Skírnir - 01.12.1914, Blaðsíða 20
356
Saga íslands.
IV. Klerkaveldi.
V. Siðaskifti.
VI. Innreið konungsvaldsins.
VII. Einveldi í algleymingi.
VIII. Barátta hefst.
XI. Afturelding.
X. Jón Sigurðson.
Þetta er nú aðeins lausleg grind dregin upp í flýti.
Mætti vafalaust hitta betri liðamót fyrir atburðina. Eg
ætla hér lítið efni í fyrstu bókina vegna þess, að mikill
hluti af henni yrði að sjálfsögðu að vera nokkurskonar
inngangur sögunnar. Samræmi er ekki í því að V. og
VI. taka yfir nokkurnveginn sama tíma, að mista kosti um
miðbikið. V. yrði h. u. b. 1520—1630, en VI. h. u. b.
1550—1660 (eða 83?).
önnur regla væri sú, að láta hverja bók ná yfir lengra
svæði, en taka fremur eins og eina hlið málsins. Yrðu þá
2—3 bækur ef til vill um sama áraskeiðið. Hræddur er
eg samt um að hálla yrði á því, og erfiðara að synda fyr-
ir gífurlegar endurtekningar.
Ekki væri nein knýjandi nauðsyn, að hafa bækurnar
10. Gætu eins verið 8, 5 eða hvað sem vildi. Þó tel eg
miklu heppilegra að mörgu leyti, að hafa bækurnar frem-
ur litlar og margar en stórar og fáar. Flestir eru viljugri
að lesa stutta, handhæga bók. Útgjöldin kæmu líka nota-
legar við ef borga mætti lítið í einu. Og svo er bókin
lengri í skáphiilunni.
Litlar reglur væri hægt að gefa um það, hvernig
sagan skyldi vera skrifuð. Hver og einn yrði þar að
skrifa sem bezt hann gæti. Ultra posse nemo obligatur.
Og hver yrði að fara eftir sínum nótum. Naturam furca
pellas ex-----------. En einhverjar reglur yrði að gefa
fyrirfram, reglur um yfirborðs-áferðina. Þar mætti ekki
alt vera á ringulreið. Einn kynni að skrifa alt í belg og
byðu, án skiftinga eða kapítula, annar hefði kapítulaskifti,
*) Eg á hér ekki við það, að þetta skyldu vera fyrirsagnir hókanna.