Morgunblaðið - 30.11.2000, Side 57
T
MÖRGtfNÖÍJAÍ)®
FIMAft'Vl’DÁÖmrsOVNÖVfM'Btiíl'áóðÖi 9T
UMRÆÐAN
Mannauður
HUGTAKIÐ mann-
auður er skráð í Orða-
bók Háskólans - And-
vari 1974 í grein bls. 121
- sem „verðmæt þekk-
ing eða sérþekking“
einstaklings í málefnum
eða á efnishlutum. Hug-
takið var síðan notað í
öllu víðaii merkingu
þegar á leið, gætti í op-
inberum ræðum fyrr-
verandi forseta landsins
Vigdísar Finnbogadótt-
ur. Öðru hvoru nota
menn þetta hugtak þeg-
ar um er að ræða ein-
staklinga fyrirtækja
eða stofeana sem ágæta
þarf í greinum eða ræðum. Ágætt
dæmi um slíka notkun hugtaksins er
að finna í Fréttabréfi sem gefið er út
af Landsvirkjun. Fréttabréf nr. 42.1.
tbl. 15. árg. desember 1997. Þar er að
finna grein: „Umhverfisstefna
Landsvirkjunar,“ samþykkt af stjóm
Landsvirkjunar 4. september 1997,
en formaður stjómar Landsvirkjunar
var þá og er Jóhannes Geir Sigur-
geh'sson, skipaður í starfið af þáver-
andi iðnaðarráðherra Finni Ingólfs-
syni.
í stefnuyfirlýsingunni segir: „Yfir-
lit í umhverfis- og orkumálum fæst
með markvissum vinnubrögðum,
reynslu og þekkingu hæfra starfs-
manna. Það verður því lögð áhersla á
að sá „mannauður" og þekldng sem
Landsvirkjun býr yfir nýtist á sem
ákjósanlegastan hátt til þess að
tryggja að sem bestur árangur náist.“
Þessi „mannauður“ vann skýrslu um
Eyjabakkasvæðið sem skyldi færa
undir vatn, eins og kunnugt er. Sú
skýrsla var talin allsendis ófullnægj-
andi af færastu náttúrufræðingum
landsins, gloppótt og illa unnin og oft
vafasöm varðandi ýmsar staðreyndir.
Nú vinnur þessi mannauður
Landsvirkjunar að skýrslugerð um
svæði það sem færa á undir vatn
vegna Kárahnjúkavirkjunar, Kring-
ilsárrana, mikið til gróið svæði og
griðland hreindýra og gæsastofns og
innri hluta Dimmugljúfra, sem era
meðal einstökustu náttúraperlna hér
á landi. Sú skýrsla sér væntalega
dagsins ljós eftir næstkomandi ára-
mót. Hún bíður síns dóms af hæfustu
náttúrufræðingum landsins.
Fyrir einu eða tveimur misserum
sagði núverandi forsætisráðherra,
Davíð Oddsson, frá heimsókn tveggja
„ungra vísindamanna". Þessi heim-
sókn og erindi hinna „ungu vísinda-
manna“ var til þess gerð að gera for-
sætisráðherra Ijósan þann mikla
mannauð sem þjóðin ætti í þeim
stjórnmálamönnum sem sátu á þingi
og fóru með löggjöf og stjómsýslu að
manni skildist síðustu tvo eða þrjá
áratugi. Fyrst í stað kom erindið
nokku flatt upp á forsætisráðherra en
fljótlega áttaði hann sig á staðreynd-
um málsins og af þeim sökum fannst
honum full ástæða til þess að bera
þjóðinni fréttir hinna
„ungu vísindamanna" í
fjölmiðlum.
Samkvæmt nánari
útlistun á mannauðnum
töldu hinir ungu vís-
indamenn hann slíkan
að athuga þyrfti að er-
lendar þjóðir mættu
njóta hans að nokkra og
að íslenskir ráðherrar
og þingmenn og afrek
þeirra í lagagerð og
stjómsýslu gætu orðið
íýrirmynd og til eftir-
breytni t.d. evrópskra
rfldsstjóma og löggjafa.
Forsætisráðherra tók
það fram í lok frétta-
pistilsins að umsögn hinna ungu vís-
indamanna ætti við fyrri rfkisstjómir.
Nokkur hógværð var hér við hæfi.
