Morgunblaðið - 30.11.2000, Page 18
18 FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Leikfélag Akureyrar og „Vitlausi leikhópurinnu
Trúðaleikur um Skralla
og Lalla frumsýndur
Morgunblaðid/Kristján
Skralli og Lalli eða Tveir misjafnlega vitlausir trúðar verða á fjölum
Samkomuhússins á Akureyri næstu helgar.
Morgunblaðið/Kristján
Leikskólabörn fengu að horfa á æfingu og þótti mikið til leikritsins
koma.
Viðhorfskönnun um vínveitingahús,
nektarstaði og Halló Akureyri
Um 56% íbúa
segja ónæði af
Halló Akureyri
LEIKFÉLAG Akureyrar í sam-
starfí við Vitlausa leikhópinn
frumsýnir nýtt barnaleikrit eftir
Aðalstein Bergdal á laugardag, 2.
desember kl. 15. Leikritið heitir
Tveir misjafnlega vitlausir eða
Skralli og Lalli.
Um er að ræða trúðaleik með
hinum vinsæla Skralla, en hann er
nú orðinn 27 ára gamall og hefur
víða komið við. I leikritinu segir frá
Skralla og yngri bróður hans,
Lalla, en sá hefur tekið að sér að
gæta barns. „Lalli gerist dag-
mamma, en vandinn er sá að hann
er afar mikil svefnpurka og því
Iendir barnagæslan mikið til á
Skralla. Hann er eiginlega bara í
fullri vinnu við það fyrir hádegi að
passa barnið," sagði Aðalsteinn.
„Trúðamir þurfa að glíma við
margar erfiðar spumingar, því þeir
em ekki vel að sér hvað bamapöss-
un varðar. Þeir reyna hvað þeir
geta, enda viljaþeir standa sig vel,
en eins og í góðum trúðaleik Icnda
þeir í mörgu misjöfnu."
Alltaf jafngaman
Aðalsteinn hefur leikið Skralla
við hin ýmsu tækifæri í 27 ár og
sagði hann alltaf jafngaman að
koma fram í þessu hlutverki og
skemmta bæði böraum og fullorðn-
um. „Þetta er alltaf jafngaman og
heldur manni ungum í anda, ég
verð aldrei leiður á Skralla," sagði
Aðalsteinn. Hann sagðist hafa
kynnt móður Skralla til sögunnar á
síðasta ári og nú væri komið að því
að gefa fólki kost á að kynnast
yngri bróður hans, Lalla. „Mamma
hlaut misjafnar undirtektir, en það
er alltaf eitthvað um að bömin
spyiji um hana. Nú er að sjá hvera-
ig krökkunum þykir Lalli, sem nú
er kynntur til sögunnar. Maður er
alltaf að útvíkka þetta og leyfa fólki
að kynnast fjölskyldunni."
Þeir Aðalsteinn og Skúli Gauta-
son fara með hlutverk trúðanna
Skralla og Lalla. Þórarinn Blöndal
gerir leikmynd og einnig búninga
ásamt Kristínu Sigvaldadóttur.
Skúli samdi tónlistina, Pétur
Skarphéðinsson annast lýsingu og
Þráinn Karlsson leikstýrði.
Leikritið verður sýnt í Sam-
komuhúsinu og verða tvær sýning-
ar um komandi helgi, kl. 15 bæði á
laugardag og sunnudag og svo
áfram fram að áramótum, en þá
hafa þeir félagar hugsað sér að
leggja í ferðalag með sýninguna.
„Við áætlum að sýna þetta leikrit á
svæðinu ailt frá Hvammstanga og
að Vopnafirði í það minnsta, en
Skralli hefur mikið ferðast um á
þessu svæði og þekkir þar mörg
böm,“ sagði Aðalsteinn.
Myndavélin með
I tengslum við sýninguna var eftit
til teiknimyndasamkeppni í gmnn-
skólum Akureyrar og verða veittar
10 viðurkenningar að lokinni
frumsýningu. Myndimar verða
hengdar upp í Samkomuhúsinu og
verða þar gestum til sýnis. Þá hafa
verið útbúnir trúðabolir og eins
kemur brot af Ieikritinu og söngv-
um þess út á hljómdiski. Loks má
geta þess að þeir Skralli og Lalli
bjóða böraum að sitja fyrir með sér
á Ijósmyndum að lokinni sýningu og
því um að gera að taka myndavél-
ina með í leikhúsið.
