Skírnir - 01.12.1914, Blaðsíða 58
S94
Um lifsins elixira og hið lifandi hold.
verkanir og »sekretínið«, en ennþá hefir ekki tekist að
einangra það hreint.
En það hormón sem þegar hefir fengið mesta þýðingu
í læknisfræðinni er hið svonefnda h o r m ó n a 1 eða hægða-
aukandi hormón (Peristaltik-hormon), sem þýzki læknirinn
Suelzer hefir uppgötvað. Hann hefir unnið það úr maga-
slímhúðinni og miltinu. Þetta efni safnast fyrir í maga-
slímhúðinni, þegar meltingin stendur hæst, en hverfur það-
an, er maginn tæmist, og fer þá til miltisins og geymist
þar þangað til að á því gerist þörf. Ef hormónali er
spýtt inn í blóðið, hefir það niðurhreinsandi áhrif á maga
og garnir með því að örfa garnahreyfingarnar. Það má
sjá greinilega hvernig það verkar á tilraunadýr eins og
t. d. kanínur. Þegar kanínan hefir verið svæfð og kvið-
arholið er opnað með skurði, er ofurlitlu af hormónali
spýtt inn í blóðið. Eftir fáeinar sekúndur kemur dugleg
hreyfing á garnirnar frá maga niður að endaþarmi. Það
kemur bylgjuhreyfing eftir görnunum endilöngum, við
samdrátt hringvöðvanna, og saurinn sést ýtast áleiðis nið-
ureftir og loks út um endaþarminn. Hormónal, sem unn-
ið er úr maga og milti á nautgripum, er nú selt i lyfja-
búðum á glösum og þykir gefast vel. Það hefir þann
afarmikla kost fram yfir önnur hægðalyf, að því er spýtt
inn í blóðið, svo að ekki er hætt við að sjúklingurinn selji
því upp, eins og oft vill verða einmitt þegar mest á ríður
að tæma garnirnar, t. d. eftir uppskurði, við lífhimnu-
bólgu o. fl. Þetta lyf er því kærkomið mörgum
læknum.
Meðal hormóna eru nú talin sum efni, sem áður voru
þekt undir öðrum nöfnum, en sem menn nú sjá að eru
gædd eiginleikum hormónanna. T. d. er kolsýra talin
hormón, vegna þess að hún herðir á andardættinum með
því að verka örvandi á stjórnarmiðstöð andardráttarins í
mænunni, og sömuleiðis er aukanýrasafinn (adrenalín) tal-
in hormón, af því hann örvar æðavöðvana til samdráttar
-og eykur blóðþrýstinginn.
Af því sem nú hefir verið minst á, sést hvílíkur fjár-