Gefn - 01.01.1870, Síða 13
13
Vér forum að hugsa um, hvort stjórnin muni vera svo heimsk
eða svo illgjörn, eins og auöséð er að meiri hluti alþíngis alltaf
álítur haua, þar sem hún er alltaf rekin aptur eins og skóla-
drengur sem ekkert kann; vér förum að hugsa um, hvort
Islendíngar, sem kosta alþíng og fæða þíngmennina, ekki
éigi rétt og tilkall til að sjá hetri þíngræður en megnið af
þeim sem híngað til hafa veriö haldnar. Menn eru sí og æ
að hreyta í kríngum sig sömu orðtækjunum, svo sem að
þjóðerui vort sé í veði fyrir árásum Dana og stjórnarinnar
— meiníngin er náttúrlega þessi: »íslendíngar, hæstvirtu og
elskuðu landar! þér eruð makalausir og eigið ekki yðar líka
nokkurstaðar í heiminum, þér eruð saklausir englar og sann-
leikans píslarvottar, klipnir og kúgaðir af Dönum án allrar
verðskuldunar, niðurníddir, krossfestir, kvaldir og deyddir af
þessum grimdarlegu og samvizkulausu höðlum og blóð-
hundum, sem hafa tekið allar eignir yðar og vilja nú taka
af yður lífið, því þér eigið ekkert annað eptir. Allir þeir
konúngkjörnu eru dansksinnaðir djöflar og »danskir Islen-
díngar«, keyptir og haldnir af stjórninni til þess að hamla
framföram vorum og lialda oss í eymdinni.« Svona hugsa
þessir menn, þó þeir kanu ske ekki komi hugsunum sínum
eins vel og kröptuglega fyrir og hér er gert. En það má
lengi bíða, ef til vill, þángað til stjórnin kemur með frum-
varp um stöðu lands vors, sem þíngið getur gengið inn á
eptir þeim hártogunum, kenjum ogtortryggni sem það hefir
liíngað til sýnt; og eins og vér svörum þeim sem hafa líkt
oss við Úngara, med því að segja þeim að það eigi ekkert
við, því Úngarar fengu sína stjórnarbót ekki allt í einu, en
smátt og smátt, þar sem alþíngið vill strax gína yfir öllu
og gleypa allt, eins og á engu megi bót ráða síðar — eins
svörum vér líka þeim sem halda að menn geti beðið svona
tíu og tíu árin hvað eptir annað, með því, að á þeim tíu
árum getur gammur úr Jötunheimum komið annað hvort að
austan eða vestau og tekið Island án þess vér séum að
spurðir, og þá skulum vér sjá hvernig fer um þjóðerni vort