Skírnir - 01.12.1914, Síða 32
:3G8
Um ljós- og htaskynjaair.
ef þeir fara í gegnum glerþrístrending. Nú vitum við,
að ljósgeislarnir eru sveiflur; sveiflulengdin aðgreinir hin-
ar ýmsu geislategundir; við skynjum það sem liti. Þvi
meiri sem sveifiulengdin er, því minna brotnar geislinn,
því krappari sem sveiflan er, því meir brotnar hann.
Rauðu geislarnir hafa mesta sveiflulengd, brotna miust og
koma neðst á bandinu; fjólubláu geislarnir krappasta eða
styzta sveiflu, brotna mest og koma efst á litabandinu.
Litirnir í bandinu eru ekki glögglega aðgreindir, heldur
renna hver yfir í annan; það er ekki heldur slitið í sund-
ur. Gfeislategundir sólarljósins hljóta því að vera óend-
anlega margar. Litirnir eru það þá í rauninni einnig.
Vanalega eru litirnir þó aðeins taldir 5 (7) og eru í
þessari röð: rautt, (rauðgult), gult, grænt, blátt, (indigó-
blátt) og fjólublátt. Litir ljóslitabandsins voru kallaðir frurn-
litir, allir aðrir litir afleiddir litir.
Helmholtz, þýzkur lífeðlisfræðingur, setti þá kenningu
fram, að frumlitirnir væru aðeins þrír: rautt, grænt og
fjólublátt. Alla hina mætti mynda af þessum þremur.
Þannig væru litirnir milli rauða og græna litarins á lita-
bandinu sambland af þeim. Blái liturinn samruni af græna
og fjólubláa litnum; purpuraliturinn sambland af rauðu og
fjólubláu.
Hvíta litinn má búa til með ýmsu móti úr litum lita-
bandsins. T. d. með því, að sameina alla geislana aptur
með safngleri. Ef litabandinu er látið bregða hiatt
fyrir, þá renna og allir litirnir saman í eitt. Þrir fyrstu
litirnir í litabandinu mynda einnig hvítt við samruna. Hvítt
má jafnvel fá af tveimur litum,semhafa sérstakan styrkleika
og blandað er saman í sérstöku hlutfalli; þessir litir eru
kallaðir samstæðir litir (komplementerir litir). Sem dæmi
má nefna rautt og blágrænt, rauðgult og blátt, gult og
fjólublátt. Bezta og einfaldasta ráðið til þess að athuga
samruna lita fann enskur eðlisfræðingur, Maxwell. Hann
lagði málaðar töflur á hjól, sem snerist með miklum hraða.
Þegar hjólið er búið að ná ákveðnum hraða, hættir augað