Morgunblaðið - 30.11.2000, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2000
ERLENT
MORGUNBLAEIÐ
Nýjar hræringar innan fhaldsflokksins í Bretlandi
Portillo hefur ekki áhuga
á leiðtogastöðunni
Liggur undir árásum hægrimanna í flokknum en segist ekki vera á útleið
Reuters
Michael Portillo eftir að hann hafði verið útnefndur frambjóðandi
íhaldsflokksins í Kensington og Chelsea fyrir rúmu ári.
London. Daily Telegraph.
MICHAEL Portillo, sem fer með
fjármálin í skuggaráðuneyti íhalds-
flokksins í Bretlandi, hefur lýst yfir,
að hann hafi engan áhuga á að verða
eftirmaður Williams Hagues sem
leiðtogi flokksins. Hefur Portillo leg-
ið undir hörðum árásum frá
hægriarminum í flokknum og eftir
vinum hans er haft, að hann sé nú að
velta fyrir sér framtíðinni vegna
þess, að hann hafi ekki lengur
ánægju af stjórnmálavafstrinu.
Sjálfur vísar hann þó á bug getgátum
um, að hann hyggist hætta afskipt-
um af stjómmálum.
í yfirlýsingu frá Portillo í fyrra-
kvöld leggur hann áherslu á, að hann
vilji taka fullan þátt í tilraunum
fhaldsflokksins til að sigra Verka-
mannaflokkinn í næstu kosningum
en hann hafi þó „engan áhuga á að
verða flokksleiðtogi“. Segist hann
hlakka til að verða ráðherra í næstu
ríkisstjóm en virðist þó halda því
opnu um leið, að hann muni segja
skilið við stjórnmálin takist flokkn-
um ekki að sigra í næstu kosningum,
sem hugsanlega verða í vor.
í ónáð hjá
hægriarminum
Innan íhaldsflokksins dylst eng-
um, að Portillo er ekki ánægður og
hann hefur tekið nærri sér harðar
árásir hægrimanna á tilraunir hans
til að mýkja ímynd sína og flokksins í
augum breskra kjósenda. Haft hefur
verið eftir Margaret Thatcher, að
hún telji, að Portillo sé ekki lengur
alveg „með á nótunum" og gagnrýn-
endur hans saka hann um að halda
fram sínum einkaskoðunum í stað
þess að reka áróður fyrir íhalds-
ílokknum sem skattalækkunar-
flokki. Fór ræðan, sem hann flutti á
landsfundi íhaldsflokksins, sérstak-
lega fyrir brjóstið á þeim en þá sagði
Portillo, að tími sinn utan þings hefði
nýst sér til að „kynnast betur hinum
almenna borgara“.
Yfirlýsing Poi-tillos kemur á sama
tíma og orðrómur er um, að frammá-
menn í flokknum séu farnir að huga
að eftirmanni Hagues. Er ástæðan
meðal annars öi-uggur sigur Verka-
mannaflokksins í þrennum auka-
kosningum í Englandi og Skotlandi í
síðustu viku en hann hefur dregið
verulega úr vonum íhaldsmanna um
að hagnast á erfiðleikum ríkisstjóm-
arinnar að undanförnu, eldsneytis-
hækkununum og óánægju lífeyris-
þega. Enn sem komið er virðist
umræðan innan flokksins ekki
snúast um það hver verði eftirmaður
Hagues, heldur hver verði það ekki.
Á það meðal annars við um Ann
Widdecombe, sem hefur mikið fylgi
vegna harðrar stefnu í eiturlyfja- og
löggæslumálum en þykir lítt sigur-
strangleg sem leiðtogi.
Sinnaskipti í útlegðinni
Á Portillo var á sínum tíma litið
sem arftaka Thatcher og leiðtoga
Evrópuandstæðinganna í Ihalds-
flokknum og hefði hann ekki misst
sæti sitt í kosningunum 1997, hefði
hann næstum örugglega orðið leið-
togi flokksins. Sagði hann seinna, að
ósigur flokksins hefði stafað af því,
að kjósendum hefði fundist hann
hafa lítinn áhuga á kjörum venjulegs
fólks en þess í stað hampa græðgi og
sérréttindum.
