Gefn - 01.01.1870, Blaðsíða 9
9
liamrana, er vér segjum þeim hreint út, að hvergi 1 heimi
kemst alþýðu vit og upplýsíng í hálfkvisti við það sem er
á Islandi. fetta er svo kunnugt sem allir vita, þó það sé
ekki eingaungu sjálfum oss að þakka, heldur liggi í eðli og
gángi hlutanna, með því fjarlægð vor frá byltíngum heimsins
gaf oss frið og tækifæri til að halda máli voru og þar með
þjóðerni óbreyttu, og unni oss þess að geta notið fornaldar-
innar og þess mikla fjársjóðs, sem hún hefir eptir sig látið.
í þessu efni er athugandi, að þó vér tölum um »æðri og
lægri« menn, »lærða og leika«, »heldra fólk«, »fyrirfólk« og
slíkt; þá er enginn stétta-munur hjá oss að heldur, jafn vel
þó einn landi vor væri svo lærður fyrir fám árum að segja
það og gefa útlendum mönnum þar með ráuga hugmynd.
Allir eru jafnir, og þó embætti gefi einurn það eða það
vald, þá er jöfnuðurinn samt óhaggaður og kemur miklu
öðruvísi fram hjá oss en í öðrum löndum, þar sem allir eru
jafnir að lögunum, en ekki jafnir nema á pappírnum. Orsökin
til þessa er uppfræðíngin og allt hið andlega ástand þjóðar-
innar, og það er öðruvísi hjá oss en í öðrum löndum, þar
sem bændastéttin talar landsins verulega mál, sem er nær
upprunanum, en þó allt svo bjagað og afmyndað, að það
verður ekki haft til ritgjörðar, — og eptir málinu fer allt
ástand andans — en heldra fólkið talar æðra málið, sem
hæfilegt er til hóka, og er það meir eða minna meingað
margskonar útlendum orðum, sem almenníngur ekki skilur,
en venst á að hramsa hugsunarlaust eins og fuglamál. Hér
af leiðir að svo mikil sókn er eptir skólum hvervetna í
útlöndum: bændafólkið lifir eins og skepnur og hefir engar
bækur á bændamáli ritaðar, sem það geti menntast af eða
skemt sér við, og hlýtur því að ílýja til alls konar bóka
sem ritaðar eru á æðra málinu, margar mjög misjafnt eins
og nærri má geta — að vér ekki tölum um kennarana og
kennsluna, sem hlýtur að vera í þessum skólum, sem vér
erum enn fríir við fyrir guðs náð. J>ar á móti er allt eitt
hjá oss; málið er hið sama hvort heldur það er sett á bækur,