Gefn - 01.01.1870, Side 16
16
orðnir, og mátti skipastóll þeirra eigijafnast við Engla. Na-
póleon féll af ofmentaði — hann var búinn að koma Frakk-
landi svo hátt sem það nokkurn tíma hafði komizt í her-
valdi; en hanu hafði aldrei frið fyrir hergirni sinni og féll
á henni um síðir. En enginn einn stjórnari hefir hafið nok-
kra þjóð til annars eins frama og áunnið sjálfum sér eins
ljómandi nafn og Napóleon; kann ske að Alexander mikla
einum undan skildum. Margar hetjur hafa komið upp, sem
munu nefnast meðan heimurinn stendur, svo sem Sigurður
Fofnisbani, þiðrekur af Bern og slíkir, og þjóðirnar trúðu á
þá svo að það var þeirra nafn og frægð, sem þeir réðu öllu
með og komu mönnum til að fylgja sér, en ekki vizka né
stjórnkænska; þeir voru álitnir þvínær sem guðir og þess
vegna fylgdu allir þeim og gengu út í alt fyrir þá: ívar
beinlausi lét bera sig á móti óvinaher og Harahlur hilditönn
ók gamalærr í orrustunni, og allir meun þeirra fylgdu þeim,
því þeir trúðu á þá, öldúngis eins og þegar menn báru helga
dóma fyrir herfylkíngunum, skrín hins heilaga Ólafs kon-
úngs — merki og gunnfánar voru og helgir dómar og eru
enn bornir fyrir herliði: þegar í elztu fornöld voru þessi
hermerki höfð, bæði hjá Grikkjum og Bómverjum, og svo
hér á Norðurlöndum; Loðbrókar synir höfðu hrafn (fugl
Óðins) saumaðan á silkiblæju — allir þekkja »landeyðu«
Haraldar harðráða og »sigurfluguna«, merki Sverris konúngs.
En miklu fremur treystu menn samt gæfu foríngjans sjálfs,
og í þessu tilliti er Napóleon fremstur allra, því hann og
hans nafn hefir myndað alla þá herfrægð og frama, sem
Frakkar hafa orðið njótandi á þessari öld.
Eptir að styrjöldum Napóleons ens fyrsta var lokið
1814, var Frakkland þreytt ogúttaugað, sem nærri má geta;
því frá því um 1789 — hér um bil hálfa öld — hafði ekki
linnt stríðum og baráttu um alla Norðurálfuna, ogNapóleon
var þar allstaðar fremstur í fiokki, en ekki var sá tírni kom-
inn að hugsandi væri ad taka framförum á þjóðfrelsislegan
hátt. Stjórn Napóleons var glæsileg og ljómandi og sjálfur