Eftir þriggja ára eyðimerkur-
göngu var Portillo endurkjörinn í
aukakosningum í Kensington og
Chelsea, einu öruggasta kjördæmi
íhaldsflokksins í Englandi. Skömmu
áður reyndi hann að kveða niður orð-
róm um, að hann væri samkyn-
hneigður með því að viðurkenna, að
hann hefði vissulega fiktað við það
ungur maður en ekki síðan. Reiddust
sumir hægrimenn í flokknum þessari
yfirlýsingu hans, til dæmis Tebbit-
lávarður, sjálfskipaður gæslumaður
Thatcher-arfleifðarinnar. í síðasta
hefti af Spectator fer Tebbit háðu-
legum orðum um tilraunir Portillos
til að gefa þá mynd af sér, að hann sé
umhyggjusamur íhaldsmaður.
Sakaður um slælega
frammistöðu
Fyrr í þessum mánuði sögðu Port-
illo og Francis Maude, sem fer með
utanríkismál í skuggaráðuneytinu,
sig úr félagsskapnum Aldrei að víkja
en hann var stofnaður til að standa
vörð um og halda á loft kenningum
Thatcher. Kom úrsögnin í kjölfar
fundar eða hádegisverðar í klúbbn-
um þar sem Portillo var úthúðað fyr-
ir að finna lítinn höggstað á efna-
hagsstefnu Verkamannaflokksins.
Það er líka rétt, að það hefur hallað á
Portillo í glímunni við Gordon
Brown, fjármálaráðherra Bretlands,
og þar að auki hefur hann hætt and-
stöðu Ihaldsflokksins við lágmarks-
laun og krafist þess, að flokkurinn
afturkalli skattalækkunarábyrgðina.
Hún er þannig, að næsta ríldsstjórn
Ihaldsflokksins muni lækka skatta
hvernig sem ástandið verður í efna-
hagsmálunum.
Dagblaðið Sun sagði í fyrradag, að
frammistaða Portillos í skuggaráðu-
neytinu hefði verið „léleg“ og sagði,
að auk þess færi hann „frjálslega
með sannleikann" þegar hann segði,
að hann hefði aðeins haft kynni að
samkynhneigð sem ungur maður.
Sagði Sun, að hann hefði átt tvo ást-
menn, sem báðir hefðu fengið al-
næmi, og væri annar látinn.
Réttarhaldið í
Lockerbie-málinu
Sýknu-
kröfu vís-
að á bug
Camp Zeist i Holiandi. AP, Reuters.
RÉTTURINN í Lockerbie-réttar-
haldinu svokallaða, sem þessa dagana
réttar yfir líbýskum sakbomingum að
skozkum lögum á hlutlausu svæði í
Hollandi, hafnaði í gær kröfu veijenda
annars sakbominganna um að ákærur
gegn honum yrðu látnar niður falla
vegna skorts á sönnunargögnum.
Líbýumennimir tveir, sem saksókn-
arar telja að hafi verið liðsmenn líb-
ýsku leyniþjónustunnar, eru sakaðir
um að hafa staðið að baki sprengitil-
ræði í risaþotu PanAm-flugfélagsins
yíir skozka bænum Lockerbie fyrir
tólf áram, sem varð 270 manns að
bana.
Ranald Sutherland dómari úrskurð-
aði í gær, að rétturinn hefði heyrt
nægilega sterkan vitnisburð gegn sak-
bomingnum Lamen Khalifa Fhimah
til að rétt væri að halda réttarhaldi yfir
honum áfram.
Veijandinn Richard Keen fór á
þriðjudag fram á að málflutningurinn
gegn umbjóðanda sínum yrði látinn
niður falla á þeim forsendum, að sak-
sóknarar í málinu hefðu ekki lagt fram
fullnægjandi gögn til að sanna að
Fhimah tengdist sprengitilræðinu.
