur ver-
ið ráðinn fram-
kvæmdastjóri
orkusviðs
Landsvirkjunar
frá 1. mars nk.
Bjarni Bjama-
son hefur verið framkvæmdastjóri
íslenska jámblendifélagsins hf. frá
árinu 1997. Meðal fyrri starfa hans
má nefnastarf framkvæmdastjóra
Kísiliðjunnar í Mývatnssveit og
starf tæknistjóra Jarðborana hf.
Bjarni hefur licentiat-próf í berg-
verkfræði frá Svíþjóð en auk þess
BSc.-próf í jarðfræði með hliðar-
greinum í verkfræði frá Háskóla Is-
lands og hlutapróf í vélfræði frá Vél-
skóla Islands. Hann bjó um 6 ára
skeið í Svíþjóð og starfrækti þar
ráðgjafastofu á sviði bergverkfræði
og neðanjarðarmannvirkja. A fyrri
árum vann hann að virkjanarann-
sóknum fyrir Landsvirkjun um
nokkurra ára skeið.
Bjami Bjarnason er kvæntur
Björgu Árnadóttur, símenntunar-
stjóra Fjölbrautaskólans við Ar-
múla, og eiga þau þrjú börn.
------*-+-*-----
Sluppu vel eftir að bill
þeirra fór út af f hálku
Bifreiðin ónýt
eftir 5-6 veltur
TVEIR japanskir ferðamenn sluppu
lítið meiddir þegar bílaleigubíll
þeirra fór út af Suðurlandsvegi í
hálku og valt 5-6 veltur. Ferðamenn-
imir, karlmaður og kona, skárust
nokkuð en sluppu að öðra leyti
ómeidd. Þau vora bæði í öryggisbelt-
um. Bíllinn er talinn gjörónýtur.
Slysið varð við Suðurlandsvegi
austan Hvolsvallar skammt vestan
við bæinn Hvítanes skömmu eftir
hádegi í gær.
Bjarni
Bjarnason