Skírnir - 01.12.1914, Blaðsíða 97
Ritfregnir.
433
Ekkert á hann. Enginn hefir um hann hirt. Hann er ekkert
■nema »efni«, sem þó getur brugðiS til beggja vona.
Þenna ungling tekur Anna að sór og elur upp, sem bezt hún
má. Hún verður faðir hans, móðir hans og forsjónin hans. Hjalti
verður atgerfismaður hinn mesti, elskhugi Önnu, faðir barnanna
hennar — og eiginmaður hennar að lokum.
En þeim gengur illa að giftast.
Anna má ekki giftast nema með samþykki Páls bróður síns.
Og það fæst ekki.
Ættin er gömul og göfug. Henni fylgir heíöur, auður og
völd. Og ábyrgðin á öllu þessu er þung. Hana ber Páll lögmaöur
— að miklu eða mestu. Hann er útvörður ættarinnar. En Anna
er »laukur ættarinnar«, eða svo þykir Páli. Þess vegna er ekkert
átakanlegra en það, að h ú n blandi ættina smalablóði. Það
er óþolandi svívirða — blettur sem þvo verður af, hvað sem það
kostar.
Páll reynir með illu og góðu að fá systur sína til að. skilja við
Hjalta og giftast öðrum. En við það er ekki komandi. Anna
elskar manninn og sleppir honum aldrei, að þeim báðum lifandi.
Þá sver Páll við sverð sitt að drepa Hjalta, dæmir hann sekan
og situr um líf hans.
En Anna veröur ekki ráðþrota. Hún felur Hjalta i Fitjarhelli
og elur hann þar árum saman. Hann er heima á Stóruborg ann.
að slagið. Og börnum Önnu fjölgar, þó hvergi sjáist Hjalti. Þau
verða 8, áður en Hjalti kemst úr sekt.
Hjalti er lokaður í hellinum og neyddur til að fara huldu
höfði. Anna verður að berjast e i n fyrir bæði — vaka yflr honum
og verja hann. Og sú barátta er hörð og löng.
Bróðir hennar ræðst að henni hvað eftir annað, á nóttu sem
degi — til að leita að Hjalta. En Anna er æfinlega viðbúin. Hún
hefir njósnir um bróður sinn og veit allar ætlanir hans, áður en
þær eru framkvæmdar. Hjalta finnur hann ekki, og hver för hans
verður annari verri.
En Önnu er annað örðugra en að verjast bróður sínum. Það
er Hjalti sjálfur. Honum verður aðgerðarleysið óþolandi. Hann
verður að komast út sem oftast og reyna kraftana, því hraustur
er hann og á bezta aldri. En þá er hættan vís. Njósnarmenn
lögmanns gætu hitt hann og handsamað. Þá er úti um hann. Þó
væri hitt enn verra, ef hann geröist illvirki og léti reiði sína yfir
28