Skírnir - 01.12.1914, Blaðsíða 36
372
Um ljós- og litaskynjanir.
verður það þreytt og hættir bráðlega að greina þann lit.
Ef það t. d er græni liturinn, þá sýnist manni rauði og
blái liturinn liggja hlið við hlið. En ef augað er látið
horfa á gula litinn, þá hverfur eigi aðeins sá litur, held-
ur einnig sá rauði og græni. Þetta styður kenningu
Young-Helmholtz, að guii liturinn sé sambland af rauðum
og grænum lit Með samskonar athugunum á ýmsum lit-
um litabandsins má aðgreina frumliti og afleidda liti.
Burch komst að þeirri niðurstöðu, að kenning Young-Helm-
holtz væri rétt, aðeins væru frumlitirnir f j ó r i r og væri
blái liturinn sá fjórði. Hann fann ekkert, sem benti á rétt-
mæti kenningar Herings. Þessar athuganir gerði Burch á
fjölda manna, og varð niðurstaðan i öllum aðalatriðum sú
sama á þeim öllum.
í myrkri, þegar augað hefir fengið tíma til að venj-
ast því, breytist ljósmagn litanna í litabandinu. Það sést
ekki eins mikið af rauða litnum, og hann sýnist miklu
dekkri, blái endinn Ijósari, en birtumestur er græni litur-
inn orðinn. Allitblindum manni sýnist alt litabandið eins
litt, aðeins misjafnlega bjart, og bjartast í græna litnum.
Sachs hefir sannað það með nákvæmum rannsóknum, að
augasteinninn stækkar og minkar eftir því, hve mikið ljós-
magnið er, sem verkar á augað; augnasteinninn dregur sig
mest saman við áhrif gulu geislanna, en hjá litblindummanni
við áhrif gulgrænu og grænu geislanna. Rauðu geislarnir,
sem valda miklum samdrætti á eðlilegu auga, hafa lítil áhrif
á litblint auga.
Það er alment álitið, að ómögulegt sé að fá neina
ábyggilega vissu um ljós- og litaskynjanir dýra, með því
að þau geti ekki með neinu móti gefið oss neina vitneskju
um þær. Menn gleyma hversu ófullkomin sú vitneskja er
sem aðrir menn geta gefið um sjónarskynjanir; þó t. d.
einhver kalli þann hlut rauðan, sem mér sýnist einnig
rauður, þá hefir hann ef til vill alt annan blæ fyrir hon-
um en mér. Prófessor Hesz frá Wiirzburg hefir gert ítar-
legar rannsóknir á ljósskynjunum dýra, og kemst hann að
þeirri niðurstöðu, að sú ætlun, sem hingað til hefir verið