Morgunblaðið - 30.11.2000, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2000 37
Búrhillan
hennar
ömmu
MYJVDLIST
Listhúsið Pold
VATNSLITAMYNDIR -
GARÐARPÉTURSSON
Opið daglcga frá 10-18. Laugard.
10-17. Sunnud. Til 10. desember.
Aögangur ókeypis.
„KARDEMOMMUR og kaffi-
baunir“ er yfirskrift sýningar graf-
íska hönnuðarins Garðars Pétursson-
ar, á 37 vatnslitamyndum í listhúsinu
Fold. Efniviðurinn sóttur til fortíðar,
gjaman í búrhilluna eða eldhússkáp-
inn hjá ömmu, þar sem hver dós og
hver kassi átti sinn sérstaka stað, sinn
sérstaka ilm og innihald, en á stund-
um einnig í hillur stórmarkaða nútím-
ans. Mikið til eru það baukar og box
eða gamlir hlutir notagildis sem hafa
dregið að sér athygli gerandans fyrir
skrautleik sinn, form eða tengingar
við minni fortíðar.
Þessar upplýsingar má lesa í skrá
og eru í það heila réttar, eldri kynslóð
man þetta allt, ekki síst hinn sérstaka
og höfga ilm sem lagði úr búrum og
eldhússkápum á árum áður, þegar
hlutimir vora upprunalegri, gerðist
einkum hjá konum sem vora miklar
og forsjálar húsmæður. En það er þó
ekki ýkja langt síðan sumt af þessu
hvarf af sjónarsviðinu, ísskápar og
gerviefni eyddu til að mynda hinum
höfga ilmi. Sum matarefnin má enn fá
í verslunum en í öðrum umbúðum þó,
og til skamms tíma var hægt að fá
stangasápu (Sunlight Soap)í þeim
mörgum, en nú þekkir unga af-
greiðslufólkið ekki einu sinni nafnið,
horfir hvert á annað og hristir höfuðið
ráðþrota þá um er spurt. Þetta var af-
ar nytsöm sápa við hlið grænsápunn-
ar og óspart notuð af listmáluram til
að þvo pensla, einkum úr náttúrahár-
unum. Þetta gerist um leið og vísinda-
menn uppgötva að náttúrasápur á
laus og föst efni sem og húð og hár
era stóram heilnæmari nokkram
gerviefnum. Hver man svo ekki eftir
brennslusprittinu sem gerði öllum
gott útvortis en sett var sölubann á
vegna þess að 3% þjóðarinnar misnot-
uðu það innvortis að sagt var, en 97%
hennar svo að gjalda! Seinna var haft
í flimtingum, að innyfli þessa ógæfu-
sama minnihluta hafi iðulega verið
hreinni og fegurri en annarra við
krafningu, í öllu falli þeirra er settu
bannið sem stendur enn, illu heilli...
Á þann veg rifjast upp ljúfar minn-
ingar, ein af annarri við skoðun sýn-
ingarinnar, en notalegast er þó að
ungir grafískir hönnuðir skuli hafa til-
finningu fyrir arfleifð fortíðar. Þá var
Sunlight Soap, vatnslitur. Ljóamynd/BraKi
vægðarlaus krafan að menn kynnu að
teikna, upplifðu liti og rúmtak í eigin
vinnu. Og þótt nær gjörsamlega hafi
sums staðar tekist að úrelda þessi
grunnfög á rúmum áratug munu þau
rísa upp úr öskustó, nema maðurinn
verði auðmjúkur þræll hátækninnar.
