Tímarit - 01.01.1869, Side 13
Í3
9. Porlákur Hallgrímsson, prestur seinast að Melstað;
hans faðir
10. Hallgrímur Sveinbjarnarson, á Egilsstöðum í Vopna-
flrði; hans faðir
11. Sveinbjörn Þórðarson, officialis í Múla, kallaður
Barna-sveinbjörn, dó 1490; hans faðir
12. Pórður, ætt hans ókunn, heflr lifað á fyrra hluta
flmtándu aldar; móðir sira Sveinbjarnar telst
Þórdýs Finnbogadóttir, systir Halls Finnboga-
sonar (sjá 2 gr. nr. 12). .
B. M óðurcett.
5. gr.
1. Dorthea Katrine Bruun hét kvinna Jóns Cansellí-
ráðs Finsens og móðir Hilmars stiptamtmanns
Finsens; hennar faðir
2. Knud Bruun, kaupmaður og ráðamaður (»Raad-
mand«) í Kolding, dó 1792; seinni kona hans
og móðir frúr Dortheu Katrínar hét Elísabeth
Dorothea Thomsen. Faðir Knúds Brúns hét
3. Bertel Johansen Bruun, ráðamaður í Fredericíu, dó
1751 ; hans seinni kona og móðir Iínúds Brúns
hét Ivirsten dóttir Níelsar Gudmes, prests í
Ilerslev og Viuf. Faðir Bertels Johansens var
4. Johannes Iversen Bruun, ráðamaður í Fredericiu,
dó 1731; hans kvinna og móðir Bertels Brúns
hét Ane Kirstine Christjansdóttir; faðir Jóhann-
esar Brúns
5. Iver Bruun heflr lifað um miðja 17. öld; var son-
ur hans Jóhannes fæddur 1671.