Morgunblaðið - 30.11.2000, Qupperneq 63

Morgunblaðið - 30.11.2000, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Kennarar og starfsfólk í öldrunarþjónustu í öldrunarþjónustu, segir Ingibjörg Péturs- dóttir, er stöðugur skortur á starfsfólki Lág laun grafa undan sjálfsvirð- ingu fólks og valda óánægju í starfí sem sannarlega hlýtur að vera óhag- kvæmt fyrir alla, jafnt einstaklinga sem þjóðfélagið í heild. Það er dapurleg staðreynd að margir mjög hæfir einstaklingar neyðast til að snúa baki við þeim störfum sem þeir eru menntaðir og þjálfaðir til að vinna. Þeir hafa hreinlega ekki efni á vinna fyrir því kaupi sem er í boði og neyðast að leita á önnur mið. Svo einfalt er það. Það gildir jafnt um kennara sem starfsfólk í öldrunarþjónustu og ýmsa aðra sem vinna störf sem snúast um fólk. Er ekki kominn tími til að leið- rétta það launamisrétti sem við- gengst í þessu landi?! Ættum við ekki líka að taka til í skápnum sem geymir verðmætamat okkar, þar þarf víst að raða betur í hillurnar og henda ýmsu drasli á haugana. Að lokum er svo hér sönn saga úr daglega lífinu: Það var einu sinni maður sem vann á ónefndum stað fyrir ungl- inga. Hann skipti um vinnu og fór að vinna í Fjölsk,- og húsdýragarðinum af því þar fékk hann miklu betra kaup. Ætli d(k)ýr séu meira virði en unglingar? Höfundur er iðjuþjálfi. Skortur á starfsfólki í öldrunarþjónustu I öldrunarþjónustunni, þar sem ég þekki best til, er stöðugur skortur á starfsfólki, jafnt faglærðu sem ófa- glærðu. Ráðamenn og stjómendur sjúkrahúsa, dvalarheimila og ann- arra stofnana undrast þetta mjög, ræða ástandið á löngum fundum og ráðstefnum innanlands sem utan, rífa hár sitt og óskapast. Þeir sem sinna öldruðum eru aðal- lega konur - þær sem gegna verst launuðu störfunum verða yfirleitt ekki gamlar í starfi. Þær sem halda út eru aðallega samviskusamar eldri konur sem eru búnar að vinna þessi störf - sem geta verið bæði erfið og krefjandi - lengi og fá sig ekki til að hætta. Síðan erum við svo heppin að okk- ur hefur borist liðsauki erlendis frá til að vinna verst launuðu störfin. Hvar værum við án allra útlending- anna sem vinna þau fyrir okkur?! Er lifandi fólk svona lítils virði? Sjálf vinn ég á dagdeild fyrir fólk með alzheimer-sjúkdóm og fleiri Ingibjörg Pétursdóttir sjúkdóma sem valda minnisleysi og öðrum einkennum sem gera fólki erfitt fyrir í dag- legu lífi. Einstaklingar sem hafa sjúkdóma af þessu tagi þurfa á miklum stuðningi að halda, hlýju og nær- gætni. Mikilvægt er aðþeir sem starfa á slíkri deild ráði yfir næmi fyrir líðan ná- ungans, tillitsemi, þol- inmæði og búi yfir ýmsum fleiri kostum sem ekki verða metnir til fjár. Enda eru þeir ekki metnir til fjár. Þrátt íyrir að samstarfskonur mínar ófaglærðar hafí margra ára starfsreynslu í öldrunarþjónustu og sýni hæfni í starfí fá þær skammar- lega lág laun. Þannig er það því mið- ur víða, gildir einu hvort um öldrun- arstofnanir, sjúkrahús, leikskóla er að ræða eða aðra staði þar sem unn- ið er með fólk. Við sem erum svo lánsamar - lán- söm - að hafa prófskírteini upp á vasann fáum eitthvað meira í launa- umslagið en mismunandi mikið þó. Hjá fjölmörgum er uppskera mánað- arins þó svo rýr að máltækið „mennt er máttur" missir hluta af merkingu sinni. Þó að flestir sem vinna með fólk eigi það sameiginlegt að hafa ekki valið sér starfsvettvang út frá vænt- ingum um völd og ríkidæmi geta fáir sætt sig