Skírnir - 01.12.1914, Side 13
Hefir jörðin sál?
349
«ngan veginn eins einföld og þau í tijótu bragði kunna
að virðast. Þannig speglar t. d. haf jarðarinnar ljós stjarn-
anna eins og voldugur spegill, gufuhvolflð brýtur það eins
og afarstór ljósbrjótur, skýin og jökulbreiðurnar skila því
hvítu, skógar, engjar og blóm kljúfa það í litskrúð. Ljós-
ið getur yfir höfuð tekið margskonar breytingum, sem ef
til vill hafa aðra þýðingu fyrir jörðina en vér sjáum.
Hver veit nema ljósið sé það mál sem stjörnurnar tala
hver við aðra. Hver lifandi vera skynjar áhrif sólarljóss-
ins á sjálfa sig, en þau áhrif eru ef til vill eins og eitt
orð í samtali sólar og jarðar. Þó hver einstök vera greini
aðeins það orðið sem við hana var talað og flnni ekki
þráðinn í samtalinu, þá má ætla að jörðin haldi honum.
Þá er eftir að líta á samband einstaklingssálnanna
við jarðsálina.
Grundvallarskoðun Fechners er sú, að meðvitund vor
sé í smáum stíl eftirmynd þess sem yfirgripsmeiri vitund-
ir eru, og að sambandinu milli einstaklingsvitundanna sé
því líkt farið og sambandinu milli skynjana, hugsana og
tilfinninga innan vitundar vorrar. Meðvitund vor felur í
sér ýmislegar skynjanir, hugmyndir og tilfinningar, getur
greint þær að og fundið margvísleg sambönd og hlutföll
þeirra á milli, sem ekki eru í neinni þeirra út af fyrir sig.
Blái depillinn sem eg sé, veit ekkert um rauða depilinn
sem eg sé við hliðina á honum. En eg veit um báða í senn,
og því betur sem eg greini þá sundur, því ljósari er vitund
mín um þá hvorn um sig. Á líkan hátt eru vitundir vorar
lokaðar hver gagnvart annari, hver veit aðeins um það sem
sem hún býr yfir, en jarðsálin greinir þær að, eins og vér
skynjanir vorar, og veit hvað í hverri þeirra býr. Hún
sér og margvísleg sambönd og hlutföll milli þeirra, sem
engin þeirra fær gripið yfir, því sjóndeildarhringur henn«
ar er stærri en vor, og hugtök hennar víðtækari.
Að vísu virðast lifandi verur aðgreindari og sjálfstæð-
ari hver gagnvart annari en skynjanir vorar eða hug-
myndir, enda eiga þær oft i stríði hver við aðra, en það
sýnir ekki að vitundir þeirra geti ekki verið þættir í víð-