Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1907, Page 9

Skírnir - 01.12.1907, Page 9
Stephan Gr. Stephansson. 297 Og konungur vakti og varð ekki rótt, ill vá fyrir dyrum hann bagar; og nú gátu áfjáðast að honum sótt hans útrunuu hásætis dagar hjá lýðnum til landráða neydda í landinu kristnaða, en eydda. Og fast sótti reymleiki að hrollvísum hug, því heiðingja vofur þar slæddust sem líflátin sjálf hefði’ ei drepið út dug úr dauðum, sem guð hans ei hræddust. Nú bentu frá brennum og voða öll blóðvitni feðranna goða. Og slysið með Erling — að óvart hann dó — í öllu svo hamingju-drjúgan! því var það ei’ ólán, að aulinn hann hjó, svo Ólafur fékk ekki að kúga ’ann? Með fólknárung fólkið er bundið, með falli hans einstakling hrundið. Og krossmarkið brást eins og Þórshamar — því í þrautum gat skjátlað til halla, svo Valhöll og Paradís inngangan í varð álík: að berjast og falla. Gegn Kristi þótt rönd ekki reisti var ramsótt mót Ásaþórs hreysti. En það var hans djörfung, að dómþingi hjörs, að drottin-holt trúnað sinn kend’ ann; hann gladdist við reykina um Valdres og Vörs er varnarlaus heimili brend’ ann; til einveldis ei’ var þá stjórnað, í erindi guðs var svo fórnað. Qg nú gekk hann varkárt að viðreisn síns máls, og vægði til alt sem hann kunni; og þó skyldi um sakir þær sorfið til stáls hann sá þá hvers guð honum unui, en sendi hann sigur til valda þá sárt skyldi Noregur gjalda.

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.