Skírnir - 01.12.1907, Síða 93
ísland árið 1907.
(Stutt yfijlit).
Ár þetta mun mega teljast meðalár til lands og sjóar. Tið var nm-
hleypingasöm framan af árinu og snjóþungt í sumum hlutum iandsins.
Norðlendingar fengu skip frá Englandi um veturinn með skepnufóður og
var farminum skipað upp á ýmsum höfnum frá Húsavík til Steingríms-
fjarðar. Vorið var og eigi gott, og sumstaðar mátti það hart heita, en
þó varð hvergi stórtjón að. Sumarið var óvenjulega þurviðrasamt og
kalt og grasspretta viða með minsta móti, en nýting heyja alstaðar i
hezta lagi. Haustið var allgott, þótt stutt en skarpt áfelli spilti því í
byrjun, en síðustu mánuði ársins hefir verið öndvegistið nm land alt.
Sögulegasti viðburður ársins er skipun sambandslaganefndarinnar og
stendur hún í sambandi við heimsókn konungs og danskra ríkisþings-
manna í sumar. 30. júlí, fyrsta dpginn, sem konungur dvaldi hér í
Reykjavík, skipaði hann nefnd þessa, til þess að „rannsaka og ræða
stjórnskipulega stöðu Islands í ríkinu“ og koma fram með frumvarp til
nýrra sambandslaga. Var þetta gert eftir ósk alþingismanna í Dan-
merkurför þeirra sumarið áður. I nefndinni eru 20 menn 7 íslenzkir og
1B danskir. Formaður hennar er íorsætisráðherrann, en Isiandsráðherra
varaformaður og voru þeir tveir sjálfkjörnir í nefndina, en hinir voru
skipaðir eftir tillögum þingmanna. Af hálfu alþingis voru þessir menn
til nefndir og eiga þeir sæti í nefndinni fyrir Island: Jóh. Jóhannesson
sýslum., Jón Magnússon skrifstofustj., Lái’us H. Bjarnason sýslum., Skúli
Thoroddsen ritstjóri, Stefán Stefánsson kennari og Steingrímur Jónsson
sýslum. Nefndin á að koma saman i Khöfn í febrúar næstk., og sam-
kvæmt erindisbréfi sínu á hún, áður ár er liðið frá útgáfudegi þess (30.
júlí), að láta konungi í té „álit um málið ásamt lagafrumvörpum, er til
þess séu fallin, að lögð verði fyrir alþing og ríkisþingið“. Hver árang-
ur verður af þessari nefndarskipun er auðvitað óvíst enn. En mikils
verð tilraun er hún samt sem áður til þess að greiða úr gömlum þrætu-
málum.
Um heimsókn konungs og ríkisþingsmanna er annars eigi rúm
til að fjölyrða hér. Til móttökunnar var að sjálfsögðu vandað sem bezt,
og voru stjórnmálaflokkarnir hér samtaka um, að svo skyldi vera, og