Fjölnir - 01.01.1847, Side 72
11. Tildia (strepsilas).
1 tegund. Tildra (strepsilus collaris), algengur
f'ugl fyrir sunnan og vestan; kemur eptir suniarmálin og
er jiá enn í vetrar-búningi; snennna í maí skiptir tildran
íiðri og fer þá eitthvað að verpa, líklega upp í óbvggðir;
í ágústmánaöarlok koma þær aptur hópum saman með
ungaua niður til sjóar og eru þar rúman mánuð, þangað
til þær fljúga burt; einstaka tildra er samt að flækjast
eptir á veturna. Tildran er styggur fugl og illt að skjóta þær.
3. d e i 1 d : Lappfætlur.
1. Oðinshani (phalaropus).
1. tegund. Oðinshani, sundhani (phalaropus
cinereus), keniur seint á vorin og fer snemma. Fallogi
fuglinn er kvenndýrið. Sundhaninn er heitfengur og unir
sjer vel á laugum, þo þær sjeu svo heitar, að menn þoli
varla að reka höndina ofan í þær.
2. tegunil. Flatnefjaður sundhani (phalaropus
platyrrliynchus), sjaldgæfur á Islandi, helzt fyrir sunnan,
rjett eins og hinir að lífernisháttum*).
2. Vatnshæna (fulica).
1 tcgund. Vatnshæna (fulica atra), svartur fugl
á stærð við önd, er ekki íslcnzkur, en kemur þó einstaka
sinnum á suðurland.
Fyrsfi hópur G tegundir
annar — - —
jiriðji — 13 —
fjórði — 1 —
fimmti — 20 —
alls 40 tegundir.
Jar af:
7 tegundir, sem eru
kyrrar árið um kring,
og 6 eða 9, sem ekki
mega hcita i'slenzkar.
Jessi fugl er rauöur á bringunni og- upp með hliðunum; margir
kalla Iiann jxirshana, en það nafn erkomið upp ekki alls fyrir