Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1907, Page 80

Skírnir - 01.12.1907, Page 80
Upptök mannkynsins. 368 lega frú Filósoffía í eitthvað svipuðum stellingum og tröllkonan gleiða, sem olli vextinum mikla er nær hafði gjört Þór óvæða ána Vimur í för einni er af frásögn Snorra er fræg orðin, þá vil jeg heldur likja heimspekinni við Ask Yggdrasils er rætur sínar hefir bæði á himni og jörðu. Er það sæmilegra, enda hygg jeg að mannkynið muni þegar stundir líða fram, ala aldur sinn í skjóli þess trjes, miklu meir en hingað til hefir orðið, einkum þegar ráðinn er af Níðhöggur og alt hans kyn — ef það þá tekst. Enn kom þriðji maðurinn (A. R. Wallace) upp með fram- þróunarkenninguna og hélt þar fram úrvalning náttúrunnar eins og Darwin, sem aðalorsök, en ekki hinni ýmislegu beit- ingu kraftanna eins og Lamarck og Spencer. Framþróunar- kenningin »lá í loftinu«. Nú tókst að opna augu manna fyrir því að tegundirnar umbreytast, skapast upp úr öðr- um tegundum; og þetta var í raunihni aðalatriðið f y r s t u m s i n n, en ekki hitt, hvað mestu veldur um að teg- undirnar breytast. Það þarf engan spámann til að sjá, að þessi upp- götvan, sem nú ræðir um, muni vera upphafið að svo miklum breytingum á högum mannkynsins, að slíkar hafa aldrei orðið enn. En leiðin er löng og lífið stutt, og jafnvel vjela-r sem eru mjög einfaldar í samanburði við lifandi veru, eins og t. a. m. eimvjelin og rafvélin, sem hafa breytt svo þjóðhögum, komu ekki upp fyr en eftir vísindalegan undirbúning sem náði yfir margar kynslóðir án þess að hann virtist miða til »gagns«. Jeg get ekki stilt mig um að benda á það, því það ermjög eftirtektarvert tákn tímanna, að hvorki Lamarck, nje Spencer nje Darwin hefðu getað fengið verðlaun af Nobelssjóði. Það er hætt við að sjóðstofnun sú verði, þegar fram líða stundir, vísindunum til skaða fremur en til gagns. Stofnandi Carlsbergssjóðsins danska hafði gleggri skilning á þvi hvað vísindunum er til þrifa. Vísindi voru líka, þá er danski sjóðurinn var stofnaður, í meiri metum en nú, er sá andi virðist ætla að taka yfirhönd er lýsir sér í orðum Trimalchios hins auðga (í

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.