Sutherland dómari ákvað að réttar-
haldinu skyldi haldið áfram hinn 5.
desember nk. Þá munu fulltrúar sak-
sóknara hefja sinn málflutning.
Framkvæmdastjórn ESB leggur til róttækar ráðstafanir gegn kúariðu
Bann lagt við öllu fóðri
úr beinum og kjöti
David Byrne Franz Fischler
Brussel. AFP.
FRAMKVÆMDASTJÓRN
Evrópusambandsins (ESB)
lagði í gær til, að gripið yrði til
róttækra ráðstafana til að
freista þess að endurreisa
traust neytenda á nautakjöti.
Fylgir sá böggull skammrifi,
að ráðstafanimar gætu kostað
framleiðendur og aðra hags-
munaaðila allt að þremur
milljörðum evra á ári, andvirði
um 225 milljarða króna.
David Byrne, sem fer með
heilbrigðis- og neytendamál í
framkvæmdastjóminni, sagði
að hún myndi leggja tillögu
fyrir fund landbúnaðarráð-
herra ESB-landanna 15
næsta mánudag, um að sett yrði
tímabundið bann við notkun mjöls
unnu úr kjöti og beinum í fóðri eldis-
dýra, sem ætluð eru til manneldis.
Sagði Byme að þessi og fleiri til-
lögur sem lagðar yrðu fyrir landbún-
aðarráðherrana, væra „nauðsynleg-
ar fyrir endurreisn trausts neyt-
enda,“ sem orðið hefði fyrir
alvarlegum hnekki vegna hrinu
frétta af því að undanfömu, að kúa-
riða hefði greinzt æ víðar í álfunni.
Byrne sagði á blaðamannafundi í
Brussel í gær, að „menn hafi haft
áhyggjur af því eftirliti sem er með
beinamjöli og dýrafóðri“. Þegar væri
bannað að fóðra nautgripi á beina-
og kjötmjöli. En fram að þessu hafi
það ekki verið bannað að gefa svín-
um og alifuglum slíkt fóður.
Sagðist hann ennfremur hafa efa-
semdir um að þeim reglum sem sett-
ar hefðu verið um eftirlit með dýra-
fóðri væri fylgt sem skyldi. Sú
staðreynd, að sum aðildarríkin hefðu
einhliða fært bannið við notkun slíks
fóðurs út til allra annarra dýra, hefði
líka kallað á aðgerðir af hálfu ESB.
Kostnaðurinn gríðarlegur
Franz Fischler, sem fer með land-
búnaðarmál í framkvæmdastjórn-
inni, sagði að árlegur kostnað-
ur sem af ráðstöfunum þessum
hlýzt Uklega munu nálgast
þijá milljarða evra. Tap kjöt-
framleiðenda einna verði
nærri einum og hálfum millj-
arði evra, andvirði um 112
milljarða króna.
Fischler sagði, að hvað svo
sem Evrópusambandið tæki til
ráða, muni framhaldið þegar
allt kemur til alls vera í hönd-
um neytenda. En hann bætti
við: „Við ætlumst til þess þó að
neytendur geri upp sinn hug af
fullri sanngirni. Það er gott að
neytendur séu gagnrýnir, en
við væntum þess að hinn gagn-
rýni neytandi verði jafnframt upp-
lýstur neytandi."
Byme sagði að gegnsæi í öllu
framleiðsluferli kjöts til manneldis
væri í beinu samhengi við öryggi
framleiðslunnar í öllum aðgerðum
sem miðuðu að því að byggja aftur
upp traust fólks á henni.
Meðal annarra aðgerða sem fram-
kvæmdastjórain leggur til aðrar en
dýrafóðurbannið er að engar afurðir
af nautgripum yfii- 30 mánaða aldri
fari á markað til manneldis nema eft-
ir að hafa staðizt prófun sem tryggi
að kúariðusmit sé ekki að finna í slát-
urdýrinu.
Reynt að draga úr
spennu í Suður-Serbfu
Aðskilnað-
arsinnum
haldið í
skefjum
Washington, London. AFP,
The Daily Telegraph.
