Skírnir - 01.12.1907, Side 80
Upptök mannkynsins.
368
lega frú Filósoffía í eitthvað svipuðum stellingum og
tröllkonan gleiða, sem olli vextinum mikla er nær hafði
gjört Þór óvæða ána Vimur í för einni er af frásögn Snorra
er fræg orðin, þá vil jeg heldur likja heimspekinni við Ask
Yggdrasils er rætur sínar hefir bæði á himni og jörðu.
Er það sæmilegra, enda hygg jeg að mannkynið muni
þegar stundir líða fram, ala aldur sinn í skjóli þess trjes,
miklu meir en hingað til hefir orðið, einkum þegar ráðinn
er af Níðhöggur og alt hans kyn — ef það þá tekst.
Enn kom þriðji maðurinn (A. R. Wallace) upp með fram-
þróunarkenninguna og hélt þar fram úrvalning náttúrunnar
eins og Darwin, sem aðalorsök, en ekki hinni ýmislegu beit-
ingu kraftanna eins og Lamarck og Spencer. Framþróunar-
kenningin »lá í loftinu«. Nú tókst að opna augu manna
fyrir því að tegundirnar umbreytast, skapast upp úr öðr-
um tegundum; og þetta var í raunihni aðalatriðið f y r s t
u m s i n n, en ekki hitt, hvað mestu veldur um að teg-
undirnar breytast.
Það þarf engan spámann til að sjá, að þessi upp-
götvan, sem nú ræðir um, muni vera upphafið að svo
miklum breytingum á högum mannkynsins, að slíkar
hafa aldrei orðið enn. En leiðin er löng og lífið stutt,
og jafnvel vjela-r sem eru mjög einfaldar í samanburði
við lifandi veru, eins og t. a. m. eimvjelin og rafvélin,
sem hafa breytt svo þjóðhögum, komu ekki upp fyr en
eftir vísindalegan undirbúning sem náði yfir margar
kynslóðir án þess að hann virtist miða til »gagns«.
Jeg get ekki stilt mig um að benda á það, því það
ermjög eftirtektarvert tákn tímanna, að hvorki Lamarck,
nje Spencer nje Darwin hefðu getað fengið verðlaun af
Nobelssjóði. Það er hætt við að sjóðstofnun sú verði,
þegar fram líða stundir, vísindunum til skaða fremur en
til gagns. Stofnandi Carlsbergssjóðsins danska hafði
gleggri skilning á þvi hvað vísindunum er til þrifa.
Vísindi voru líka, þá er danski sjóðurinn var stofnaður,
í meiri metum en nú, er sá andi virðist ætla að taka
yfirhönd er lýsir sér í orðum Trimalchios hins auðga (í