Skírnir - 01.12.1907, Síða 60
348
Agrip af sögu kvenréttindahreyfingarinnar.
Mill frumvarp ura jafnrétti karla og kvenna og almennan
pólitískan kosningarrétt bæði til handa körlum og konum.
Það var 1866. Margsinnis heflr þetta mál síðan verið
borið þar upp, en jafnan felt. Flestir hafa heyrt getið
um aðfarir ýmsra kvenfrelsiskvenna á síðustu tveimur
árum á Englandi, í því skyni að koma málum sínum fram.
En fæstum er það ijóst, hví þær voru neyddar til þess.
Frumvörp voru borin upp á þinginu um þetta mál, en
hreptu engan byr. Sendinefndir voru gerðar út á fund
ráðaneytisforsetans; þær fengu ekki áheyrn. Alt var gert
til að gera konur lilægilegar og málstað þeirra. Þá var
það að þær tóku til sinna. ráða. Þær mótmæltu aðförum
þingsins og neituðu að gjalda skatta, úr því þær hefðu
engin atkvæði um, hvernig þeir væru lagðir á. Þær voru
settar í fangelsi. Þegar þær sluppu út þaðan héldu þær
mótmælafund í sjálfu anddyri neðri málstofunnar. Þær
voru teknar af lögreglunni, settar í járn og farið með þær
í fangelsunum eins og glæpamenn. En nú fóru að berast
illar sögur af meðferð þeirra. Það þoldi ekki hin frjáls-
lynda brezka þjóð. Nú fengu þær og málstaður þeirra
hvarvetna örugga talsmenn og áhangendur; víðsvegar
þutu upp ný félög. Fundir voru haldnir í hverri borgr
1—2 á viku, bæði úti og inni. Gjaflr streymdu inn í
sambandssjóð kjörréttar-landsfélagsins. Æðri og lægri
konur fylgjast nú að þessum málum. 1906 lýstu 350 af
þingmönnum neðri málstofunnar og 5 af stjórnarfulltrúun-
um því yflr, að þeir væru meðmæltir kjörrétti kvenna, og
tóku hann upp á stefnuskrá sína. 28 félög karla og kvenna
með 840,000 félögum lýstu því opinberlega yfir, að þau
væru þessum málum fylgjandi, og áskorun var send til
þingsins, með undirskriftum 257,000 kvenna, um pólitískan
kjörrétt til handa konum. Sjálfur ráðaneytisforsetinn tek-
ur nú þessum málum vel, svo alt virðist benda til, að sá
tími sé í nánd, að enskar konur fái full stjórnarfarsleg
réttindi.
M ö n. Þar hafa konur lengi haft ýma réttindi og
verið mikils metnar. Árið 1880 fengu allar húseigandi