RÚMLEGA 23% þeirra sem svöruðu
viðhorfskönnun sem Gallup gerði fyr-
ir Akureyrarbæ eru hlynnt starfsemi
nektardansstaða í bænum, en 43%
þeirra sem svöruðu voru henni and-
víg. Viðhorfskönnunin var gerð meðal
íbúa bæjarins og nærsveita, en meðal
þess, sem kannað var, var viðhorf
fólks til hátíðarinnar „Halló Akur-
eyri“, afgreiðslutíma veitingahúsa og
starfsemi nektardansstaða. Úrtakið
var 1000 manns á aldrinum 16 til 75
ára og svöruðu rúm 70%.
Meirihluti vildi breyta
„Halló Akureyri“
í ljós kom að tæplega 55% þeirra
sem svöruðu telja að miki] þörf hafi
verið fyiir að breyta skemmtanahaldi
um síðustu verslunarmannahelgi í þá
átt að leggja meiri áherslu á fjölskyld-
una. Rúmlega 38% telja á hinn bóginn
að þörfin á breyttu yfirbragði hafi
verið h'til.
Fram kemur einnig að 56% íbúa
telja sig hafa orðið fyrir einhveiju
ónæði af völdum hátíðarinnar „Halló
Akureyri" undanfarin ár, en tæplega
44% segjast ekki hafa orðið fyrir
ónæði vegna hátíðarinnar. Af þeim
Fundur með
nemendum
og foreldrum
ÍYMA
FUNDUR með nemendum Verk-
menntaskólans á Akureyri og foreldr-
um þeirra verður haldinn í kvöld,
fimmtudagskvöldið 30. nóvember kl.
20. Hann verður í Giyfjunni, sam-
komusal skólans, og þar verða tekin
fyrir ýmis mál er varða nemendur í
kennaraverkfalh, hugsanleg lok
haustannar og upphaf vorannar.
Hjalti Jón Sveinsson skólameistari
mun á fúndinum reyna að svara þeim
spumingum sem brunnið hafa á nem-
endum og foreldrum þeirra síðustu
vikur í þeirri von að endir verði bund-
inn á yfirstandandi verkfall, sem sett
hefur skólastarf vetrarins í algjört
uppnám, segir í frétt um fundinn.
sem telja sig hafa orðið fyrir ónæði
síðustu ár hafa um 15% orðið fyrir
miklu ónæði að sögn, en 75% töldu
ónæðið ekki hafa verið mikið. Hvað
síðustu verslunarmannahelgi varðar,
töldu 58% sig hafa orðið fyrir minna
ónæði nú en áður, en tæplega 4% fyrir
meira ónæði.
Viðhorf bæjarbúa til afgreiðslu-
tíma veitingahúsa var einnig kannað-
ur og kom í ljós að tæplega 72% voru
sammála því að afgreiðslutíminn sé
takmarkaður til kl. 01 eftir miðnætti á
virkum dögum, en 24% eru því ósam-
mála. Góður meirihluti þeirra sem
ekki eru sammála takmörkunum á af-
greiðslutíma, eða tveir af hverjum
þremur, vill engar takmarkanir á af-
greiðslutímanum. Um 35% íbúanna
finnst að takmarka eigi afgreiðslutí-
mann við annan tíma. Meirihluti svar-
enda, eða 62%, er sammála því að af-
greiðslutími um helgar sé tak-
markaður við kl. 4 eftir miðnætti, en
34% eru ósammála. Sama eru uppi á
teningnum hvað afgreiðslutímann um
helgar varðar og með virku dagana,
tveir af hverjum þremur sem ekki
vilja takmörkun, vilja að ekki séu sett-
ar neinar takmarkanir.
