Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1914, Page 28

Skírnir - 01.12.1914, Page 28
364 Hræðan. mér. »Eitt enn þá, þú neitar mér ekki um það. Aðeins eitt staup ennþá, Doddi minn«. Eg gaf honum það. »Já, þú segir að eg hafi eyðilagt mann fyrir þér«. Hann hélt um fótinn á staupinu, og hringsnéri því og horfði á það á meðan hann talaði. Skjálftinn var nú farinn af hendinni og röddin var orðin sterkari og líkari og fyr. »Það hef eg ekki gert. En eg hef búið til mann handa þér, mann sem þú getur lijálpað og glatt, prédikað fyrir og hugsað um«. »Ef eg hefði nokkra von«, greip eg fram í fyrir hon- um, »þá skyldi eg glaður prédika og hjálpa, en nú hefirðu sjálfur sagt það alveg þýðingarlaust. Þar af leiðandi get eg ekki orðið Samverjinn miskunnsami þín vegna«. »Hlustaðu á mig«, sagði hann, »eg hef sett upp hræðu handa þér og öðrum, ógeðslega, andstyggilega hræðu á leiðinni að forboðna trénu. Geturðu liugsað þér betri hræðu? Aei, það geturðu ekki«. Hann þagnaði og horfði á mig, en eg sagði ekkert og hann hélt áfram. »Hef eg þá ekkert gert? Hef eg þá eyðilagt sjálfan mig til ein- skis ? Hef eg þá ekki unnið mikið verk og þarft ? Hugs- aðu þér allan þann hóp ungra manna, gáfaðra og vaskra drengja, sem eru á leiðinni til sollsins, sjá svo þessa hræðu, mig, og snúa aftur«! »Þú ætlar þó vænti eg ekki að reyna að telja mér trú um að þú hafir eyðilagt líf þitt af eintómum mann- kærleika?« sagði eg, »að tilgangurinn hafi yfir höfuð verið nokkur hjá þér með svalli þínu og ólifnaði. Drektu úr staupinu og hættu þessu bulli«. Hann drakk úr staupinu. »Þú hefir altaf verið mér vinur«, sagði hann, »þú einn hefir, held eg, altaf skilið það að — að eg hefi stundum átt dálítið erfiðar stundir. Þú veizt það, að lífið er enginn leikur. — Það kom atvik fyrir mig í Höfn, sem var þannig að eftir það gat eg ómögulega lifað; það var þröskuldur, það var eins og þverhníptur hamar fyrir mér, og engrar áframkomu von. Þú veizt, að lífið er eng- inn leikur — en þú veizt ekki hvað það er að verða
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.