Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1907, Page 47

Skírnir - 01.12.1907, Page 47
V öluspá. 335- því koma Heljar lýðir að norðan og Loki stýrir því fyrir hönd dóttur sinnar, og er það eðlilegt. I handritunum stendur hér * reyndar a u s t a n (f. norðan) og m ú s p e 11 s- (f. Heljar), en það nær varla nokkurri átt, að þessi orð séu rétt; S. Bugge hefir leiðrétt þau, og má segja margt því til varnar. Hvað f í f 1 m e g i r sé, er óljóst, líklega helzt jötnalið Hryms; bróðir Býleists er eflaust Loki. Þó- liggur i þessum vísuorðum, að Loki kemur með Heljarliö; jötnar hverfa að þar sem úlfurinn er og Loki sameinar sig þeim aftur — og mynda svo allir nú eitt lið og eina fylking. [50. v. er auðsjáanlega innskot; að minsta kosti á hún mjög illa við hér, klýfur í sundur það sem saman áj. Svo kemur Surtur sunnan að á vígvöllinn, og gengur mikið á um leið og liann er á ferðinni, klettar og björg titra, tröllkonur steypast, mannfólkið deyr og himininn brestur. Surtur er líka jötunn; nafn hans kemur fyrir meðal jötnaheita og Eyvindur skáldaspillir kallar Suttung jötun hans nafni. Hvers kyns vera Surtur sé, erþvíekkert vafamál. Um Surt vitum vér annars ekkert nema afskifti hans af ragnarökri. Hann er eins og skapaður eimmgis til þess að vera andskoti goðanna þá, og það hinn skæð- asti allra, líklega af því að hann er stýrandi eldsins, er hann brennir alla bygðina með. Þess ber að gæta, að úr vestri koma engir fjandmenn, og kemur það til af þvi að alt fram að víkingaöldinni þektu norðmenn engin lönd eða bygðir í vestri, ekkert nema hið ómælanda haf, og goðahugmyndir þeirra og trúar- eru miklu eldri en vik- ingaferðirnar. Þá segir völvan frá vígi og falli einstakra goða, en örstutt, um Frey að eins að lxann hafi barist við Surt; Oðins og Þórs er sérstaklega getið, sem von var (52.—55. v.) Annar harmur Hlínar (= Friggjar) bendir til 32. v. og þess sem þar er frá sagt. 53. v. um hefnd Víðars væri í sjálfu sér vel við eigandi, en af því, að í henni eru svo margar kenningar, hafa menn viljað ráða, að hún só innskot. Þegar aðalgoðin eru dauð er, sem vænta mátti, öll aðalmótstaða búin — og þá sortnar sólin (til

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.