Gilfélagið og
Sigurhæðir
íslandsljóð
í Deiglunni
ÍSLANDSLJÓÐ er heiti á Ijóðadag-
skrá sem Gilfélagið og Sigurhæðir
efna til í kvöld, fimmtudagskvöldið
30. nóvember, en hún hefst kl. 20.30.
Dagskráin er flutt í tilefni af fullveld-
isdeginum, 1. desember.
Flutt verða ættjarðarljóð, gömul
og ný, en á dagskránni verður sjálf-
vahð efni nokkurra kunnra flytjenda
auk þess sem vonast er til að gestir
flytji uppáhaldsljóð sín, sjálfum sér
og öðrum til gleði og gamans. Öllum
er frjálst að koma fram en er bent á
að taka með sér ljóðabækur ef svo
ber undir.
Ekkert kostar inn og allir eru vel-
komnir.
Héraðsdomur Norðurlands eystra
Fangelsi í 45 daga
vegna fíkniefna
og fleiri brota
TÆPLEGA þrítugur karlmaður
hefur í Héraðsdómi Norðurlands
eystra verið dæmdur í 45 daga
fangelsi og til að greiða 65 þúsund
krónur í sekt í ríkissjóð, en félag-
ar hans tveir sem einnig voru
dæmdir vegna sömu mála hlutu
skilorðsbundna dóma til tveggja
ára. Var öðrum gert að greiða 120
þúsund króna sekt en hinum 200
þúsund krónur. Sá er þyngsta
dóminn hlaut var sviptur rétti til
að öðlast ökuskírteini ævilangt.
Mennimir þrír eru á aldrinum
18 til 29 ára gamlir og eru af Kjal-
amesi, Hrísey og Hafnarfirði hafa
allir áður hlotið refsidóma vegna
ýmissa mála. Þeir vom í máli
þessu ákærðir vegna nokkurra
fíkniefnabrota, m.a. að hafa haft
milligöngu um útvegun slíkra efna
og neyslu þeirra sem og flutning
milh landshluta í söluskyni. Þá var
í málinu ákært vegna umferðar-
lagabrota og fyrir þjófnað. Af-
skipti vom höfð af mönnunum
bæði á Akureyri og Reykjavík.
Allir játuðu þeir brot sín ský-
laust fyrir dómi. Sá elsti í hópnum
var sakfelldur fyrir þjófnað, ölv-
unarakstur í tvígang og brot gegn
ávana- og fíkniefnalöggjöf. Litið
var til þess að hann játaði brot sín
undanbragðalaust, verðmæti þess
sem stolið var þótti lítið og áfeng-
ismagn í blóði hans var undir efri
mörkum. Hins vegar var einnig
litið til þess að hann átti langan af-
brotaferil að baki og þótti því ekki
fært að skilorðsbinda refsingu
hans.
Nokkurt magn fíkniefna var
gert upptækt, tæplega 100
grömm af hassi, tæp 8 grömm af
amfetamíni og 1,33 grömm af
maríhúana.
Vetrarstarf Klakks hófst á útilegu í Vaglaskógi í haust, en þá gengu skátar yfír Vaðlaheiði, Ijölduðu þar og
gengu svo til baka daginn eftir.
SKÁTAFÉLAGIÐ Klakkur á Akur-
eyri vill vekja athygli á því að þótt
formlegt vetrarstarf félagsins sé
haflð geta þeir sem áhugasamir era
um skátastarf engu að sfður gengið
til liðs við félagið.
Skrifstofa Klakks er í Hvammi
við Hafnarstræti og þar er opið frá
kl. 17.30 til 19 frá þriðjudegi til
Oflugt
skátastarf
fimmtudags. Á skrifstofunni er
hægt að innrita sig í félagið og fá
nánari upplýsingar um starfsemina.
Félagið á þrjá skála, Valhöll sem er
í Vaðlaheiði, Fálkafell og Gamla of-
an við Kjarnaskóg, en skátar fara f
útilegur f þessa skála og þá vinna
þeir að margvíslegum útilífsverk-
efnum. Starfsemi félagsins fer fram
úti í hverfum bæjarins, þ.e. Innbæ,
Brekku, Glerárhverfi og Oddeyri.