Nú er eftir að vita hvort sá mann-
auður sem situr á þingi og í ríkis-
stjóm landsins fari að ráðgjöf hinna
ungu vísindamanna og bjóðist til ráð-
gjafar, jafnvel forystu á erlendri
grand, það yrði þeirra „sóknarfæri"
til framtíðar. Svo er að bíða og sjá
hverjar undirtektfr verða.
Mannauður merkir ríkidæmi. Kap-
ítal þýðir „fjármuni eða framleiðslu-
tæki, sem ætlað er að skapa auð...
dregið af „caput“, höfuð, „capitale“ -
aðaleign, höfuðgóss." Heimild: Is-
lensk orðsifjabók - Ásgeir Blöndal -
„Caput“ vísar til höfða á búgripum,
einum nautpenings, svo og svo mörg
nautpeningshöfuð sama sem svo og
svo margir nautgripir. Capút, kapítal,
kapítalismi er þýtt á íslensku með
auður. Það má segja að plantekrueig-
endur á eyjum Karíbahafsins og í
Suðurríkjum Bandaríkjanna hafi átt
mikinn „mannauð“ í þrælum., þræla-
Umhverfi
Hugtakið mannauður,
segir Siglaugur Bryn-
leifsson, tengist
nautpeningseign eða
þrælahaldi.
eign. Og forsenda orðsins era nytjar
af manninum sem framleiðslutæki
„sem ætlað er að skapa arð“. Þegai’
menn nota þetta hugtak eins og dæmi
eru um hér að framan, þá er hugsun-
in, „arður af sérþekkingu eða verð-
mætri þekkingu“. Auður manna og
ríkidæmi fomþjóða var oft metinn í
nautpeningseign og planterkraeig-
enda í Ameríku í fjölda ófrjálsra
manna, þræla. Hér á landi er oft talað
um „að ein helsta auðlind íslendinga
sé mannauðurinn".
Lengst af hefur kúgildið eða kýr-
verðið „verið verðmælir, og varð svo á
íslandi á fyrstu tímum byggðar... Kú-
gildið eða kýrin var verðeining sama
og „eitt hundrað" á landsvísu" - Ein-
ar Laxness: íslandssaga.
Eftir að „mannauðurinn" er orðinn
ein helsta auðlind íslendinga er kýrin
dottin út sem verðeining og kúgildið
þar með, mannauðurinn vh’ðist nú
eiga að gegna hlutverki sem verðein-
ing og þar með mun hugtakið „mann-
gildi“ í merkingunni „mannkostir, hið
innra gildi mannsins" - Orðabók
Menningarsjóðs - glata sinni hefð-
bundnu merkingu og öðlast svipaða
merkingu og kúgildið hafði.
Höfundur er fv. kcnnnri.
í hjarta borgarinnar - Austurstræti 12
Til ieigu 4 hæðir í
þessu virðulega
húsi, alls um 750
fm. Leigist saman
eða í smærri ein-
ingum.
Hentar t.d. vel
fyrir læknastofur
o.fl.
Björgvln Björgvinsson, lögg. fasteignasali.
♦ Ársalir- fasteignamiðlun ♦ Ársalir- fasteignamiðlun ♦
Siglaugur
Brynleifsson
Skólavörðustíg 5 s: 552 7161
Samlokubakkar
við öll tækifæri
' 3 mismunandi gerðir bakka, fyiltir girnilegum samlokum
Pöntunarsími er 5656000, alla virka daga milli kl. 8 - 16
M *
DABO SLAND
Pottþétt dekkl
ÞAÐ ER ALLT ORÐIÐ HVÍTT!
Nú er vetur gengin í garð og tími til komin að setja
vetrardekkin undir bílinn. Hjá Bílkó færðu úrvals
vetrardekk aföllum stærðum og gerðum. Spólaðu
ekki í sama farinu! Pantaðu tíma í síma 557 9110
eða komdu við á smiðjuvegi 34-36 og þú færð
toppþjónustu á hreint ótrúlegu verði.
BÍLKÖ EHF,- Bifreiðaþjónusta - Dekkjaverkstæði - Bílaþvottur Smiðjuvegur 34-36 • Kópavogi ■ Sími 557 9110 ■ Rauð gata OPIÐ 08-18 MÁN-FÖS. OPIÐ 10-16 LAU. NEYÐARMÓNUSTAN ALLTAFOPIN SÍMI800 4949.
MYNDLIST