Skírnir - 01.01.1879, Side 26
26
ENGLAND.
annars 1163, sem hefðu minna í tekjur enn 200 p. sterl. (3600
kr.) og árstekjur 318 presta kæmust undir 100 p. sterl.
Yjer minntumst í inngangi rits yors á bágborinn atvinnuhag
verkmanna á Englandi og neySarástand fólksins, er veturinn tók
aS haröna. Að nokkrum hluta mátti verkmannafólkiö sjer sjálfu
um kenna, J>ví aldri hefir þaö gert meira aÖ um verkaföll enn
áriÖ sem leiö. í hitt eö fyrra voru verkaföllin aö tölu 181, en
ná uröu eigi færri enn 277. Svo fór líka sem vant hefir veriÖ,
aö verkmennirnir hlutu aÖ lúta í lægra haldi og biöu óhag einn
í staö hagsbóta. I fjórum verkaföllum vannst nokkuð á, og í 17
dró til sætta fyrir tilhliörun hvorratveggju handar, en þessi 21
tilfelli áttu minna máli aö skipta. Við hin (256) gengu þeir
peningar að eins til þurðar, sem verkmenn áttu í sparnaðarsjóðum,
og af því mörg bundruð þúsunda áttu hjer hlut að máli, skipti
þaö fje millíónum, sem í súginn gekk. þeir höfðu því ekki annað
fyrir bragöiö enn sult og seyru, og urðu svo aö ganga að sömu
eða ómildari kostum, sem þeir höfðu áöur hafnað. Hitt er og
auðvitað, að það veröur að hafa þungleg áhrif á atvinnu og
efnahag alþýðu manna, er verkmeisturum og vinnuveitendum er
gerður svo mikill gróðahnekkir og unnið svo mikið tjón, sem
þeir opt híða við verkaföllin. Á Englandi kveður fyrir þá sök
meir að verkaföllum enn í öðrum löndum, að iðnaðar- og verk-
menn Breta hafa fjelög sín og samtök betur stofnuð, enn slíku
er fyrir komið hjá öðrum þjóðum, og svo eiga þeir langt um
meira fje 1 sjóðum til viðlaganna, enn sá lýöur á í öðrum löndum.
Hins verður og að gæta, að Englendingum er það betur innrætt
og eptir skapi skorið enn öörum, að bjargast við eiginn ramleik,
og þreyta heldur til þess við ofurefliÖ, enn biðja sjer liðs af
stjórninni eða löggjafarvaldinu, eða bíða þess er um kann að
skipast við nýjar lagasetningar.
4. júnímánaðar í fyrra var tala höfð á gripum og fjenaði
í öllum þremur löndunum. Hestar voru þar aö tölu
1,927,066, naut 9,761,288 — þar af 2/a kýr —, sauðfje
32,571,018 — 2/a veturgamalt eða eldra —, svín 3,767,900. —
J>á var og skráð, hve mikið land væri yrkt, og hve mikið óyrkt.
Öll ríkin eru aö fiatarmáli 77,828,927 «ekrur» (acres), en ensk