Skírnir - 01.01.1891, Síða 22
22
BRETAVELDI 1790—1890.
Jeg skal því gefa stutt yfirlit yfir, hvernig horfir í þessum löndum sem
stendur.
Næst Englandi er hin elzta nýlenda þess Newfoundland (Nýfundna-
land). Eyja þessi hefir ekki gengið í bandalög við Canada, en hefur þing
og stjórn sér. H(m er stærri enn ísland, en nærri jafnstrjálbyggð og hef-
ur hátt upp í 200,000 íbúa. Þeir lifa mest á þorskveiðum og hafa nýlega
hótað að ganga i bandalag við Bandaríkin, ef Bretastjórn verndaði þá
ekki betur gegn ágangi franskra fiskimanna, sem hafa stöðvar á tveimur
smáeyjum í grennd og rétt til að nota strandlengju 4 eynni. Á Newfound-
landi hefur hver maður kosningarrétt, þegar hann er 25 ára og ekki ó-
magi (lögtekið 1889). Svo viðtækan kosningarrétt hefur enginn annar
hluti Bretaveldis. Æðsti ráðgjafi þeirra kom til Englands sumarið 1890
að stsppa stálinu í Salisbury gagnvart Frökkum. Salisbury kvað ætla að
láta Frakka fá einhvern landskækil í Afríkn, ef þeir vilja afsala sér rétt-
indum sínum við strönd Newfoundlands. Svo hræddur er hann um, að
eyjarskeggar muni ganga undan Bretaveldi, en engum Englending kom til
hugar að kúga þá eða fara að þeim með hörðu.
Þegar komið er yfir sundið til bæjarins Halifax á Nýja-Skotlandi, ber
fyrir mann rauða hermannabúninga brezka, en þeir sjást hvergi annarstaðar á
Ameríku allri. Ef Canada skyldi einhvern tíma ganga undan Bretaveldi,
þá muudu Englendingar halda eptir Halifax fyrir her- og fiotastöð.
Eystri hluti Canada er að mestu leyti kaþólskur og franskur. Tachereau
kardínáli i Quehec er hinn voldugasti maður þar um sveitir. Hann er
sómatnaður, en svo harður, að hann vill banna að fara á leikhús, dansa, lesa
skáldsögur o. s. frv. Hann fékk páfann til að bannfæra félagið „riddara
vinnunnar" (Knights of Labour). Þó hafa prótestantar stundum látið í
ljósi þá ósk, að erkibiskupinn í Quebec (Tacherean) væri fylkinu í stað þings
og ráðaneytis, stjórnaði þvi einn; svo vel trúa þeir honum. Prótestantarn-
ir í Mortreal, hinni auðugustu borg í Canada, sem hefur dregið verzlunina
að sér frá Quebec upp eptir fljóti liins helga Lðrentíusar, kurra mjög yfir
stjórn hins franska mciri hluta í fylkinu. Höfuðborgin í efri Canada, Tor-
onto, er alensk, en hún er eins Ijót og Qucbec er fögur, enda er Quebec
hin fegursta borg í Norður-Ameríku. í Ottawa situr sir John Macdonald,
sem stýrir bandafylkjum Canada. í ráðaneyti hans sitja Frakkar, brezkir
landnámsmenn, irskir Parnellítar og írskir prótestantar, spakir undir handa-
jaðrinum á honum í þcssu þorpi (Ottawa). Hann likist Disraeli í andliti og hefur
nokkuð af slægð hans, en hið óbilandi og kröptuga æskufjör hans ber meiri