YFIRMENN friðargæsluliðsins í
Kosovo, undir forystu Atlantshafs-
bandalagsins (NATO), ræddu í gær
við leiðtoga Albana og júgóslavneska
embættismenn til að reyna að draga
úr spennu í suðurhluta Serbíu. Að
sögn stjómarerindreka leggur friðar-
gæsluliðið mikið kapp á að koma í veg
fyrir frekari árásir albanskra aðskiln-
aðarsinna á svæðinu til að styrkja
stöðu Vojislavs Kostunica, forseta
Júgóslavíu.
Háttsettur embættismaður NATO
sagði í fyrradag að albanskir aðskiln-
aðarsinnar og júgóslavnesk yfirvöld
hefðu samþykkt vopnahlé um óákveð-
in tíma eftir átök sem blossuðu upp í
vikunni sem leið þegar aðskilnaðar-
sinnar réðust frá Kosovo inn í Pres-
evo-dal í Suður-Serbíu. Albanar era í
meirihluta í dalnum eins og í Kosovo.
Richard Boucher, talsmaður
bandaríska utanríkisráðuneytisins,
sagði að ekki hefði komið til átaka í
gær og friðargæsluliðið héldi viðræð-
unum áfram, en fjórir serbneskir lög-
reglumenn hafa fallið í átökunum síð-
ustu daga.
Ráðamenn á Vesturlöndum eru
sagðir leggja mikið kapp á að halda
aðskilnaðarsinnunum í skefjum og
koma í veg fyrir að átök blossi upp að
nýju fyrir þingkosningamar í Serbíu í
næsta mánuði. Frekari blóðsúthell-
ingar gætu orðið til þess að Kostunica
yrði sakaður um að vemda ekki hags-
muni Serba og styrkt stöðu Slobod-
ans Milosevic, fyrrverandi Júgó-
slavíuforseta, sem var endurkjörinn
leiðtogi Sósíalistaflokks Serbíu um
helgina.
------------------
Indveijar
lofa mánað-
ar vopnahléi
í Kasmír
Srinagar. AFP.
INDVERSKAR öryggissveitir í
Kasmír hétu því í gær að virða sögu-
lega vopnahlésyfirlýsingu indversku
stjórnarinnar þótt tólf manns hefðu
fallið daginn sem vopnahléið tók
gildi. Er þetta í fyrsta sinn sem Ind-
verjar lýsa yfir vopnahléi í Kasmír
frá árinu 1989 þegar aðskilnaðar-
sinnar hófu uppreisn sem hefur kost-
að um 34.000 manns lífið. Vopnahléið
á að gilda í mánuð.
„Hvað okkur varðar verður staðið
við vopnahléið í mánuð hvað sem á
dynur,“ sagði K.R. Kumar, yfirmað-
ur indversku öryggissveitanna.
Öryggissveitirnar hættu öllum
hemaðaraðgerðum aðfaranótt
þriðjudags eftir að Atal Behari
Vajpayee, forsætisráðherra Ind-
lands, lýsti yfir vopnahléi út föstu-
mánuð múslima, ramadan.
Kumar kvaðst vera vongóður um
að blóðsúthellingunum linnti í föstu-
mánuðinum. Skæraliðahreyfingin
Hizbul, sem kvaðst bera ábyrgð á
sprengingunni í þriðjudag, sagðist
hins vegar vera staðráðin í að halda
áfram árásum sínum.
Flestar skæruliðahreyfingarnar í
Kasmír hafa lýst yfirlýsingu
Vajpayee sem áróðursbrellu og hót-
að að herða skæruhernaðinn gegn
Indverjum. Indverska stjómin sak-
aði í gær Pakistana um að reyna að
spilla friðammleitunum hennar í
Kasmír. „Stjórain er staðráðin í að
sigrast á slíkum tilraunum," sagði
Jaswant Singh, utanríkisráðherra
Indlands og bætti við að markmiðið
með vopnahléinu væri að koma
ástandinu í Kasmír í eðlilegt horf.