Skírnir - 01.12.1907, Side 65
Agrip af sögu kvenréttindalireyfingarnmar.
353
i heild sinni? Hið síðarnefnda var samþykt með miklum
meiri hluta. Fyrsta grein félagslaganna tekur skýrt fram
þenna tvöfalda tilgang félagsins.
Konurnar tóku saman við frjálslyndu flokkana; þær
stofnuðu öflugan félagsskap og héldu sameiginlegan aðalfund.
Kú þegar dúman var sett á fót og berjast átti fyrir al-
mennum kosningarrétti, þá var tækifærið til að koma
pólitískum kosningarrétti kvenna að. Þær komust í sam-
hand við beztu og áhrifamestu þingmennina. Bæði demó-
kratiski flokkurinn og frjálslyndi flokkurinn tóku kosn-
ingarrétt kvenna upp í kosningarlaga-frumvörp sín. En
nú þurfti að endurskoða lögin um réttindi (eða réttleysi)
kvenna, bera þau saman við ákvæði laganna um aðra
borgara þjóðarinnar og semja á þeim grundvelli nýtt
'lagafrumvarp. Til þess þurfti margra mánaða vinnu, og
hér var að eins um fáar vikur að ræða. Þá fengu kon-
ur skipaða lögfræðislega nefnd, sem vann að þessu máli
nótt og dag. A meðan börðust þær fyrir málinu í ræð-
um og ritum, með fundarhöldum og fyrirlestrum hver-
vetna um land. Alþýðan, svo algerlega ómentuð sem
hún er, fylgdi þeim að málum. Bændakonurnar gátu ekki
skilið, hvers vegna ekki ætti að bæta kjör nema annars
helmings þjóðarinnar. Og bændurnir sögðust vilja fá sömu
réttindi handa konum sínum sem sjálfum sér. Þær mundu
verða nýtar og öflugar hersveitir í baráttunni gegn styrjöld-
um og ofdrykkju, þessum tveimur verstu óvinum mann-
kynsins. Fjöldi bænaskráa um jafnrétti karla og kvenna,
frá ómentuðum bændakonum, streymdu inn til dúmunnar.
:Sumar voru skrifaðar af börnum þeirra, af því þær sjálf-
ar voru ekki skrifandi. Loks er lagaendurskoðunarnefnd-
;in hafði starfað kappsamlega í 6‘/2 viku var verkinu lok-
ið, og konur afhentu dúmunni öll skjöl og skilríki málsins
þ. 21. júlí 1905. Daginn eftir var dúman rofln.
Þá 14 mánuði sem »Rússneska kvennasambandið«
star-faði að þessum málum eyddi það 30,000 krónum ein-
göngu í þeirra þágu. Það varð auðvitað að hætta um
.sinn. En félagsskapurinn hélt áfram og hefir nú yflr
23