Gefn - 01.01.1870, Page 4

Gefn - 01.01.1870, Page 4
4 tímarit, sem koma út með laungu millibili, og geta þau verið vikublöð, mánaðaiit, eða lengra á milli. í þau má koma lengri ritgjörðum en í þau blöð, sem koma út á hverjum degi, og slík blöð geta heldur ekki með neinu móti staðizt á íslandi. j>að hefir alltaf orðið mönnum ljósara og ljósara, hversu nauðsynlegt það er að halda mönnum vakandi og verja þá þeirri deyfð og eymd, sem leiðir af fáfræði og skorti á andlegum efnum sem geta vakið umþenkínguna — og það enda þó menn ekki fallist á allt sem sagt er. J>essa vegna hafa alltaf ný tímarit risið upp á meðal vor — því ef nokkur þjóð er til í heiminum sem ekki einúngis hefir þörf á bókum, heldur og einnig er fær um að færa sér bækur í nyt, þá eru það Íslendíngar. Á þessari tilfinníngu var Fjölnir bygður, og hann var það einasta verulega mennt- andi tímarit sem kom eptir Klausturpóstinn, og því skulum vér fara nokkrum orðum um hann. Yér erum ekki hræddir við, þó sumir kanuske brigzli oss og kalli oss »laudatores temporis acti« — að vér segjum að »góður sé hverr genginn«; en oss finnst nú, sem miklu bjartara væri yfir laudinu með tilliti til bóklegra efna fyrir svo sem þrjátíu árum en nú. |>að er öldúngis víst, að jafnvel þó vér ættum margt gott um það leyti, þá hófst nýtt tímabil í menntunarsögu lands vors med Fjölni — það var eins og morgunroða slæi yfir; það var eins og framtíðin sæist í fjarska, fögur og skínandi, og þó óviss og dauf. Vér munum enn eptir því, þegar fyrstu árin af Fjölni komu út, og vöktu hreifíngu sem aldrei fyrri hafði orðið vart við; eldri mönnunum þókti nóg um, og þó spyrntu þeir ekki við að hann vekti þá; ýngri mennirnir tóku honum báðum hönd- um. Raunar var margt í honum eintrjáníngslegt og und- arlegt, sem ekki var furða, því svo fer ætíð þegar menn eiga von á sterkri mótspyrnu og fastheldni við það sem landfast er orðið. En þau áhrif, sem Fjöluir liafði, voru engu að síður svo mikil, að það má segja að um þau sjö eða átta ár, sem hann kom út með óskiptum krapti enna fjögra höfunda hans, þá hafi einna fegurst tíð verið á Is-

x

Gefn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.