Bæði gild og snjöll hugmynd í ætt
við póstmódemismann svonefnda, að
leita á þennan hátt til fortíðar og gera
það í bland við módernismann. Sækja
í gömul minni með fulltingi sígildra
meðala; vatnslita, nákvæmri útlits-
teikningu viðfangsefnanna hveiju
sinni og myndrænni útfærslu. Vel að
verki staðið en þó togast hönnuðurinn
og listamaðurinn á, skipuleg og
óformleg tjáning, tveir ólíkir tjáheim-
ar í einum. Á stundum era hlutimir
full samhverfir á fletinum án þess að
fá aðstoð af hlutfallalögmálinu eða
andstæðum litaheildum, era ekki al-
veg nægilega skorðaðir inn í mynd-
flötinn, hinum svonefndu innri lífæð-
um hans. En meira um vert, að vel er
af stað farið, samfara því hve ræki-
lega gerandinn er jarðtengdur sög-
unni og næstu geymd á sinni fyrstu
mikiisháttar einkasýningu. Lofar
góðu um framhaldið...
Einföld og falleg sýningarskráin er
afar skilvirk eins og vænta má frá
hendi þjálfaðs og verðlaunaðs hönn-
uðar, en nær vora verkin gerð?
Bragi Ásgeirsson
Breski rithöfundurinn og fræði-
maðurinn Malcolm Bradbury
Lærifaðir skáldsagna-
meistaranna látinn
BRESKI rithöfundurinn og fræði-
maðurinn, sir Malcolm Bradbury,
lést í Norwich síðastliðinn mánudag,
68 ára að aldri. Hann hafði átt við
lungnasjúkdóm að stríða um nokk-
urt skeið en dauða hans bar brátt að.
Fyrir tæpu ári var Bradbury aðl-
aður fyrir framlag til menningar í
Bretlandi, en hann var lengi einn
afkastamesti fræðimaður Breta á
sviði bókmennta, þekktur rithöfund-
ur, kennari og gagnrýnandi.
Árið 1970 stofnaði hann, ásamt rit-
höfundinum Angus Wilson, deild í
skapandi skrifum við East Anglia
háskólann í Norwich og byggði þar á
bandarískri fyrirmynd. Andrew
Motion, lárviðarskáld Breta og arf-
taki Bradbury í háskólanum í
Norwieh, segir þann viðbui’ð hafa
markað upphaf nýs tíma í skáldskap-
argerð í Bretlandi „enda hefðu bæði
leikmenn og lærðir gert gys að slíku
námi á þeim tíma
og álitið að góður
skáldskapur yrði
einn helst til
innra með ein-
mana einstakling-
um sem byggju
hungraðir á háa-
loftum." Motion
segir Bradbury
Sir Malcolm hafa eytt þessum
Bradbury fordómum enda
hafa margir helstu skáldsagnahöf-
undar Breta stundað nám í skapandi
skrifum undir hans leiðsögn, þ. á m.
Booker verðlaunahafarnir Ian
McEwan og Kazuo Ishiguru sem
báðir minntust læriföðurins í bresk-
um blöðum. Skáldsagan og þróun
hennar átti alla tíð hug Malcolm
Bradbury. Eftir hann liggja um 40
bækur á sviði bókmenntafræði sem
eru vel þekktar meðal fræðimanna.
Kynning í dag og á
morgun föstudag.
Viðskiptavinir Helena
Rubinstein fá vegiegan
kaupauka.
sími 587 0203.
I I
| Fréttir á Netinu 0mbl l.is
Hokkískautar:
Reimaðir
Stærðir 37-46
tfc Verð aðeins
WM kr. 9.338
Hokkískautar:
Smelltir
Stærðir 36-46
Verð aðeins
kr. 5.990
Listskautar:Vinil
Hvítin 28-44. Svartir: 33-46
Stærðir 28-36
U, kr. 4.201.
*. Stærðir 37-46
kr. 4.689
Smelluskautar:
Stærðir 29-41
V . Verð aðeins
. 4 kr. 4.989
Listskautar:
Leður
Hvítir:
Stærðir 31-41
Verð aðeins
kr. 6.247.
Svartir:
Stærðir 36-45
■* kr. 6.474
Nýjung:
Skautar undir HYPNO
/ línuskautaskó
/ kr. 4.823
Barnaskautar
(Smelluskautar)
| Stærðir 29-36
Verð aðeins
kr. 3.989
Skeifunni 11, sími 588 9890