Skírnir - 01.12.1914, Blaðsíða 40
376
Um ljós- og litaskynjanir.
haga sér gagnvart litum alveg eins og fiskar og lindýr.
Grasa- og dýrafræðingar hafa haldið því fram, eins og
kunnugt er, að litir blóma séu til þess að hæna að ýms
skorkvikindi; þeir séu nokkurskonar merkisveifur eða
gestgjafaskildir. Þessi kenning, sem nú er sú algengasta,
verður að víkja, því það er fullsanuað, að býflugur hafa
engar litaskynjanir, sem sé hægt að líkja við vorar. Þær
haga sér gagnvart litum alveg eins og litblindur maður
mundi gera undir sömu kringumstæðum.
Flestar þessar tilraunir voru gerðar við rafljós. Til
þess þarf mikinn og dýran útbúnað. Einstaka mátti þó
gera við dagsljós; má taka til dæmis eina, sem einnig að
að öðru leyti er fróðleg og skemtileg. Hún var gerð á lirf-
um af algengri mýflugnategund. Ef vatnið í kerinu, sem
þær lifa í, hefir verið kyrt um hríð, þá hanga lirfurnar
við yfirborð vatnsins, en Hesz tók nú eftir því, að ef
skugga bar á, hvað lítill sem var, þá flýðu allar lirfurn-
ar niður í vatnið, alveg til botns. Hvað lítil ljósbreytingin
þarf að vera, sýnir þetta dæmi ljóslega: Ef kerið, sem
lirfurnár eru í, stendur við glugga og hvítu pappírsblaði
er haldið upp að þeirri hliðinni, er snýr frá glugganum,
þá fellur á kerið, auk birtunnar frá glugganum, einnig birta
af pappírnum. Sé pappírnum nú kipt snögglega burt,
þá er sú örlitla breyting á birtunni, er við það verður,
nægileg til þess, að allar lirfurnar flýja í óðagoti niður i
vatnið. Þær flýja einnig ef látinn er grár pappír milli
þess hvíta og kersins. Með þvi að nota ýmislega litan
pappír má flnna, hvaða litir lirfunum þykja ljósmestir,
því dýrin flýja einungis ef birtan er minkuð, aldrei ef
hún eykst. Ef t. d. fyrst var látinn dökkblár pappir fyrir
framan kerið, og svo skotið öðrum ljósrauðum milli hans
og kersins, þá flýðu dýrin í skyndi niður í vatnið, eins
og ef mikinn skugga hefði borið á. Svo rauði liturinn
virðist ekki heldur þessum dýrum ljósmikill. Niðurstað-
an varð hin sama við samanburð á öðrum litum, t. d..
rauðgulu og grænu; þeim fanst græni liturinn bjartari..
Það má einnig sýna með tilraunum, að þeim mýflugna-