Skírnir - 01.12.1914, Page 107
Útlendar fréttir.
443
-vináttan milli Þfzkalands og Rússlands, og það svo, að Bismark
þótti líklegra, að í Rússlandi gæti orðið, ef til kæmi, óvini að mæta.
Þetta leiddi til sambandssamninga milli Þjzkalands og A'jsturríkis
Frá Þjzkalands hálfu gekst Bismark fjrir þeim samningum, en frá
Austurríkis hálfu J. Andrassy, er þá var utanríkisráðherra Austur-
ríkis-Ungverjalands. í samningnum hótu ríkin hvort öðru hjálp
gegn árás frá Rússlandi. Það er sagt, að Bismark hafi gengið illa
að fá Vilhjalm keisara til þess að fallast á samninginn, vegna þess
að hann átti bágt með að líta til Rússlands sem óvinaríkis. Þessi
samningur var gerður í október 1879 og hefir haldist í gildi síðan.
Eftir þetta fór að vingast með Frökkum og Rússum, og varð banda-
lag þar í milli. En milli Rússlands og Austurríkis hefir altaf frá
þessum tíma vofað yfir stríð út af Balkanlöndunum. Þaðan stend-
ur Austurríki hætta á sundrungu ríkisins, eða að mirista kosti því,
að eigi lítill hluti þess gangi undan. Og þangað stefna vonir
Rússa um laudvinninga meira en í nokkra aðra átt, því það væri
til ómetanlegra hagsmuna fyrir Rússaveldi, að ná yfirráðum yfir
Balkanskaganum að austan suður að Miðjarðarhafi.
Sambandið við Þýzkaland var Austurríki mikill styrkur. 1883
kom Ítalía inn í sambandið og hafði þá Austurríki eignast vin
þeim megin í stað þess að það gat búist þar við óvini áður, ef á
reyndi. Þetta samband var svo nefnt þríveldasambandið, eða j>Triple-
alliance«. Bismark komst að sórstökum samningi við Rússland, er
fór í þá átt, að ef Austurríki róðist á Rússland, skyldi Þyzkaland
vera hlutlaust, og Rússland skyldi aftur á móti vera hlutlaust, ef
Frakkland réðist á Þjzkaland. En sá samningur var ekki endur-
njjaður eftir að Bismark fór frá völdum. Það er líka óvíst, að hve
miklu gagni slíkir samningar verða, þegar á reynir, þar sem venju-
lega mun veitast erfitt úr því að skera, hverjir upptökin eigi, þegar
til ófriðar kemur, og reyndin virðist vera sú, að samningarnir sóu
þá skýrðir af hverjum um sig á þann hátt, sem honum þykir sór
hagkvæmast. En stórveldasamböndin á meginlandinu urðu nú
þannig, að Rússland og Frakkland róku höndum saman móti Aust-
urríki og Þýzkalandi.
Þó var það ekki svo, að fjandskapur væri milli Þýzkalands og
Rússlands. Óviualand Þjóðverja var Frakkland, en Rússland óvina-
land Ansturríkis. Milli þjóðhöfðingja Þýzkalands og Rússlands
ihóltst vinátta og vinsamleg viðskifti milli þjóðanna og ríkjanna á
■margan hátt. En rígurinn kom upp smátt og smátt, er Þýzka*
landi óx fiskur um hrygg og markmið þess varð, að halda uppi