Gefn - 01.01.1870, Side 2
2
breytt. Yér vorum öldúngis tímaritslausir þángað til um
miðja 18du öld eða seinna: þá gaf Magnús Ketilsson út
tímarit á dönsku, líklega helzt í þeim tilgángi að kynna
dönskum mönnum ástand landsins, er ekki skildu íslenzku.
fá komu Félagsritin gömlu. Um aldamótin gaf Magnús
Stepkensen út »Minnisverð tíðindi«, og voru þau miklu betri
en sumt sem seinna hefir verið út gefið, en þau komu ekki
út nema stutta stund og var þá engu tímariti haldið úti
þángað til Magnús reis aptur upp með Klaustui-póstinn,
1818. Klausturpósturinn er eittvert hið bezta rit sem út
hefir verið gefið á íslenzku, og vér höldum að á þeim tíma
hafi í rauninni ekkert tímarit á Norðurlöndum getað jafnast
við hann, eins og líka Magnús Stephensen var óefað láng-
fjölhæfastur og öflugastur allra íslenzkra manna þó um
margar aldir sé leitað, því hann var ekki einúngis svo gáf-
aður og lærður, sem rit hans bera vitni um, heldur og var
hann stór auðugur og þar með fullur af krapti og laungun
til aðvinna öðrum gagn en sjálfum sér frægð; og þó sumum
þætti hann ráðríkur, þá kom slíkt af' þeirri mótspyrnu sem
hið góða ætíð verður fyrir af letinni og þráanum, en fjand-
menn hans voru fokreiðir af því þeir höfðu ekkert við hon-
num, og nefnir þá nú enginn framar, en hann er sjálfur
altaf nýr. Mönnum finnst Klausturpósturinn nú nokkuð und-
arlegur að sumu leyti, til að mynda hvað málfæri snertir;
en það er víst, að fjölda margir Íslendíngar hafa haft megnið
af menntun sinni úr honum og hann hefir verið undirstaða
svo mikils góðs í landinu, að það verður eltki reiknað.
Hvergi höfum vér séð betur og skemtilegar sagt frá fréttum
úr útlöndum en þar; þar voru og nvjar uppgötvanir og
uppáfmníngar taldar, sem er óumflýjanleg nauðsyn, ef fylgja
skal tímanum, en sem aldrei síðau hefir verið gert í nokkru
tímariti á íslenzku, því hina seinni útgefanda vantaði Magnús-
ar fjör og fjölhæfi, iðni og atorku, og bæði Sunnanpósturinn
og Keykjavíkurpósturinn, sem tóku við eptir Klausturpóstinu
og áttu að bæta hann upp, standa lángt á baki hans í öllum