Gefn - 01.01.1870, Qupperneq 11
11
öll setníng skáldskaparins breyzt; skáldskap vorum hefur
stórum farið fram, hjá |>ví sem er í fornritum, hvað sem
menn um það segja og hvað sem útlendir lærdómsmenn
geipa, sem ekkert þekkja til. — I enum eldri tímaritum
vorum hafa kvæði og ýmiss skáldskapur fengið ekki svo lítið
rúm, en þessu hefir farið aptur eins og mörgu öðru. Meðal
annars var það lengi framan af einn af aðalkostum Skírnis, að
þar voru prentaöar ýmsar grafskriptir og kvæði, einkum erfiljóð,
og það mun hafa áunnið honum hylli landsmanna ekki síður
en fréttirnar; en því er hætt fyrir laungu. Skírnir og öunur
iík rit |>ykjast merkiiegri en svo að þau geti verið þekt fyrir
að flytja annað eins glíngur og þau álíta skáldskapinn að
vera, nema hvað stundum kemur eitthvað lítið þess konar
fyrir einskæra náð útgefandanna, samkvæmt þeirri skoðun,
að skáldin sé í rauninni óþarfa fuglar sem ekki sé til annars
en hafa í búrum til að sýngja eða skrækja, en ómögulegir
og óhæfilegir til nokkurra verulegra starfa í lífinu.
Á því sem nú höfum vér sagt, mun mönnum vera orðið
ljóst, að vér ætlum að bjóða skemtandi og fræðandi rit, sem
nokkurnveginn láti Íslendínga fylgja með tímanum, þó með
öðru móti sé eneiginlegt fréttarit. Vér komum með skemt-
ilegar sögur, helztu uppgötvanir og uppáfinníngar, kann ske
sumt sem snertir málvísi og forn fræði, og yfir höfuð eitt-
hvað úr ýmsum greinum þekkíngar og vísinda. }>ó vér ekki
séum beinlínis »Pólitici«, þá getum vér ekki leitt hjá oss
að tala um eitthvað þess konar, ef oss dettur slíkt í hug,
og vér álítum »Pólitík« öldúngis ekki annað en heilbrigða
skynsemi, en engan galdur eða fítonsanda list, sem ekki
geti eða megi fremjast af öðrum en útvöldum galdramönnum.
Að minnsta kosti höldum vér að vér getum pólitísérað eins
vel og sumir ýngri alþíngismenn, að því er vér höfum séð á
alþíugistíðindunum seinustu. þíngtíðindin eru full af mis-
heyrnum og misskilníngum, og það einmitt láng mest af
hendi þeirra sem kalla sig »frjálslynda« og »þjóðernismenn«,
en sem eru í rauninni ófrelsismenn, af því þeir standa fast