við að vinna fyrir svo lágu kaupi að það dugi vart fyrir nauð- þurftum. Það er staðreynd að margir sem vinna við öldrunarþjónustu neyðast til að vinna tvöfalda vinnu eða hafa góða fyrirvinnu sem getur veitt fjár- hagslegan stuðning. NÚ stendur yfir verkfall framhald- skólakennara og þó að það komi illa við mína fjölskyldu eins og svo fjöldamargar aðrar styð ég kröfur kennara um bætt kjör. Það er kominn tími til að kennarar fái laun í samræmi við þá menntun, ábyrgð og kröfur sem eru gerðar til þeirra í starfi. Þetta leiðir hugann að því að jafnan virðast vanmetin störf kenn- ara eins og annarra starfshópa sem vinna störf sem snúast um fólk, alla vega þegar meta skal hvaða laun eigi að greiða fyrir vinnuna. Það vita allir að það verður enginn ríkur á því að sinna börnum, ungl- ingum, veiku fólki, fötluðu fólki, öldruðu fólki. Þvert á móti. Stað- reyndin er að margir þeirra sem vinna á þessu sviði tilheyra láglauna- hópum. Sem betur fer hefur hagur nokkurra hópa vænkast á síðustu ár- um þar sem þeim hefur tekist að knýja fram einhverjar kjarabætur. Um daginn sá ég sjónvarpsþátt þar sem kom fram að nú þætti bein- línis hallærislegt að vinna með fólk en það væri eftirsóknarverðast að vera verðbréfasali eða vinna hjá tölvufyrirtæki. Ætli það sé skýringin á því að kennarar og fleiri stéttir sem vinna með fólk hafa dregist aftur úr hvað varðar laun? Eða er því kannski öf- ugt farið; hafa léleg laun orðið til þess að það þyki „hallærislegt" að vinna með fólk? íslenski draumurinn íslenski draumurinn gengur út á að „meika það“; eiga nóg af pening- um og keyra á glæsivögnum - eiga a.m.k. einn jeppa, búa í einbýlishúsi eða raðhúsi, ferðast til framandi landa nokkrum sinnum á ári - svo er ekki verra að vera ungur og flottur í tauinu. Og ef þú átt ekki peninga þá verð- ur þú alla vega að látast eiga nóg af þeim og það getur endað í hræðilegri martröð eins og dæmin sanna. Það eru auðvitað margir sem láta sér fátt um íslenska drauminn finn- ast og eiga sér drauma og hugsjónir sem ekki snúast um auð og völd. Margir leggja meira upp úr því að vinna störf sem eru innihaldsrík og gefandi þrátt fyrir að launin séu í lakara lagi og gefi alls ekki tilefni til þátttöku í spretthlaupinu mikla. En fólk þarf að geta lifað af laununum sínum og það má ekki gerast að það verði forréttindi „vel giftra“ kvenna að sinna ákveðnum störfum - sem oft á tíðum snúast um fólk. rcpf.aiidwmir (£Postulinsi taz Yfír 40 gerðir Jón & óskar taugavegi 61 Klukkan Hamraboi Úr og Djá< Garöabæ Georg V. Hannah Ri “ sn efiavík Gullúrio Mjódd kr. 26.000 Halldór Ólafsson Akureyri Jón Bjarnason Akureyri Hrund Ólafsvík Karl R. Guðmunds Selfossi, i ■ Vinna FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2000 63 Stöð 2 býður upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá fyrir börnin í desember. Helstu kvikmyndir eru: Tólf dagar jóla, Aleinn heima III og hin bráðskemmtilega mynd Snjókarlinn. Teiknimyndimar eru heldur ekki w af verri endanum; 1 Mánudagar: Svalur og Valur, Trillumar og Strumparnir. Þriðjudagar: Batman, Kalli kanína og Strumpamir. y Miðvikudagar: Brakúta og df Strumpamir. Fimmtudagar: Real Monsters og \ Strumpamir Afi er á sínum stað um hverja hetgi og jólaþátturinn hans verður á annan f jólum. Á næstu dögum mun - bömum á aldrinum 3-8 ára berast jólakveðja frá Afa! Góða skemmtun!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.