Skírnir - 01.12.1907, Qupperneq 91
Erlend tíðindi.
379
einræöi, aö þær gengn henni mjög svo í vil. Stjórnarsinnar á þingi
urðu hátt upp í 200, af um 440, sem þingmenn eru nú alls, í
stað 520 áður; á fyi'ra þinginu voru stjórnarliðar ekki nema um
70. Þá koma 160—170 miðflokksmenn, og loks ekki nema um 30
vinstrimenn, í stað meira en 200 áður. Hitt er ýmislegur samtín-
ingur. Þing kom saman á öndverðum vetri. Stefna þess og starf
fer eftir því, á hvora sveifina þeir hallast, miðflokksmetm, eða meiri
hluti þeirra. Það er mæit, að ráðuneyti keisara, þeir Stolypiti og
hans félagar, mundu helzt kjósa hóflegt framfarasnið á þinginu,
líklega helzt til þess, að stjórninni verði betur til um peningalán
en ella enn af n/ju; því um 350 milj. kr. synir fjárhagsáætlun
hennar að vantar á að tekjur hrökkvi fyrir gjöldum. Það fó v e r ð-
u r að útvega, og mun ekki auðhlaupið að því, svo torfengnir sem
peningar eru nú alstaðar og rándýrir.
Skýrslu hafði rússneskt blað birt i þingbyrjun um manntjón
í róstum þeim og óeirðum, er gengið hafa á Rússlattdi síðustu miss-
irin þrjú. Þar er tala fallinna manna og særðra látiti vera rúm 44
þús., en nær 2400 hafa verið líflátnir að yfirvalds ráðstöfun. Aðr-
ir segja þær tölur muni vera helzti lágar.
Fjarri er enn friði og kyrð í M a r o k k o. Soldátiar orðnir þar
tveir og berjast um völdin. Það er hálfbróðir Abd-ul-Azis, er nokk-
ur hluti ríkisins hefir tekið til höfðingja yfir sig. Sá heitir El-Hafid, og
segja síðustu fréttir hinn lagðau á flótta og á náðir vina sititta Frakka.
Yaudinn er sá um það mál, að gæta svo til, að eigi hljótist
af vandræði eða missætti með drotnendum r/kja hér í álfu.
N o r ð m e n n hafa mist í haust undatt styri hjá sér sinn
mikla stjórnskörung, Miohelsen yfirráðgjafa, þann er mesta hlaut
frægð fyrir viturleik og skörungsskap í skilnaðinum við Svía. Því
olli heilsubrestur. Kristjaníubúar kvöddu hann með hinum mestu
virktum og þakklætisvott, múgur og margmenni. Lövland utan-
r/kisráðgjafi tók við stjórnarforustu af honum.
Oscar Svía konungur annar lézt 8. des., ttær áttræður, f. 21.
jan. 1829. Hann þótti verið hafa mætur maður á marga lund,
vitur og góðgjarn. Hantt var mælskumaður nteð afburðum og skáld