Morgunblaðið - 30.11.2000, Side 20

Morgunblaðið - 30.11.2000, Side 20
20 FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2000 MORGUNB LAÐIÐ LANDIÐ Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Handverkskonur í Glaðheimum við hluta af þeim vörum sem til sölu voru. Þessar snyrtilegu dömur voru á snyrti- og förðunarkynningunni og með þeim á myndinni er Sigrún Óskarsdóttir förðunarfræðingur. Glatt á hjalla í Glaðheimum Þórshöfn - Félagsstarf eldri borg- ara á Þórshöfn og nærsveitum er líflegt þessa dagana og ekki setið auðum höndum. Þar er fondrað, spilað og spjaliað og jafnvel sett upp snyrtistofa. Nýlega v£tr förðunar- og snyrti- vörukynning en þá komu í heim- sókn Sigrún Óskarsdóttir förðun- arfræðingur ásamt starfsmanni Húsavíkur Apóteks á Þórshöfn. Þær buðu konum upp á létta förðun og kynntu snyrtivörur frá Apótek- inu. Sigrún förðunarfræðingur leiðbeindi um litaval, notkun á snyrtivörum og rétta umhirðu húð- arinnar. Það var glatt á hjalla og bar húsið sannarlega nafn sitt með sóma en það heitir Glaðheimar. Húsið var áður í eigu Heilsu- ræktarinnar á Þórshöfn en með til- komu nýja íþróttahússins flutti öll heilsuræktarstarfsemi þangað og Heilsuræktin ánafnaði Dvalar- heimilinu Nausti húsið og félag eldri borgara hefur nú aðstöðu sfna þar. Þórshafnarhreppur hefur nýverið látið endurbæta húsið sem er vistlegt og notalegt og þessi höfðinglega gjöf hentar vel fyrir núverandi starfsemi og er vel nýtt. Handverksmarkaður verður þar fram að jólum en afrakstur af vinnu félagsmanna er þar til sölu og sýningar. Þar er á boðstólum prjónles af ýmsu tagi; glervörur, jólaskraut og aðventukransar og hægt að gera kjarakaup á þessum fallegu munum. Héraðsskjalasafn Vestmannaeyja Hugmyndasam- keppni um merki Vestmannaeyjum - í tilefni af 25 ára afmæli Héraðsskjalasafns Vestmannaeyja um þess- ar mundir ákvað menningarmálanefnd Vest- mannaeyja að láta fara fram hugmyndasam- keppni um merki fyrir safnið. AIls bárust 28 tillögur frá fimm aðilum. Tillaga undir dul- nefninu „Friðrik" var valin af dómnefnd óg tilkynnti Jóna Björg Guðnadóttir skjalavörð- ur niðurstöður dómnefndar. Hinn kunni af- rekssundmaður Logi Jes Kristjánsson stóð á bak við dulnefnið „Friðrik“ og hlaut hann að launum 50.000 kr. Jóna Björg sagði að merkið væri mjög táknrænt og vel útfært. Femingarnir þrír eru A4-blaðsíður sem tákna skjöl skjalasafns- ins. Skjöl úr fortíðinni, samtímaskjöl og ókomin skjöl á safnið. Grunnurinn utan um skjölin er tvíþættur, í fyrsta lagi táknar hann borðið sem skjöiin em skoðuð á og rannsökuð við og í öðra lagi táknar grannurinn tölvu- skjáinn þar sem skjölin era færð í meira magni inn á tölvuna. Þar með er fortíðinni, samtíðinni og framtíðinni blandað saman. Litur merkisins er blár grannlitur sem tákn- ar tengsl Vestmannaeyja við hafið. Litur ferninganna eða blaðanna sýnir hvernig skjöl gulna með tímanum, dökkt gamalt skjal aft- ast og hvítt óskrifað skjal fremst. Það vora foreldar Loga Jes, Ágústa Friðriksdóttir og Kristján Egilsson, sem tóku við verðlaunun- um úr hendi Jónu Bjargar. Athöfnin fór fram í Landlyst sem endumeist hefur verið á Skanssvæðinu í Vestmannaeyjum. Morgunblaðið/Gunnar Hallsson I útibiii Islenskra verðbréfa í Bolungarvík, f.v.: Jón Björnsson stjórnar- formaður, Sævar Helgason framkvæmdastjóri, Ásgeir Sólbergsson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Bolungarvíkur, og Unnar Hermannsson, for- stöðumaður Islenskra verðbréfa hf. á Vestfjörðum. Islensk verðbróf hf. opna útibú í Bolungarvík Bolungarvík - íslensk verðbréf h.f. hefur opnað útibú í Bolungarvík og áform era um að opna einnig útibú á ísafirði á næstunni. Útibú íslenskra verðbréfa h.f. í Bolungarvík er til húsa í Sparisjóði Bolungarvíkur. Forstöðumaður þess er Unnar Hermannson. íslensk verðbréf h.f. hét áður Kaupþing Norðurlands og á fyrir- tækið að baki 13 ára sögu, en það er eina löggilta verðbréfafyrirtækið ut- an höfuðborgarsvæðisins. Með tilkomu útibúsins í Bolungar- vík stendur íbúum Bolungarvíkur og nágrennis til boða milliliðalaus þjón- usta á sviði fjárvörslu, eignarstýr- ingar, verðbréfamiðlunar, útgáfu verðbréfa, sjóðstýringa og almennr- ar ráðgjafar á sparnaði. „Viðtökur hafa verið mjög góðar þessa fyrstu daga og fólk hefur mikið verið að koma og kynna sér þá þjón- ustu sem við eram að bjóða og við er- um ánægð með þær undirtektir sem við höfum fengið,“ sagði Unnar Her- mannsson forstöðumaður íslenskra verðbréfa h.f. á Vestfjörðum. Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámason Guðrún Hannele Henttinen, formaður sljórnar Handverks og hönnunar, Sunneva Hafsteinsdóttir, framkvæmdastjóri verkefnis- ins, Sigrún Ásta Jónsdóttir, forstöðumaður Norska hússins, og Lára Gunnarsdóttir, trélistarmaður í Stykkishólmi, sem á verk á sýningunni. Nytjalist úr náttúr- unni í Norska hús- inu í Stykkishólmi Stykkishólmi - Handverk og hönnun standa fyrir sýningu í Norska húsinu í Stykkishólmi sem heitir: „Nytjalist úr náttúranni - vatn.“ Sýningin er var fyrst sett upp í Reykjavík í ágúst og er framlag Handverks og hönnunar til dagskrár Reykjavíkur menn- ingarborgar. Markmið sýningarinnar er að sýna það besta af nytjalist sam- tímans. Hlutirnir vora allir sér- hannaðir fyrir þessa sýningu. Lögð er áhersla á að samtvinna góða hönnun, hugvit og gott hand- verk. Þema sýningarinnar er vatn. Það eiga 25 listamenn þar verk og sumir fleiri en eitt. Á sýningunni er einn Hólmari meðal þátttak- enda. Það er Lára Gunnarsdóttir sem sýnir verk úr tré. Þetta er mjög fjölbreytt og fal- legt sýning sem vert er að skoða. Sýningin Nytjalist úr náttúranni er opin daglega frá kl 16 - 18 og stendur til 3. desember. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.